![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2017-09-07T144452.760Z-haukar.png)
![](https://www.visir.is/vaktin/content/flags/2025-02-14T125946.545Z-2021-10-15T150140.503Z-Jeruzalem_Ormoz.png)
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.
Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa skorað á konur að stíga fram ef þær þurfi vegna mögulegrar óviðeigandi hegðunar breska grínistans Russell Brand á meðan hann tók þátt í góðgerðarviðburðum samtakanna frá 2006 til 2012. BBC barst kvartanir vegna grínistans á þessum árum en brást ekki við.
Bandaríski leikarinn Steve Martin þvertekur fyrir að hafa kýlt bresku leikkonuna Miriam Margolyes við tökur á grínmyndinni Litlu hryllingsbúðinni frá 1986. Margolyes segir Martin hafa kýlt sig í alvörunni en ekki í þykjustunni.
Breski grínistinn Russell Brand segir ásakanir á hendur sér ekki eiga við rök að styðjast. Umfjöllun um meint brot leikarans birtist í dag en leikarinn brást við á Instagram í gær.
Ástralska leikaraparið Hugh Jackman og Deborra-lee Furness hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir 27 ára langt hjónaband.
Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift vann til níu verðlauna á MTV Video Music verðlaunahátíðinni sem haldin var í New Jersey í Bandaríkjunum í nótt.
Tónlistarkonan Beyoncé birti mynd af sér ásamt foreldrum sínum, Tinu og Mathew Knowles, í tilefni af 42 ára afmæli sínu á dögunum. Foreldrar hennar eru skilin og því sjaldséð að sjá mynd af þeim saman.
Tónlistarkonan Grimes segir Elon Musk, milljarðamæring og fyrrverandi kærastann hennar, hafa tekið mynd af sér þar sem gerður var á henni keisaraskurður við fæðingu eins barna þeirra. Þetta kemur fram í óútkominni ævisögu milljarðamæringsins sem erlendir slúðurmiðlar hafa undir höndum.
Leikarahjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher hafa sætt harðri gagnrýni nú um helgina eftir að meðmælabréf sem þau skrifuðu um leikarann Danny Masterson voru birt. Masterson var á fimmtudag dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir nauðgun.
Sonur bandaríska tónlistarfólksins Rihönnu og ASAP Rocky hefur verið nefndur. Hann heitir Riot Rose Mayers og er þess getið í erlendum slúðurmiðlum að nafnið vekji athygli en talið er að hann sé nefndur eftir einu frægasta lagi rapparans.
Þáttastjórnandinn Jimmy Fallon hefur beðið núverandi og fyrrverandi starfsmenn sína afsökunar á því að hafa stuðlað að „baneitraðri“ vinnustaðamenningu á setti í þáttunum The Tonight Show. Honum segist líða gríðarlega illa.
Danny Masterson, leikari sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í That ´70 Show, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi. Masterson var sakfelldur í vor fyrir að nauðga tveimur konum á árum áður.
Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú Íslands, hitti breska rithöfundinn og grínistann David Walliams. Hún sýnir frá þessu á Instagram-síðu sinni, þar sem hún birtir mynd af sér og bretanum fræga.
Núverandi og fyrrverandi starfsmenn sem unnu á bakvið tjöldin í framleiðslu á bandaríska skemmtiþættinum The Tonight Show saka Jimmy Fallon, um að hafa stuðlað að baneitraðri vinnustaðamenningu á setti þáttanna. Sextán starfsmenn, fjórtán fyrrverandi og tveir núverandi lýsa málum í viðtali við bandaríska tímaritið Rolling Stone. Þannig lét Jerry Seinfeld Jimmy Fallon eitt sinn biðja starfsmann afsökunar.
Ofurfyrirsætan Linda Evangelista hefur greint frá því að hafa tvívegis greinst með krabbamein og hafa gengist undir fullt brjóstnám. Hún segir horfurnar ágætar en ekki frábærar.
Joe Jonas er sagður hafa fengið nóg af partýstandi Sophie Turner. Segir bandaríski slúðurmiðillinn PageSix að það sé ein af helstu ástæðum þess að þau hafi skilið að borði sæng.
Hollywood hjónin Joe Jonas og Sophie Turner hafa ákveðið að binda enda á fjögurra ára hjónaband sitt. Frá þessu greina erlendir slúðurmiðlar.
Margar af stærstu stjörnum Hollywood lögðu leið sína á leik Los Angeles og Inter Miami til að berja Lionel Messi augum.
Það hefur verið stefna íslenskra stjórnvalda um langa hríð að nýta beri sjávarauðlindir við Ísland – sett hefur verið skýr löggjöf sem tryggir að veiðarnar séu sjálfbærar, byggðar á vísindalegum grunni, lúti eftirliti og séu í samræmi við alþjóðalög.
Stjórn Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda segist harma ákvörðun matvælaráðherra um að heimila hvalveiðar í haust og vonast til þess að samstaða náist á Alþingi um að banna veiðarnar til frambúðar.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segist orðlaus yfir mögulegri sniðgöngu Hollywood-stjarna á Íslandi vegna hvalveiða. Hann sakar stjörnurnar um hræsni og telur að þær ættu frekar að leysa vandamál eigin lands áður en þær skipti sér að málum Íslands.
Enn fleiri nöfn er nú að finna á undirskriftalista sem safnað er á í Hollywood gegn hvalveiðum Íslendinga. Leikstjórarnir Jane Campion, James Cameron og Peter Jackson eru meðal þeirra sem hafa bæst í hóp mótmælenda.
Baltasar Kormákur segir það skelfilegt fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað ef verður af sniðgöngu Hollywood-leikara og framleiðenda vegna hvalveiða. Matvælaráðherra kynnir ákvörðun sína á morgun. Ef hún leyfir hvalveiðir aftur ætlar hópur Hollywood leikara ekki að koma með verkefni sín til Íslands.
Hugh Hefner, stofnandi, útgefandi og aðalritstjóri Playboy-tímaritsins varð heyrnarlaus á öðru eyra af því að hann tók of mikið af stinningarlyfinu Viagra. Þetta segir Crystal Hefner, ekkja ritstjórans.
Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag.
Martha Stewart, athafnakona og sjónvarpsdrottning, var stödd á Íslandi um helgina en virðist nú vera komin til Grænlands ef marka má samfélagsmiðla. Hún fór á stúfana með Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú og heimsóttu þær ýmis fyrirtæki, meðal annars Íslenska erfðagreiningu.
Ástarsambandi Hollywood-leikarans Bill Murray og söngkonunnar Kelis er lokið eftir aðeins tvo mánuði.
Kevin Hart segist vera illa farinn eftir að hafa slasað sig í spretthlaupi með fyrrverandi NFL leikmanninum Stevan Ridley. Hann kveðst vera heimskasti maður í heimi en hann notar hjólastól tímabundið vegna meiðslanna.
Bandaríski stórleikarinn Jason Momoa hvetur íslensk stjórnvöld til þess að framlengja veiðibann á stórhvelum og hætta hvalveiði alfarið. Hann segir Íslendinga hugrakka að hafa bannað hvalveiðar í sumar.
Forsvarsmenn Warner Bros hafa ákveðið að fresta frumsýningu kvikmyndarinnar Dune: Part Two um rúma fjóra mánuði vegna verkfalls leikara. Timothée Chalamet, Zendaya og aðrir leikarar geta annars ekki tekið þátt í að kynna myndina vegna verkfalls leikara.
Annað barn söngkounnar Rihönnu og rapparans A$AP Rocky er komið í heiminn samkvæmt heimildum slúðurblaða vestanhafs.