

EM í fótbolta 2024
Evrópumótið í fótbolta karla fer fram í Þýskalandi dagana 14. júní til 14. júlí 2024.
Leikirnir

Gerðu misheppnaða tilraun til að vekja Austurríkismenn með flugeldum
Misheppnuð tilraun var gerð til að ónáða austurríska landsliðið í nótt þegar flugeldar voru sprengdir fyrir framan hótel þeirra.

Fyrstur í sögunni til að verja þrjár vítaspyrnur í sama EM-leiknum
Diogo Costa, markvörður Porto og Portúgals, skráði sig á spjöld sögunnar í gærkvöld þegar hann varði þrjár vítaspyrnur í einum og sama leiknum á Evrópumóti karla í knattspyrnu. Markvörslur hans hjálpuðu Portúgal að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum.

Paul Pogba ekki hættur: „Ég mun berjast, fyrir sjálfan mig, gegn þessu óréttlæti“
Paul Pogba sætir fjögurra ára banni frá fótbolta en er ekki búinn að leggja skóna á hilluna. Hann mun snúa aftur á knattspyrnuvöllinn þegar banninu lýkur.

Ronaldo staðfestir að Evrópumótið í ár verði hans síðasta
Cristiano Ronaldo hefur nú staðfest það sem allmarga grunaði, Evrópumótið í ár verður hans síðasta á ferlinum.

„Líklega besti leikur lífs míns“
Diogo Costa, markvörður og hetja Portúgala, var heldur betur kátur og sáttur eftir að hafa í kvöld, öðrum fremur, tryggt þjóð sinni sæti í átta liða úrslitum á EM.

Hinn fullkomni leikur hjá Nico Williams
Segja má að Nico Williams hafi í raun átt hinn fullkomna leik þegar Spánn tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu með 4-1 sigri á Georgíu.

Diogo Costa varði þrjú víti í vító og Portúgalar mæta Frökkum
Portúgalar urðu í kvöld, sjötta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í Þýskalandi. Liðið þurfti þó vítaspyrnukeppni til að slá út Slóvena.

De Bruyne: Of snemmt til að svara því
Kevin De Bruyne og félagar í belgíska landsliðinu duttu út úr Evrópumótinu í fótbolta í kvöld þegar liðið tapaði á móti Frakklandi í sextán liða úrslitunum.

Sjáðu sjálfsmarkið sem kom Frökkum í átta liða úrslit
Frakkar hafa aðeins unnið tvo leiki á þessu Evrópumóti og þá báða á sjálfsmarki. Þessi sjálfsmörk hafa hins vegar skilað franska liðinu í átta liða úrslitin.

Aftur vinna Frakkar á sjálfsmarki og nú skilar það þeim í átta liða úrslit
Frakkar urðu fimmta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta eftir 1-0 sigur á Belgíu í kvöld.

Ólíklegt að Bellingham fái leikbann
Aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu rannsakar nú frekar klámfengin fagnaðarlæti Jude Bellingham eftir að hann skoraði markið mikilvæga á móti Slóvakíu í sextán liða úrslitum Evrópumótsins um helgina.

Ísböð á nóttunni og alltaf tilbúinn að gefa góð ráð
Það eru fáir knattspyrnumenn ýktari og Cristiano Ronaldo. Þá eru fáir sem eru tilbúnir að leggja meira á sig til að ná árangri. Þetta staðfesti José Fonte, fyrrverandi samherji hans í portúgalska landsliðinu.

Keane um Mainoo: „Er að gera hluti sem tók mig tíu ár að læra“
Hinn írski Roy Keane, fyrrverandi miðvallarleikmaður Manchester United, hélt vart vatni yfir frammistöðu Kobbie Mainoo á miðri miðju Englands þegar liðið marði Slóvakíu í 16-liða úrslitum Evrópumóts karla í knattspyrnu sem nú fer fram í Þýskalandi.

Bellingham í hættu á að vera sektaður fyrir klámfengin fagnaðarlæti
Jude Bellingham skoraði jöfnunarmark Englands gegn Slóvakíu með hjólhestaspyrnu í uppbótartíma og fagnaði með klúrum hætti.

Pogba og Matuidi verða heiðursgestir Frakka gegn Belgíu
Franska knattspyrnusambandið hefur boðið Paul Pogba og Blaise Matuidi heiðursgestasæti á leik Frakklands og Belgíu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins síðar í dag.

Handtekinn á þaki vallarins þar sem hann ætlaði að ná góðum myndum
Þýska sérsveitin var kölluð út á leik Þýskalands og Danmerkur í 16-liðar úrslitum Evrópumótsins vegna manns sem var búinn að koma sér upp á þak Westfalenstadion.

Sjáðu hjólhestaspyrnuna sem bjargaði Englendingum
England og Spánn tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í kvöld. Englendingar þurftu á öllum mínútum leiksins að halda gegn Slóvökum.

Þjóðverjar með algjöra yfirburði í seinni hálfleik og á leið í átta liða úrslit
Þjóðverjar eru á leið í 8-liða úrslit á Evrópumótinu í heimalandinu eftir 2-0 sigur gegn Danmörku í leik sem tafðist lengi vegna veðurs. Þar munu þeir mæta Spáni eða Georgíu.

„Vorum að hugsa um að taka Bellingham út af“
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að hann hafi verið að hugsa um að taka Jude Bellingham af velli stuttu áður en hann bjargaði enska liðinu með fallegri hjólhestaspyrnu.

Spánverjar í átta liða úrslit en ævintýri Georgíu á enda
Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins er liðið vann 4-1 sigur gegn Georgíu.

Hjólhestaspyrna Bellingham bjargaði Englendingum
England tryggði sér í dag sæti í átta liða úrslitum EM með dramatískum 2-1 endurkomusigri gegn Slóvakíu í leik sem fór alla leið í framlengingu.

„Eins og hann væri að bæta upp fyrir mistök með mistökum“
Danir voru langt frá því að vera sáttir við dómgæsluna í leiknum gegn Þjóðverjum í sextán liða úrslitum á EM í gær og baunuðu á enska dómarateymið í viðtölum í leikslok.

„Aldrei séð svona lélegt ítalskt landslið“
Ítalir eru úr leik á EM eftir tap fyrir Svisslendingum í gær, 2-0. Frammistaða ítalska liðsins var ekki upp á marga fiska.

Þjálfari Dana mætti reiður með síma í viðtal: „Svona á fótbolti ekki að vera“
Kasper Hjulmand, þjálfari danska karlalandsliðsins í fótbolta, var allt annað en sáttur við dómgæsluna í leiknum gegn Þýskalandi á EM í gær. Hann sagði regluna um hendi vera fáránlega.

„Við erum svona fimm prósentum frá þeim stað sem við viljum vera á“
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, segir frammistöðu liðsins á mótinu hingað til ekki eins slæma og fólk segir og gaf það í skyn að litlar breytingar yrðu á liði Englands fyrir leikinn gegn Slóvakíu í 16-liða úrslitum síðar í dag.

Sjáðu mörkin sem skiluðu Sviss áfram í átta liða úrslit
Sviss komst nokkuð óvænt áfram í átta liða úrslit Evrópumótsins þegar liðið lagði ríkjandi Evrópumeistara Ítalíu 2-0 í dag. Mörk leiksins má sjá hér fyrir neðan.

Myndefni af ofsaveðrinu: Þrumur, eldingar, haglél og fossandi rigning á EM
Tuttugu mínútna hlé var gert vegna slagveðurs á leik Þýskalands og Danmerkur í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta. Myndir og myndbönd af þrumum, eldingum og risahagli má sjá hér fyrir neðan.

„Mér finnst þessi úrslit ekki eins mikill skandall og fólk talar um“
Luciano Spalletti axlaði ábyrgð á 2-0 tapi Ítalíu gegn Sviss í 16-liða úrslitum Evrópumótsins og sagði upplegg sitt ekki hafa gert leikmönnum kleift að sýna sínar bestu hliðar, niðurstaðan væri þó ekki eins mikill skandall og fólki finnst.

Evrópumeistararnir úr leik á EM og Sviss í átta liða úrslit
Ríkjandi Evrópumeistarar Ítalíu eru úr leik á Evrópumótinu eftir 2-0 tap gegn Sviss í sextán liða úrslitum. Sviss mætir annað hvort Englandi eða Slóvakíu í 8-liða úrslitum.

Belgar biðjast afsökunar á því að hafa hótað að sparka í Mbappé
Myndband af Amadou Onana hóta því að sparka í sköflunginn á Kylian Mbappé hefur verið fjarlægt af samfélagsmiðlum belgíska knattspyrnusambandsins. Fjölmiðlafulltrúi sambandsins segir þetta hafa verið gert í gríni en baðst afsökunar engu að síður.