Ríkisstjórnin fundar um hertar aðgerðir innanlands Ríkisstjórnin kemur saman til aukafundar síðar í dag til að ræða tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um hertar aðgerðir innanlands vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Innlent 24. mars 2021 10:31
Kári vill að stjórnvöld skelli öllu í lás Sautján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru utan sóttkvíar og hinir fjórtán í sóttkví. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, vill að stjórnvöld skelli öllu í lás. Innlent 24. mars 2021 09:49
Vaktin: Ráðherrar leggjast yfir tillögur Þórólfs og kynna aðgerðir Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu í morgun til aukaupplýsingafundar klukkan 11 í dag. Hálftíma síðar var hætt við fundinn. Innlent 24. mars 2021 09:31
Tímasetningin „eins slæm og hugsast getur“ Skólastjóri Laugalækjarskóla segir að skimunarsóttkví sem allir nemendur skólans hafa verið sendir í á morgun, 24. mars, gæti varla hafa komið á verri tíma. Árshátíð 8.-10. bekkja skólans, hápunktur ársins, átti að fara fram á morgun en hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ástandsins. Innlent 24. mars 2021 00:13
Allir nemendur Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla í úrvinnslusóttkví Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla í Reykjavík fara í úrvinnslusóttkví á morgun, miðvikudaginn 24. mars. Gripið er til þessa ráðstafana vegna fjölgunar kórónuveirusmita meðal nemenda í Laugarnesskóla. Allur árgangur 6. bekkjar í Laugarnesskóla, sem og 5. flokkur karla í knattspyrnu hjá Þrótti, er jafnframt í sóttkví. Innlent 23. mars 2021 22:43
565 tilvik mögulegra aukaverkana tilkynnt Lyfjastofnun Lyfjastofnun hafa borist 565 tilkynningar um mögulegar aukaverkanir í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Flestar þeirra, eða 529, eru flokkaðar „ekki alvarlegar“ en 36 „alvarlegar“. Innlent 23. mars 2021 21:33
Smit staðfest í fjórum af fimm bekkjum Að minnsta kosti þrír nemendur í Laugarnesskóla greindust með kórónuveiruna í dag. Þeir voru allir í sóttkví. Áður hafði einn nemandi auk kennara greinst með veiruna í skólanum. Smit eru nú staðfest í fjórum af fimm sjöttu bekkjum skólans. Innlent 23. mars 2021 20:51
Ný bylgja muni brotna á varnargarði bólusettra einstaklinga „Eftir á að hyggja er eflaust margt sem við vildum óska að við hefðum vitað og margt sem við vildum óska að við hefðum gert öðruvísi, eftir á að hyggja, af því að við vorum að berjast við nýjan sjúkdóm undir allt öðruvísi kringumstæðum en nokkur fyrrverandi stjórnvöld gátu ímyndað sér.“ Erlent 23. mars 2021 20:19
Heilbrigðisráðuneytið skoðar Sputnik V bóluefnið Formaður Miðflokksins spurði forsætisráðherra hvernig hefði gengið að semja um bóluefni framhjá þeim samningum sem gerðir hefðu verið með Evrópusambandinu. Innlent 23. mars 2021 19:29
Allir frá rauðum löndum í sótttvarnahús Börn fædd árið 2005 eða síðar skulu fara í sýnatöku við komuna til landsins eins og fullorðnir og allir sem koma frá hásmitasvæðum verður gert að taka sóttkví út í sóttvarnahúsi frá og með fyrsta apríl. Verið er að leita að hótelum til að hýsa þetta fólk. Innlent 23. mars 2021 19:20
Er allt í rugli með sóttvarnirnar? Nei, sannarlega ekki. En umræðan um bólusetningar, sóttkvíarreglur, breytingar á sóttvörnum gagnvart fólki utan Schengen og fyrirhugaða breytingu á sóttvarnarreglum frá og með 1. maí hefur grautast töluvert saman undanfarna viku. Skoðun 23. mars 2021 16:01
Uppsagnir og lokanir hjá Kaffitári Kaffitár hefur lokað kaffihúsi sínu í Bankastræti tímabundið og endanlega hætt rekstri í Þjóðminjasafninu. Þetta staðfestir Marta Rut Pálsdóttir, rekstrarstjóri kaffihúsa hjá Kaffitári, í samtali við Vísi. Viðskipti innlent 23. mars 2021 15:07
Enginn með brasilíska afbrigðið alvarlega veikur Læknir og hjúkrunarfræðingur, sem bæði hafa verið bólusett fyrir kórónuveirunni, fóru um borð í súrálsskip frá Brasilíu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Innlent 23. mars 2021 15:06
Bilun í tækjabúnaði tafði greiningu Covid-sýna í gær Bilun kom upp í greiningartæki sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans í gær sem tafði greiningu Covid-sýna. Ekki er reiknað með að það verði marktækar tafir á greiningu sýna í dag. Innlent 23. mars 2021 13:22
Leigja hótel og skikka fólk af eldrauðu svæðunum í sóttvarnahús Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tvær tillögur sóttvarnalæknis um aðgerðir er tengjast landamærunum og kórónuveirufaraldrinum. Innlent 23. mars 2021 11:46
Þjóðverjar skella í lás yfir páskana Sóttvarnaaðgerðir í Þýskalandi verða framlengdar um þrjár vikur og hertar verulega yfir páskana. Ástæðan er þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sem gengur nú yfir Þýskaland og ýmis önnur Evrópuríki. Erlent 23. mars 2021 11:44
Rúmlega 400 manns í sóttkví Þeim fjölgar mjög á milli daga sem eru í sóttkví vegna kórónuveirusmita. Í gær voru tæplega 200 einstaklingar í sóttkví en í dag eru þeir 435 samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Innlent 23. mars 2021 11:10
Reyndust allir tíu vera með brasilíska afbrigðið Skipverjar um borð í súrálskipinu Taurus Confidence sem smitaðir eru af Covid-19 eru allir með brasilíska afbrigðið. Þetta staðfestir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, við Fréttablaðið en raðgreiningu á smitunum er lokið. Innlent 23. mars 2021 11:03
Gætu lagt fjársektir á þá sem reyna að ferðast frá Englandi Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 23. mars 2021 10:32
Einn greindist innanlands í gær Einn einstaklingur greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Hann var í sóttkví. Innlent 23. mars 2021 09:44
Ætla að skylda fólk frá áhættusvæðum í farsóttarhús Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar á fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í dag að kynna drög að nýjum reglum varðandi fólk sem kemur hingað til lands. Innlent 23. mars 2021 08:54
Telja AstraZeneca hafa notað úrelt gögn við rannsókn vestanhafs Bandarísk yfirvöld telja að niðurstöður úr umfangsmikilli rannsókn á kórónuveirubóluefni AstraZeneca í Bandaríkjunum hafi stuðst við „úrelt gögn“. Því hafi fyrirtækið mögulega gefið ófullkomna mynd af virkni bóluefnisins. Erlent 23. mars 2021 08:41
Kynnti langtímaáætlun um tilslakanir næstu tvo mánuði Dönsk stjórnvöld komust í kvöld að samkomulagi um að danskt samfélag skuli verða opið að mestu þegar allir 50 ára og eldri hafa verið bólusettir gegn kórónuveirunni. Þá var kynnt ítarleg langtímaáætlun um tilslakanir á sóttvarnareglum næstu tvo mánuði. Erlent 22. mars 2021 23:59
Breska afbrigðið auki líkur á innlögn Ný norsk rannsókn sýnir að fólk er 2,6 sinnum líklegra til þess að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda ef það smitast af breska afbrigðinu samanborið við upprunalega afbrigðið. Breska afbrigðið hefur verið í mikilli útbreiðslu í Noregi. Erlent 22. mars 2021 22:38
Nemandi í Laugarnesskóla smitaður af Covid Nemandi í Laugarnesskóla greindist í dag smitaður af kórónuveirunni. Kennari við skólann greindist með veiruna í gær. Innlent 22. mars 2021 21:37
Vel varinn í kringum fárveikan skipstjórann en nú kominn í sóttkví Yfirhafnsögumaður á Reyðarfirði, sem fara þurfti um borð í súrálsskip með veika skipverja innanborðs á laugardag, segir að honum hafi verið illa við að fara um borð. Þá segir hann að ekki hafi fengist upplýsingar um veikindi skipverjanna nema með krókaleiðum. Innlent 22. mars 2021 21:01
Spá 700 þúsund ferðamönnum í ár Þjóðhagsspá sem kom út í dag samhliða útgáfu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar spáir um 700 þúsund ferðamönnum hingað til lands í ár. Fjármálaráðherra segir bólusetningar þar lykilatriði og að gangur þeirra muni skera úr um hvort spárnar rætist. Viðskipti innlent 22. mars 2021 20:54
Ný afbrigði áhyggjuefni fyrir samfélagið Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalann, segir álagið á spítalann hafa aukist upp á síðkastið. Til skoðunar er hvort hækka eigi viðbúnaðarstig spítalans úr óvissustigi yfir á hættustig en ný afbrigði veirunnar munu ekki hafa áhrif á verklag á spítalanum. Innlent 22. mars 2021 19:02
Rúnar Páll og Stjörnumenn ekki í sóttkví en slepptu æfingu dagsins Þrátt fyrir að leikmaður Fylkis sé smitaður og liðið hafi spilað gegn Stjörnunni á föstudagskvöldið eru Stjörnumenn ekki í sóttkví. Þetta staðfesti Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Stjörnunnar. Íslenski boltinn 22. mars 2021 18:31
Sóttkvíarbrjótar áttu bókað flug heim degi eftir seinni skimun Lögregla á Norðurlandi vestra sektaði tvo ferðamenn um helgina fyrir brot á sóttkví. Eftir komuna til landsins fóru ferðamennirnir í ferðir á bíl og á skíði. Þá áttu þeir bókað flug heim einum degi síðar en niðurstaða seinni skimunar átti að liggja fyrir. Innlent 22. mars 2021 18:15