Ekki samstaða innan ASÍ um áherslur í komandi kjaraviðræðum
Deildar meiningar eru innan Alþýðusambandsins um hvort sækja eigi krónutöluhækkanir eða prósentuhækkanir í komandi kjaraviðræðum. Ekki tókst að ná samstöðu í dag um að landsambönd og félög innan ASÍ fari sameiginlega fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins.