Fréttir

Fréttamynd

Geta stýrt vél með hugarafli

Svissneskum vísindamönnum hefur tekist að gera lömuðu fólki kleift að stýra fjarlægum vélbúnaði með hugaraflinu einu saman.

Erlent
Fréttamynd

Bráðabirgðastjórn í sumar

Ákveðið hefur verið að þingkosningar verði haldnar í Hollandi 12. september. Þangað til verður bráðabirgðaríkisstjórn við völd undir forystu Marks Rutte forsætisráðherra, sem sagði af sér á mánudag.

Erlent
Fréttamynd

Telja fundinn legstað Magnúsar lagabætis

Rannsóknir á dómkirkjunni í Bergen í Noregi hafa leitt í ljós það sem menn telja vera hinsta hvílustað Magnúsar lagabætis Noregskonungs. Magnús var sonur Hákonar gamla Hákonarsonar og ríkti yfir Noregi frá 1263 til 1280.

Innlent
Fréttamynd

Staða sendinga sést í snjallsíma

Eimskip hefur tekið í notkun nýtt snjallforrit (eða „app“) sem býður viðskiptavinum fyrirtækisins upp á að fá nákvæmar rauntímaupplýsingar í snjallsíma um stöðu sendinga.

Innlent
Fréttamynd

Leiðin frá hugmynd að frumgerð oft löng

Sjálfvirkur pitsuskeri, boltakastari fyrir lata hundaeigendur og golfkerra framtíðarinnar voru meðal nýstárlegra tækja sem gaf að líta á sýningu verkfræðinema Háskóla Íslands í gær. Um var að ræða prófverkefni í námskeiðinu Tölvustýrður vélbúnaður, en þar fá nemendur að þróa hugmynd og fylgja henni allt fram að fullgerðu tæki.

Innlent
Fréttamynd

Einfaldari aðgangur að fjárstýringu

Innlánamarkaður H.F. Verðbréfa hefur síðustu misseri notið nokkurra vinsælda meðal innlendra fyrirtækja. Innlánamarkaðurinn er aðgengilegur í gegnum upplýsingaveituna Kelduna.is en hann gerir notendum kleift að fá tilboð frá innlánastofnunum í innlán sín til allt að tólf mánaða ávöxtunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bræðurnir munu tapa Bakkavör

Bakkavör Group, móðurfélag rekstrarfélagsins Bakkavarar, mun breyta kröfum sínum á félagið í nýtt hlutafé á næstu dögum. Umbreytingin á sér stað rúmum tveimur árum fyrr en upphaflega var áætlað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nauðasamningur gömlu Sjóvár orðinn endanlegur

Nauðasamningsumleitunum SJ Eignarhaldsfélags, sem áður hét Sjóvá, lauk 3. apríl síðastliðinn. Því er nauðasamningur félagsins orðinn endanlegur. Í honum felst að kröfuhafar fá 7% af 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Töpuðu hálfum milljarði króna

Skjá miðlar ehf., sem meðal annars eiga og reka sjónvarpsstöðina Skjá einn, töpuðu 458 milljónum króna á árinu 2010. Eigið fé félagsins var neikvætt um 154 milljónir króna í lok þess árs. Þetta kemur fram í ársreikningi sem skilað var inn til ársreikningaskrár 14. mars síðastliðinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nýr biskup verður valinn í dag

Nýr biskup þjóðkirkju Íslands verður valinn í dag. Talningu í seinni umferð atkvæðagreiðslu um biskupskjörið lýkur seinni partinn, en hún hefst klukkan tíu. Talningin fer fram á háalofti Dómkirkjunnar, líkt og hefur tíðkast áður.

Innlent
Fréttamynd

Þingmál ná ekki í nefndir

Algjör óvissa ríkir um hvernig starfi Alþingis verður háttað fram á vor. Alls liggja 93 stjórnarfrumvörp fyrir Alþingi og 29 stjórnartillögur. Ljóst er að ekki tekst að ljúka þeim málum fyrir sumarleyfi, en þingi á samkvæmt dagskrá að ljúka 31. maí.

Innlent
Fréttamynd

Niðurstöðu að vænta í SpKef deilu í síðasta lagi 10. maí

Úrskurðanefnd um fjárhagslegt uppgjör milli Landsbankans og íslenska ríkisins vegna yfirtöku bankans á SpKef mun skila niðurstöðu sinni í síðasta lagi 10. maí næstkomandi. Málflutningur deiluaðila fyrir úrskurðarnefndinni fór fram 28. og 29. mars síðastliðinn og hefur hún sex vikur frá lokum hans til að skila niðurstöðu. Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður, sem er formaður nefndarinnar, segir niðurstöðuna ekki liggja fyrir en að það styttist í hana.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Búist við sölu Actavis í dag eða á morgun

Gengið verður frá sölu á Actavis til bandaríska samheitalyfjafyrirtækisins Watson í dag eða á morgun ef marka má frétt Financial Times um málið frá því í gær. Samkvæmt heimildum blaðsins verður kaupverðið um 4,5 milljarðar evra, jafngildi 750 milljarða íslenskra króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hlutafé aukið um 300 milljónir í desember

Hlutafé ÍAV ehf. var aukið um 300 milljónir króna um miðjan desember síðastliðinn. Í tilkynningu til fyrirtækjaskráar kemur fram að kaupendur hins nýja hlutafjár sé Íslenskir aðalverktakar ehf., sem áttu allt hlutafé í verktakafyrirtækinu áður. Um er að ræða 37,5% aukningu á hlutafénu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vörusala Össurar jókst um 5%

Össur hagnaðist um 10 milljónir Bandaríkjadala, jafngildi 1,3 milljarða íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Til samanburðar nam hagnaður 8 milljónum dala á fyrsta ársfjórðungi 2011.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Á sakaferil allt frá árinu 1999

Maður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í ársfangelsi fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, önnur umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Innlent
Fréttamynd

RÚV fær enga styrki frá ESB

RÚV tekur ekki við styrkjum eða öðrum fjármunum frá Evrópusambandinu eða stofnunum sem því eru tengdar til að kynna starfsemi ESB eða til fréttaöflunarferða eða dagskrárgerðar.

Innlent
Fréttamynd

Umfangsmikil rannsókn á starfi fréttamanna

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun veita eina milljón króna til hóps íslenskra fræðimanna vegna þátttöku þeirra í alþjóðlegri rannsókn meðal blaða- og fréttamanna. Katrín Jakobsdóttir ráðherra ákvað fjárveitinguna á mánudag.

Innlent
Fréttamynd

Getur þýtt gjaldþrot eða frekari aðlögun

Þau fyrirtæki í sjávarútvegi sem hafa þegar farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu horfa mörg hver fram á frekari fjárhagslega erfiðleika, nái frumvarp til laga um veiðigjöld fram að ganga. Lítil og meðalstór fyrirtæki, mörg í smærri sjávarbyggðum, lenda helst í vanda en stærstu útgerðirnar þola hækkað veiðigjald, en það takmarkar þróun og vöxt félaganna.

Innlent
Fréttamynd

Tölvuöryggi í viðskiptum rætt

Tölvuöryggi í viðskiptum er viðfangsefni hádegisfundar Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, á morgun fimmtudag. Fundurinn, sem hefst klukkan tólf í ráðstefnusal Þjóðminjasafns við Suðurgötu, á að standa í klukkustund.

Innlent
Fréttamynd

Barist hart um olíu og landamæri

„Nágrannar okkar í Khartoum hafa lýst yfir stríði gegn lýðveldinu Suður-Súdan,“ sagði Salva Kiir, forseti Suður-Súdans, í Kína í gær á fundi sínum með Hu Jintao, forseta Kína.

Erlent
Fréttamynd

Segir engan vafa leika á sök ákærða

Enginn vafi er á að maður sem er ákærður fyrir að hafa myrt miðaldra hjón í nágrenni Óðinsvéa fyrir rúmu ári sé sekur. Þetta segir saksóknarinn í málinu, sem hefur vakið mikla athygli í Danmörku.

Erlent
Fréttamynd

Tóbaksrisi í mál vegna bannsins

Tóbaksrisinn Philip Morris mætir norsku lýðheilsustofnuninni fyrir rétti í júní. Fulltrúar Philip Morris telja að bann við að hafa tóbak sýnilegt í verslunum í Noregi brjóti í bága við reglur EES um frjálst vöruflæði. Bannið tók gildi í janúar 2010.

Erlent
Fréttamynd

Erfitt að spá fyrir um niðurstöðu í maí - fréttaskýring

Í fyrstu umferð frönsku forsetakosninganna á sunnudag gerðist það í fyrsta sinn að sitjandi forseti varð undir í atkvæðagreiðslunni. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, var með næstflest atkvæði í kosningunni, og 27 prósenta fylgi. Í fyrsta sætinu var François Hollande, með 28,44 prósenta fylgi. Í frönskum fjölmiðlum er því haldið fram að staða Hollande sé sterkari en forsetans fyrir kosningarnar 6. maí þegar kosið verður á milli þeirra, enda hafi hann haft betur í fyrstu umferðinni.

Erlent