Vilhjálmur Birgisson nýr formaður Starfsgreinasambandsins
Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness var kjörinn formaður Starfsgreinasambandsins á þingi þess í dag með tíu atkvæða mun. Hann segir að með samstöðu félagsfólks væri því allir vegir færir í komandi kjarasamningum sem verði erfiðir.