Fréttir
Undirbjóða vinnu annarra útlendinga Formaður Samiðnar segir dæmi um að erlendir starfsmenn frá nýjum aðildarríkjum EES, sem koma til landsins á eigin vegum, reyni að hafa vinnu af öðrum útlendingum með undirboðum. Innlent 20.6.2006 18:20
Gífurlegt tjón hjá Alcan Framleiðsla álversins í Straumvík hefur hrunið um helming eftir alvarlega rafmagnsbilun. Þrjá til fjóra mánuði tekur að koma framleiðslunni í eðlilegt horf og gæti tap vegna orðið á annan milljarð. Innlent 20.6.2006 18:15
Listasafn opnað með viðhöfn í París Jacques Chirac, Frakklandsforseti, opnaði í dag nýtt listasafn í París. Þetta mun vera fyrsta stóra safnið sem tekið er í notkun þar í borg í frá því 1977 þegar Pompidou safnið var opnað. Erlent 20.6.2006 17:56
Einn stofnenda ETA handtekinn Einn stofnenda ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska, var meðal þeirra 12 sem handteknir voru í Frakklandi og á Spáni í dag þegar áhlaup var gert á höfuðstöðvar glæpasamtaka í löndunum tveimur. Erlent 20.6.2006 17:51
Þjóðvarðliðar sendir til New Orleans Borgarstjórinn í New Orleans í Bandaríkjunum kallaði eftir aðstoð þjóðvarðliða í gær svo hægt yrði að stöðva öldu ofbeldis í borginni. Fimm ungmenni voru skotnir til bana við bifreið sína um liðna helgi og er árásin sú mannskæðasta í New Orleans í 11 ár. Erlent 20.6.2006 17:46
Gert ráð fyrir 4,7% hagvexti á árinu Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,7% á árinu samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá Fjármálaráðuneytisins. Innlent 20.6.2006 17:38
Erfðabreytileiki eykur hættu á brjóstakrabbameini Rannsókn sem Íslensk erfðagreining gerði tengir erfðabreytileika við aukna hættu á brjóstakrabbameini. Grein um rannsóknina var birt í dag í læknatímaritinu PloS Medicine. Rannsóknin náði til eitt þúsund kvenna sem hafa greinst með brjóstakrabbamein á Íslandi. Innlent 20.6.2006 17:33
Samningur Reykjavíkurborgar og Bauhaus undirritaður Í dag var undirritaður samningur um sölu borgarinnar á umdeildri lóð við Vesturlandsveg til þýska byggingavöruverslunarfyrirtækisins Bauhaus. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og fulltrúar alþjóðlegu verslanakeðjunnar undirrituðu samninginn um fjögurleytið í Höfða. Innlent 20.6.2006 17:08
Ástandið í Sómalíu Sameinuðu þjóðirnar kanna hvort ástandið í Sómalíu sé tryggt eftir mannskæð átök undanfarið. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna halda til höfuðborgarinnar, Mogadishu, seinna í vikunni til að ræða við fulltrúa íslömsku dómstólanna sem náðu völdum í borginni fyrr í mánuðinum. Erlent 20.6.2006 17:00
Bandarísku hermennirnir látnir Tveir bandarískir hermenn, sem saknað hafði verið frá því á föstudag, fundust skammt suður af Bagdad í morgun. Lík mannanna báru þess merki að þeir hefðu verið pyntaðir. Uppreisnarhópur tengdur al Qaeda samtökunum sagðist hafa numið mennina á brott frá landamærastöð þar sem þeir unnu. Erlent 20.6.2006 13:52
Dagbrún eignast 96,47 prósent í EJS Dagsbrún hefur gert samning við hóp hluthafa EJS um kaup á 21,45 prósentum hlutafjár hlutafé í EJS fyrir 85,8 milljónir króna að nafnvirði. Gengi hlutanna er 5,23. Hluthafar bréfa í EJS eru 343 talsins. Viðskipti innlent 20.6.2006 13:28
Festa lífeyrissjóður stofnaður á Akranesi Í gær var haldinn á Akranesi stofnfundur Festu lífeyrissjóðs. Sjóðurinn varð til við sameiningu Lífeyrissjóðs Vesturlands og Lífeyrissjóðs Suðurlands. Innlent 20.6.2006 13:21
Samstök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi Samtök atvinnulífsins og ASÍ hafa komist að samkomulagi um tillögur til stjórnvalda um styrkingu vinnumarkaðarins, þá fyrst og fremst í tengslum við erlend þjónustufyrirtæki og starfsfólk. Frá þessu greindi Halldór Grönvold nú um hádegi en samkomulagið verður tilkynnt stjórnvöldum um klukkan þrjú í dag. Innlent 20.6.2006 12:59
Nýr aðstoðarmaður félagsmálaráðherra Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Hann mun hefja störf þegar í stað. Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra og mun hefja störf þegar í stað. Innlent 20.6.2006 12:45
Gervifrjóvganir borga sig Breskir tölfræðingar hafa reiknað út að kostnaðurinn við gervifrjóvganir borgi sig margfalt fyrir breska ríkið, þegar tillit er tekið til framlags barnsins uppkomins til þjóðarframleiðslu og skattborgana. Erlent 20.6.2006 11:32
Færeyski togarinn Réttað verður á Eskifirði í dag, yfir skipstjóranum á færeyska togaranum, sem varðskipið Óðinn tók suðaustur af landinu í fyrrinótt. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið að veiðum eru brotin margvísleg. Innlent 20.6.2006 11:28
Lögreglan gómar innbrotsþjófa Lögreglumenn gómuðu tvo innbrotsþjófa á vettvangi í atvinnuhúsnæði í austurborginni í nótt, eftir einskonar fyrirsát. Innlent 20.6.2006 11:22
Borgarstjóri rennir fyrir lax Laxveiðin í Elliðaám hófst klukkan sjö í morgun með því að nýi borgarstjórinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson renndi fyrir laxi. Innlent 20.6.2006 11:12
Fótboltabullur handteknar í Köln Fjórir stuðningsmenn enska landsliðsins í fótbolta voru handteknir fyrir skrílslæti í Köln í nótt, þegar eftirvænting þeirra eftir leik Englendinga gegn Svíþjóð fór úr böndunum. Sextán lögreglumenn slösuðust í átökunum og þurfti einn að leggjast inn á sjúkrahús. Erlent 20.6.2006 10:36
Snæugla útskrifuð úr Húsdýragarðinum Snæuglu verður sleppt á morgun eftir 10 mánaða endurhæfingu í Húsdýragarðinum. Til stendur að sleppa henni á sama stað og hún fannst, á Hólmavík. Innlent 20.6.2006 18:00
Talið að tjónið nemi hundruðum milljóna króna 120 ker af 160 kerum voru tekin úr rekstri í kerskála 3 Í álveri Alcan í Straumsvík í kvöld. Alvarleg bilun varð á rafbúnaði sem olli níu klukkustunda straumleysi fyrr í dag og því var ákveðið að taka kerin úr rekstri. Straumleysið má rekja til bilunar í spennum í aðveitustöð en ekki er enn vitað hvað olli þeirri bilun. Innlent 19.6.2006 23:27
Láta ekki Alþjóðahvalveiðiráðið stoppa sig Sjávarútvegsráðherra segir að Íslendingar muni hefja hvalveiðar í atvinnuskyni hvort sem aukinn meirihluti Alþjóðahvalveiðiráðsins styður þær eða ekki. Hvalveiðisinnar unnu táknrænan sigur á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins þegar Innlent 19.6.2006 23:16
Ákærður fyrir morð á ítölskum njósnara Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir morð á ítalska leyniþjónustumanninum Nicola Calipari við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. Erlent 19.6.2006 22:34
Málverk selt á 10 milljarða Málverk austurríska málarans Gustav Klimt sem Nasistar stálu á valdatíma sínum í Þýskalandi var selt í New York í gær, að því er talið er, fyrir jafnvirði rúmra 10 milljarða íslenskra króna. Málverkið er eitt fjögurra verka Klimt sem Nasistar hrifsuðu til sín. Erlent 19.6.2006 22:31
Varað við hryðjuverkamanni 2003 Bretar máttu vita þegar árið 2003 að einn fjögurra hryðjuverkamanna, sem átti þátt í dauða 52 í hryðjuverkaárás á Lundúnir í fyrra, væri maður sem réttast væri að hafa gætur á. Bandarísk stjórnvöld vöruðu þá bresku leyniþjónustuna við höfuðpaurnum sem þá þegar var bannað að fljúga til Bandaríkjanna. Erlent 19.6.2006 22:28
3 bandarískir hermenn ákærðir fyrir morð Þrír bandarískir hermenn hafa verið ákærðir fyrir morð á þremur Írökum sem voru í haldi hermanna vegna aðgerða hersveitar í síðasta mánuði. Hermennirnir eru einnig ákærðir fyrir að hafa reynt að koma í veg fyrir að rannsókn færi fram. Erlent 19.6.2006 22:22
54% þjóðarinnar vill segja upp varnarsamningnum Um 54% þjóðarinnar er hlynnt því að Íslendingar segi upp varnarsamningum við Bandaríkin en tæp 25% eru andvíg. Þetta kemur fram í nýlegri Gallupkönnun sem IMG Gallup vann fyrir Helga Hjörvar, þingmann Samfylkingarinnar. Innlent 19.6.2006 22:10
Lögreglan á Selfossi lýsir eftir vitnum Lögreglan á Selfossi lýsir eftir vitnum að líkamsárás og tilraun til nauðgunar á Selfossi í byrjun júní. Ráðist var á stúlku um tvítugt og telur hún að sér hafi verið veitt eftirför frá skemmtistað í bænum að heimili sínu. Innlent 19.6.2006 19:26
Abramovitsj kaupir í Rússlandi Millhouse Capital, fjárfestingafélag rússneska milljarðamæringsins Romans Abramovitsj, eiganda breska knattspyrnufélagsins Chelsea, hefur samþykkt að kaupa allt að 41 prósents hlut í rússneska námu- og stálfyrirtækin Evraz Group. Hluturinn metinn á 3,2 milljarða Bandaríkjadali, jafnvirði rúmlega 240 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 19.6.2006 19:34
Sveitafélög geta lítið dregið úr framkvæmdum Bæjarstjórar stærstu sveitarfélaga landsins segja sveitarfélögin lítið geta dregið úr framkvæmdum eins og forsætisráðherra lagði til í 17. júní ræðu sinni. Þær framkvæmdir sem eru í gangi séu til að sinna eðlilegri þjónustu í ört stækkandi bæjarfélögum. Innlent 19.6.2006 19:22