Grafalvarleg staða er á hjúkrunarheimili í Bolungarvík
Fimm manna samkomubann gildir nú á öllum norðanverðum Vestfjörðum eftir að aðgerðir voru hertar nú síðdegis. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða segir stöðuna alvarlega á hjúkrunarheimilinu Bergi þar sem nokkur smit hafa greinst hjá íbúum og starfsfólki.