Dómsmálaráðherra segir fjölgun flóttafólks ekki tilviljun
Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að koma í veg fyrir misnotkun á alþjóðlega verndarkerfinu. Fordæmalaus fjölgun flóttamanna til Íslands væri ekki tilviljun og því nauðsynlegt að gera breytingar á lögum um útlendinga til samræmis við það sem þekktist í öðrum löndum.