Fundi Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair slitið
Fundi samninganefnda Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair var slitið á þriðja tímanum í dag án niðurstöðu. Formaður flugfreyjufélagsins segir að farið sé fram á launaskerðingu til langs tíma sem félagið sætti sig ekki við.