Eyjakonur fyrstar til að vinna í Digranesinu í vetur Eyjakonur unnu sinn fjórða sigur í röð í N1 deild kvenna í dag þegar þær sóttu tvö stig í Digranes. ÍBV vann 35-30 sigur á heimastúlkum í HK sem höfðu fyrir leikinn unnið alla heimaleiki vetrarins. Handbolti 3. nóvember 2012 17:31
Fram og Valur safna áfram stórsigrum Fram og Valur eru áfram með fullt hús á toppi N1 deildar kvenna í handbolta eftir stórsigra í dag. Fram hefur unnið alla sjö leiki sína en Valskonur hafa unnið alla sex leiki sína. Það er ekki búist við að liðin tapi stigum fyrr en þau mætast innbyrðis í fyrsta sinn en það verður ekki fyrr en eftir áramót. Handbolti 3. nóvember 2012 15:50
ÍBV í þriðja sætið - Öll úrslit kvöldsins Heil umferð fór fram í N1-deild kvenna í kvöld. ÍBV er komið upp á þriðja sæti deildarinnar eftir sigur á FH en Fram er eitt á toppi deildarinnar. Handbolti 30. október 2012 21:22
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fram 23-26 Fram er enn taplaust á toppi N1 deildar kvenna eftir þriggja marka sigur á Stjörnunni á útivelli 26-23. Jafnt var í hálfleik 13-13 en Fram náði mest fimm marka forystu eftir hlé og vann nokkuð öruggan sigur. Handbolti 30. október 2012 19:00
Úrslit dagsins í N1-deild kvenna Topplið Vals og Fram unnu bæði örugga sigra í N1-deildinni í dag. Þau eru sem fyrr efst og jöfn með fullt hús stiga eftir fimm leiki. Handbolti 27. október 2012 17:05
Mömmurnar elda ofan í stelpurnar fyrir leik Fram-stelpur eru brattar fyrir leikina gegn Tertnes í Evrópukeppni félagsliða um helgina en þeir fara fram í dag og á morgun klukkan 16.00. Báðir leikir fara fram í Safamýrinni. Handbolti 20. október 2012 07:30
Valur vann í Valencia Valsstúlkur gerðu sér lítið fyrir í kvöld og skelltu spænska liðinu Valencia, 27-22, í fyrri leik liðanna í 2. umferð EHF-keppninnar í handknattleik. Handbolti 19. október 2012 20:10
Valskonur spila á Spáni í kvöld og á morgun Íslands- og bikarmeistarar Vals mæta um helgina spænska liðinu Valencia Aicequip í tveimur leikjum í 2. umferð EHF-bikars kvenna í handbolta. Handbolti 19. október 2012 16:00
Búin að brosa mikið þrátt fyrir stórt tap Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði um helgina sinn fyrsta leik síðan hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. Rakel Dögg skoraði 3 mörk í tapleik á móti Íslands- og bikarmeisturum Vals í N1-deild kvenna í Mýrinni. Rakel var ekki búin að vera með í þremur fyrstu leikjum Stjörnunnar á tímabilinu þar sem sjúkraþjálfarinn vildi að hún æfði á fullu í fimm til sex vikur fyrir fyrsta leik. Handbolti 15. október 2012 08:30
ÍBV keyrði yfir Aftureldingu í seinni hálfleik ÍBV vann öruggan sigur á Aftureldingu 28-17 í fjórðu umferð N1 deildar kvenna í dag. ÍBV var einu marki yfir í hálfleik 11-10 en sýndi mátt sinn í seinni hálfleik og vann öruggan sigur að lokum. Handbolti 14. október 2012 16:52
Rakel Dögg spilaði sinn fyrsta leik eftir krossbandsslit Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, spilaði í dag sinn fyrsta leik síðan að hún sleit krossband skömmu fyrir HM í Brasilíu fyrir tæpu ári síðan. Handbolti 13. október 2012 19:21
Valskonur tóku aftur toppsætið af Fram Íslands- og bikarmeistarar Vals eru komnar aftur á toppinn í N1 deild kvenna eftir 11 marka sigur á Stjörnunni í Mýrinni í dag, 32-21. Fram vann Fylki á fimmtudaginn og komst á toppinn en Valsliðið tók aftur toppsætið með þessum sigri. Handbolti 13. október 2012 16:10
Tveir sigrar í röð hjá bæði Haukum og FH Kvennalið Hauka í handboltanum fagnaði sigri á móti Gróttu í 4. umferð N1 deild kvenna í handbolta í dag. Haukaliðið tapaði illa á móti Val í fyrsta leik en hefur nú unnið tvo síðustu leiki sína. FH-liðið sótti tvö stig á Selfoss og er einnig búið að vinna tvo leiki í röð. Handbolti 13. október 2012 16:00
Engir leikir hjá Eyjamönnum í dag Handknattleikssambandið hefur þurft að fresta tveimur leikjum í meistaraflokki karla og kvenna í dag þar sem ófært er frá Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ en vonir stóðu til að nóg væri að seinka leikjunum fram á kvöld. Handbolti 13. október 2012 13:47
Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. Handbolti 13. október 2012 12:24
HSÍ færir bikarúrslitaleikina eftir að mótið er byrjað Stjórn Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að færa bikarúrslitaleiki HSÍ frá 23. febrúar til 9.mars 2013 en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HSÍ. Bikarúrslitaleikurinn hefur farið fram í febrúar undanfarin ár en nú verður breyting á því. Handbolti 12. október 2012 18:15
Stórsigur Fram á Fylki Einn leikur fór fram í N1-deild kvenna í kvöld. Fram vann þá öruggan sigur á Fylkiskonum í Safamýrinni. Handbolti 11. október 2012 19:43
Stella fór á kostum í sigri á Noregi Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann nauman sigur, 23-22, á B-liði Noregs í vináttulandsleikí Osló í dag. Ísland leiddi í hálfleik, 14-10. Handbolti 6. október 2012 17:26
Valur og Fram enn með fullt hús stiga Fram gerði í dag góða ferð til Vestmannaeyja og vann þar sex marka sigur á ÍBV en heil umferð fór fram í N1-deild kvenna í dag. Handbolti 29. september 2012 19:42
ÍBV sterkari í Garðabænum - myndir ÍBV-stelpur fóru glaðar heim úr Garðabænum í kvöld eftir að hafa unnið góðan sigur á Stjörnunni í N1-deild karla. Handbolti 26. september 2012 21:00
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 21-26 | Öruggt hjá ÍBV Eyjakonur sóttu tvö stig í Mýrina í kvöld þegar þær unnu fimm marka sigur á Stjörnunni, 26-21, í lokaleik 2. umferð N1 deildar kvenna í handbolta. Eyjakonur byrjuðu báða hálfleik mjög vel en hleyptu Stjörnuliðinu aftur inn í leikinn í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleiknum var hinsvegar aldrei spurning um hvar sigurinn endaði. Handbolti 26. september 2012 14:58
Fram valtaði yfir HK - myndir HK kom allra liða mest á óvart í N1-deild kvenna í fyrra og vann góðan sigur á Stjörnunni í fyrstu umferð N1-deildar kvenna. Liðið brotlenti aftur á móti í Safamýrinni í kvöld. Handbolti 25. september 2012 22:30
HK skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik | Úrslit kvöldsins Önnur umferð N1-deildar kvenna hófst í kvöld með fjórum leikjum. Valur og Fram völtuðu yfir andstæðinga sína eins og svo oft áður. Handbolti 25. september 2012 21:40
Selfossstelpur unnu fyrsta heimaleikinn í 20 ár | Markaskorarar í N1 deild kvenna í dag Nýliðar Selfoss í N1 deild kvenna í handbolta byrja tímabilið vel því þær unnu tíu marka sigur á Aftureldingu, 26-16, í nýliðaslag á Selfossi í dag. ÍBV skoraði sjö af síðustu níu mörkum leiksins á móti Gróttu í Eyjum og tryggði sér 22-22 jafntefli en Grótta náði mest sjö marka forskoti í hálfleik. Handbolti 22. september 2012 19:40
HK vann sannfærandi sigur á Stjörnunni HK-konur komu á óvart í fyrstu umferð N1 deildar kvenna í handbolta með því að vinna sexmarka sigur á Stjörnunni, 25-19, í Digarnesi í dag en Stjörnuliðinu var spáð mun betra gengi en HK í vetur. Handbolti 22. september 2012 15:20
Fjölmennasta kvennadeildin í þrettán ár hefst í dag Fyrsta umferðin í N1 deild kvenna í handbolta fer fram í dag þegar fimm leikir verða spilaðir. Ellefu lið eru í deildinni og verða tíu á ferðinni í dag. Þetta er í fyrsta sinn síðan tímabilið 1999-2000 eða í þrettán ár, sem svo mörg lið eru í úrvalsdeild kvenna. Handbolti 22. september 2012 12:15
N1 deild kvenna í handbolta: Létt hjá Fram en enn léttara hjá Val Valur og Fram er spáð besta genginu í N1 deild kvenna í handbolta í vetur eins og undanfarin ár og bæði lið unnu sannfærandi útisigra í fyrstu umferð deildarinnar í dag. Handbolti 22. september 2012 11:41
Íslenski handboltinn verður á RÚV næstu fimm árin Handknattleikssamband Íslands gerði í gær nýjan samning við RÚV um sýningarrétt frá íslenskum handknattleik. Samningurinn er til næstu fimm ára og tryggir RÚV sýningarrétt á öllum leikjum Íslands- og bikarkeppna karla og kvenna sem og landsleikja Íslands hér á landi. Handbolti 21. september 2012 09:45
Annað árið í röð dregur lið sig úr keppni korteri fyrir mót | KA/Þór ekki með Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að draga lið KA/Þórs úr efstu deild í kvennahandbolta og senda liðið í 2.deild/Utandeild í staðinn. Norðanmenn sendu frá sér yfirlýsingu í dag vegna málsins. Handbolti 14. september 2012 14:30
Valskonur unnu fyrsta uppgjörið við Fram Valskonur urðu í gær Reykjavíkurmeistarar kvenna eftir 21-17 sigur á Fram í úrslitaleik mótsins sem fór fram í Vodafone Höllinni. Þetta kom fram á heimasíðu Handknattleikssambandsins. Handbolti 12. september 2012 16:30