Telja ósennilegt að nokkur hafi átt við óinnsigluð kjörgögn
Eigendur Hótels Borgarness telja afar ósennilegt að nokkur hafi getað átt við óinnsigluð kjörgögn sem skilin voru eftir í læstum veislusal af yfirkjörstjórn. Myndavélar séu við alla útganga salarins. Formaður yfirkjörstjórnar segir öruggt að enginn hafi farið inn í salinn meðan hann brá sér frá.