Háðfuglarnir furðu lostnir yfir Trump og „hrossasmettinu“ Bandarískir spjallþáttastjórnendur vöktu flestir máls á ummælum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um klámstjörnuna Stormy Daniels í þáttum gærkvöldsins. Lífið 17. október 2018 12:30
Forseti Bandaríkjanna kallar klámleikkonu hrossasmetti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar hafi vísað frá máli klámleikkonunnar Stormy Daniels gegn honum. Erlent 16. október 2018 16:10
Trump segir þingkonu vera svikahrapp vegna DNA-prófs Farið yfir deilurnar um „verri útgáfuna“ af Pocahontas. Erlent 16. október 2018 15:45
Ærumeiðingarmáli klámmyndaleikkonu gegn Trump vísað frá Dómarinn taldi að Trump Bandaríkjaforseti hafi mátt saka hana um að búa til sögu um að henni hafi verið hótað. Erlent 16. október 2018 10:41
Sýndi fram á frumbyggjablóð eftir ítrekaðar Pocahontas-háðsglósur Trumps Bandaríska þingkonan Elizabeth Warren greindi í gær frá niðurstöðum erfðaprófs, sem sýna að hún á ættir að rekja til frumbyggja Norður-Ameríku. Erlent 16. október 2018 08:20
Pompeo fundar með Sádum vegna Khashoggi Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun síðar í dag hitta konung Sádí Arabíu, vegna Khashoggi málsins svokallaða Erlent 16. október 2018 07:20
Trump ekki lengur á því að loftslagsbreytingar séu gabb Donald Trump Bandaríkjaforseti sakar vísindamenn sem vara við loftslagsbreytingum um pólitískan áróður og segist efast um að kenna megi manninum um hækkandi hitastig í heiminum. Erlent 15. október 2018 07:26
Sádar hafna hótunum vegna hvarfs blaðamannsins Bandaríkjaforseti hafði talað um strangar refsingar ef í ljós kemur að Sádar beri ábyrgð á hvarfi sádiarabísks blaða- og andófsmanns. Erlent 14. október 2018 14:23
Trump telur það skila árangri að stía fjölskyldum í sundur Bandaríkjastjórn skoðar nú nýjar útfærslur sem geri henni kleift að byrja aftur að skilja börn frá foreldrum sínum sem koma ólöglega til Bandaríkjanna. Erlent 14. október 2018 08:00
Brunson kominn aftur til Bandaríkjanna Presturinn Andrew Brunson er nú kominn heim til Bandaríkjanna eftir að hafa varið tæpur tveimur árum í haldi Tyrkja. Erlent 13. október 2018 19:42
Tengdasonur Trump hefur greitt sáralitla skatta um árabil Auður Kushner hefur hins vegar fimmfaldast á unfanförnum árum. Erlent 13. október 2018 18:02
Stórfyrirtæki fjarlægja sig Sádum eftir hvarf blaðamannsins Sum vestræn fyrirtækja hika við að láta bendla sig við Sáda eftir hvarf blaða- og andófsmanns. Bandaríkjastjórn hefur hins vegar verið meira tvístígandi í viðbrögðum sínum við ásökunum um að Sádar hafi myrt hann. Erlent 13. október 2018 10:02
Íhuga aftur að skilja að fjölskyldur á landamærunum Hvíta húsið skoðar nú aðgerðir sem gætu aftur leitt til þess að skilja að foreldra frá börnum sínum á landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Er þetta gert til þess að sporna við fjölda fólks sem reynir að komast ólöglega yfir til Bandaríkjanna. Erlent 12. október 2018 21:38
Kanye fór úr einu í annað á „klikkaðasta fundi Hvíta hússins“ Tónlistarmaðurinn Kanye West mætti í Hvíta húsið í gær og ræddi þar við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Erlent 12. október 2018 10:45
Fyrrverandi lögmaður Trump skráir sig í Demókrataflokkinn Lanny Davis, verjandi Cohens, tilkynnti um ákvörðun Cohens á Twitter-reikningi sínum í dag. Erlent 11. október 2018 23:30
„Enginn er lagður í meira einelti en ég“ Þetta kemur fram í nýju viðtali ABC-sjónvarpsstöðvarinnar við forsetafrúna. Erlent 11. október 2018 19:27
Óttast að Trump-stjórnin sópi hvarfi blaðamanns undir teppið Bandaríkjastjórn hefur sýnt fá merki um að hún ætli sér að draga Sáda til ábyrgðar vegna hvarfsins á þekktum blaða- og andófsmanni. Erlent 11. október 2018 08:09
Nikki Haley segir upp Nikki Haley, sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, hefur sagt starfi sínu lausu. Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, er sagður hafa móttekið og samþykkt uppsögn hennar. Erlent 9. október 2018 14:21
Trump-liðar telja sig svikna af Taylor Swift Yfirlýsing Taylor Swift um að hún ætli sér að kjósa Demókrata í þingkosningunum í Bandaríkjunum í nóvember kom stuðningsmönnum Donald Trump, forseta, á Reddit og 4chan verulega á óvart. Erlent 9. október 2018 11:15
Konur fjarlægjast Repúblikanaflokkinn Sífellt færri bandarískar konur skilgreina sig sem Repúblikana og fækkunin staðið yfir um nokkuð skeið. Hins vegar virðist sem að hægur straumur hafi orðið að flóði í forsetatíð Donald Trump. Erlent 9. október 2018 08:29
Trump segir ásakanir í garð Kavanaugh vera tilbúning Demókrata Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Demókrata standa að baki ásökunum í garð nýjasta dómarans við Hæstarétt Bandaríkjanna. Erlent 8. október 2018 23:11
Stefna á annan leiðtogafund sem fyrst Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna fundaði með Kim Jong-un í stuttri ferð sinni til Pyongyang. Erlent 7. október 2018 13:17
Staðan í bandarískum stjórnmálum mánuði fyrir kosningar Í dag er sléttur mánuður þar til Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu. Skoðanakönnunum og stjórnmálaskýrendum í Bandaríkjunum ber saman um að Demókratar séu líklegir til þess að fá meirihluta sæta í fulltrúadeildinni. Erlent 6. október 2018 11:15
Skipan Kavanaugh svo gott sem í höfn Þingkona repúblikana og þingmaður demókrata lýstu því yfir að þau myndu greiða Brett Kavanaugh atkvæði sitt. Búist er við því að öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti skipan hans sem hæstaréttardómara á morgun. Erlent 5. október 2018 20:15
Kosið um Kavanaugh á morgun Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti rétt í þessu að setja tímamörk á umræður fyrir atkvæðagreiðsluna um dómaraefnið Brett Kavanaugh. Erlent 5. október 2018 15:14
Hundruð mótmælenda handteknir í mótmælum gegn Kavanaugh Hundruð mótmælenda voru færðir í varðhald lögreglu fyrir utan byggingu Hæstaréttar Bandaríkjanna í nótt þar sem þeir mótmæltu Brett Kavanaugh, sem tilnefndur er af Bandaríkjaforseta til að taka sæti í Hæstarétti landsins. Erlent 5. október 2018 07:13
Skýrsla FBI virðist engu ætla að breyta Tveir af þeim þremur þingmönnum Repúblikanaflokksins sem hafa lýst yfir óákveðni með tilnefningu Kavanaugh hafa nú lýst yfir ánægju með skýrsluna. Erlent 4. október 2018 16:30
Mikilvægustu þingmennirnir gagnrýna ummæli Trump Þrír af mikilvægustu þingmönnum Repúblikanaflokksins um þessar mundir hafa gagnrýnt Donald Trump, forseta, fyrir að hæðast að Christine Blasey Ford, sem sakað hefur Brett Kavanaugh um að hafa reynt að nauðga sér á þeirra yngri árum. Erlent 3. október 2018 16:45
Íhuga rannsókn á meintum skattsvikum Trump Verið er að skoða rannsókn New York Times þar sem því er haldið fram að Trump og faðir hans hafi beitt ýmsum ráðum til að koma rúmum 413 milljónum dala úr sjóðum Fred til sonarins, án þess að greiða rétta skatta. Erlent 3. október 2018 14:00
Trump hæddist að vitnisburði Blasey Ford Blasey Ford kom fyrir dómsmálanefndina í síðustu viku og bar þar vitni vegna ásakana sem hún hefur sett fram á hendur Brett Kavanaugh, sem Trump hefur tilnefnt í Hæstarétt Bandaríkjanna. Erlent 3. október 2018 08:09