Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Fyrsta platan frá In Siren

In Siren hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, In Between Dreams. Hljómsveitin er metnaðarfullt samstarf fimm tónlistarmanna í Reykjavík. Þeir koma úr ýmsum áttum og eru meðal annars kenndir við hljómsveitirnar Árstíðir, Ask the Slave, Momentum og Plastic Gods. Hljómi sveitarinnar má líkja við Trúbrot eða bresk bönd eins og Yes, King Crimson og Queen.

Tónlist
Fréttamynd

Ummi gefur út sumarlag

Tónlistarmaðurinn Ummi Guðjónsson hefur sent frá sér lagið Sumarið er komið aftur. Þetta er annað lagið sem hann gefur út af væntanlegri plötu sinni sem kemur út síðar á þessu ári.

Tónlist
Fréttamynd

Ármann úr Who Knew flytur Folding Nicely í Vasadiskó

Á sunnudaginn var mætti söngvarinn Ármann Ingvi Ármannsson í útvarpsþáttinn Vasadiskó. Í liðnum "selebb shuffle" hefur þátturinn hingað til tekið á móti gestum og vasadiskóum þeirra sem hafa svo verið látin renna áfram á "shuffle" á meðan þáttarstjórnandi og gestur spjalla. En auk þess að mæta með mp3-spilarann sinn mætti Ármann vopnaður kassagítar á bakinu.

Tónlist
Fréttamynd

Hugguleg tónlistarhátíð á Rauðasandi í byrjun júlí

Rauðasandur Festival er tónlistarhátíð sem haldin verður í náttúruparadísinni á Rauðasandi í júlí. Þetta er í fyrsta skipti sem hátíðin er haldin. „Við viljum hafa þetta rólega og huggulega hátíð þar sem fólk getur komið og skemmt sér og notið lífsins í fallegri náttúru,“ segir Björn Þór Björnsson, einn skipuleggjenda nýrrar tónlistarhátíðar sem haldin verður á Rauðasandi á Vestfjörðum 6.–8. júlí næstkomandi.

Tónlist
Fréttamynd

Múgsefjun notar kirkjuorgel á nýrri plötu

Sala á nýrri plötu hljómsveitarinnar Múgsefjunar hefst á netinu í dag. Platan er svo væntanleg í verslanir 11. júní. Um er að ræða aðra plötu hljómsveitarinnar en sú fyrsta, Skiptar skoðanir, kom út árið 2008.

Tónlist
Fréttamynd

Sjö tomma frá Retro

Hljómsveitin Retro Stefson hefur sent frá sér sjö tommu vínylplötu með laginu Qween. Á B-hlið plötunnar er að finna endurhljóðblandaða útgáfu af laginu eftir Hermigervil. Hann er einmitt að aðstoða sveitina við upptökur á næstu plötu hennar, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Áætlað er að hún komi út í lok sumars.

Tónlist
Fréttamynd

Vel heppnuð endurkoma Stone Roses

Breska hljómsveitin The Stone Roses spilaði óvænt á sínum fyrstu tónleikum í sextán ár í bænum Warrington á Englandi fyrir skömmu. Sveitin hætti árið 1996 en í fyrra var tilkynnt um endurkomu hennar.

Tónlist
Fréttamynd

Síðasta lag Whitney Houston

Síðasta lagið sem Whitney Houston tók upp áður en hún lést hefur verið gefið út. Það er undir diskóáhrifum og heitir Celebrate. Þar syngur söngkonan sáluga með sigurvegaranum úr American Idol 2007, Jordin Sparks. Lagið mun hljóma í væntanlegri kvikmynd, Sparkle, þar sem Houston leikur móður þriggja systra sem reyna fyrir sér í tónlistarbransanum og leikur Sparks eina þeirra. Um er að ræða endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1976.

Tónlist
Fréttamynd

Blúshátíð snýr aftur eftir gos

Tvær þekktar blússöngkonur frá Chicago og margir af færustu blústónlistarmönnum landsins stíga á svið á Norden Blues Festival sem verður haldin hátíðleg á Hvoli á Hvolsvelli um hvítasunnuhelgina.

Tónlist
Fréttamynd

1860 sendir frá sér lag

Hljómsveitin 1860 hefur sent frá sér lagið Go Forth sem er tekið af væntanlegri plötu sem kemur út í haust. Sagan, frumburður sveitarinnar, kom út í fyrra og innihélt lögin Snæfellsnes, Orðsending að austan og For You, Forever sem komust öll á topp 10 á vinsældarlista Rásar 2. Hljómsveitin var einnig tilnefnd sem bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum og sem nýliðar ársins á hlustendaverðlaunum X-ins 977.

Tónlist
Fréttamynd

Erfitt en gaman á Evróputúr

"Þetta verður erfitt en ógeðslega gaman,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco. Rokksveitin er á leiðinni í mánaðarlangt tónleikaferðalag um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 30. maí. Stutt er síðan fyrsta platan, A Long Time Listening, kom út á þeirra eigin vegum í Þýskalandi, Austurríki og Sviss, auk þess sem hún kom út stafrænt á iTunes, Amazon og víðar.

Tónlist
Fréttamynd

Anna Þorvalds frumflytur ný rafverk í kvöld

Tónleikaröðin Flakk hefst á Listahátíð í Reykjavík í kvöld með tónleikum Önnu Þorvaldsdóttur. Listahátíð í Reykjavík býður upp á tónleika þriggja tónskálda sem kynna nýja tónlist sína.

Tónlist
Fréttamynd

Listin að koma íslenskri tónlist inn hjá iTunes, Amazon og Spotify

Stafræn dreifing verður aðalumræðuefni fræðslukvölds ÚTÓN, útflutningsmiðstöð íslenskrar tónlistar, sem fer fram í Norræna húsinu í kvöld. Þar verður leitast við að svara því hvernig tónlistarmenn geta komið tónlist sinni að á iTunes, Amazon og fleiri netveitum sem selja tónlist. Einnig á streymiþjónustur á borð við Spotify, sem hefur hvorki meira né minna en 10 milljón notendur.

Tónlist
Fréttamynd

Adele með tólf verðlaun

Adele var sigurvegari Billboard-tónlistarverðlaunanna sem voru haldin í Los Angeles. Hún hlaut tólf verðlaun, þar á meðal sem besti flytjandinn og fyrir bestu plötuna, 21. Söngkonan, sem hafði verið tilnefnd til átján verðlauna, var ekki viðstödd verðlaunahátíðina.

Tónlist
Fréttamynd

Nasatónleikar GusGus á DVD

"Okkur þótti viðeigandi að skrásetja þessa tónleika og gefa út fyrir aðdáendur okkar til að eiga,“ segir Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi veira, meðlimur sveitarinnar GusGus sem tók upp tónleika sína á Nasa um síðustu helgi.

Tónlist
Fréttamynd

Háski skapar rokkstemningu

Þungarokkssveitin Skálmöld er nú við upptökur á annari breiðskífu sinni, Börnum Loka. Í hljóðverinu má finna risastóran grjóthnullung, sem hljómsveitarmeðlimir nefna Háska og var fluttur þangað með erfiðleikum fyrir tveimur árum. Snæbjörn Ragnarsson, bassaleikari hljómsveitarinnar, segir hlutverk grjótsins vera að skapa réttu stemninguna í hljóðverinu.

Tónlist
Fréttamynd

Þrjú hundruð hitta goðsögn

"Við erum búnir að reyna að fá hann í mörg ár og loksins hafðist það,“ segir Sindri Már Heimisson, framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins.

Tónlist
Fréttamynd

Fimmtán á Music Mess

Fimmtán hljómsveitir hafa verið bókaðar á tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí. Meðal þeirra sem hafa bæst í hópinn eru Tilbury, Man Made sem er leidd af Nile Marr, syni Johnny Marr úr The Smiths, söngkonan Laura J. Martin og rokkararnir í Reykjavík!. Áður hafði verið tilkynnt um þátttöku Legend, Benna Hemm Hemm, My Bubba & Mi og fleirum.

Tónlist
Fréttamynd

Beastie Boys aftur á lista

Sala á plötum hljómsveitarinnar Beastie Boys hefur stóraukist eftir andlát Adams "MCA“ Yauch. Sveitin á sjö breiðskífur á Billboard-listanum um þessar mundir.

Tónlist
Fréttamynd

Hjálmar ferðast um Evrópu

Hljómsveitin Hjálmar verður á faraldsfæti í sumar. Hún kemur fram á tónlistarhátíðunum Festival de-affaire og Into The Great Wide Open í Hollandi, Bazant Pohoda-hátíðinni í Slóvakíu, Ilmiö-hátíðinni í Finnlandi og á Íslandshátíð í Mobryggja í Noregi. Eins eru í undirbúningi tónleikar í Moskvu og Grænlandi. Hér á Íslandi spila Hjálmar í annað sinn á Þjóðhátíð í Eyjum föstudaginn 3. ágúst.

Tónlist
Fréttamynd

Þakkar fyrir stuðninginn

Ad-Rock, eða Adam Horovitz, úr Beastie Boys hefur þakkað aðdáendum hljómsveitarinnar fyrir stuðninginn eftir að félagi hans, Adam Yauch, féll frá. Hann lést á föstudaginn, 47 ára, eftir þriggja ára baráttu við krabbamein.

Tónlist
Fréttamynd

Sigur Rós fetar í fótspor Bjarkar

Hljómsveitin Sigur Rós spilar á Airwaves-hátíðinni í fyrsta sinn í ellefu ár þegar hún stígur á svið í Nýju Laugardalshöllinni 4. nóvember, á síðasta degi hátíðarinnar. Sigur Rós spilaði síðast á Airwaves í Listasafni Reykjavíkur árið 2001.

Tónlist