
Írland

Einn látinn og nokkur hundruð þúsund heimili án rafmagns
Maður er látinn og yfir 725 þúsund heimili og aðrar húseignir voru án rafmagns á Írlandi eftir að óveðrið Eowyn reið yfir Írland og Bretlandseyjar í gær.

Rauðar viðvaranir vegna Éowyn
Óveðrið Eowyn gengur nú yfir Bretlandseyjar og Írland er veðrið þegar farið að valda vandræðum. Þannig hefur fjölmörgum flugferðum verið aflýst á flugvöllunum í Glasgow, Edinborg og í Dyflinni.

Írar undirbúa sig fyrir mesta óveður í manna minnum
Írar undirbúa komu stormsins Éowyn sem nálgast strendur landsins. Búist er við að stormurinn muni hafa alvarlegar afleiðingar en rauð veðurviðvörun verður í gildi á öllu landinu.

Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum
Breskir veðurfræðingar hafa gefið út rauða viðvörun á norðurhluta Írlands og í Skotlandi vegna öflugrar lægðar sem liggur vestur af Bretlandseyjum. Búist er við mjög öflugum vindhviðum á Bretlandseyjum á morgun og hefur einnig verið varað við mögulegum hvirfilbyljum vegna lægðarinnar.

Verður forsætisráðherra Írlands á ný
Írska þingið kemur saman til fundar á ný í dag þar sem skipaður verður nýr forsætisráðherra eftir þingkosningarnar sem fram fóru í lok nóvember. Micheál Martin, leiðtogi Fianna Fáil, mun þar taka við embætti forsætisráðherra af Simon Harris, leiðtoga Fine Gael, sem mun taka við embætti aðstoðarforsætisráðherra.

Linda Nolan látin
Írska söngkonan Linda Nolan er látin, 65 ára að aldri. Hún gerði garðinn frægan með sveitinni The Nolans sem átti fjölda smella á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum
Flugfélagið Ryanair hefur gert ákall eftir að farþegar sem ferðast um evrópska flugvelli megi einungis kaupa tvo drykki fyrir flugtak. Með takmörkuninni yrði komið í veg fyrir að ölvaðir farþegar yllu truflun um borð.

Ísrael lokar sendiráði sínu á Írlandi
Ísraelsk stjórnvöld hafa tilkynnt um að sendiráði Ísraels í Dyflinni á Írlandi verði lokað. Utanríkisráðuneytið segir það helst koma til vegna „öfgafullrar“ og „andsemitískrar“ stefnu írskra stjórnvalda í garð Ísraels.

Enginn ætti að lesa skilaboðin sem honum hafi borist
Írski leikarinn Barry Keoghan hefur fengið sig fullsaddan af hatri í hans garð á netinu. Hann sættir sig ekki við að fólk sitji um heimili sonar hans og dreifi fölskum sögusögnum. Keoghan hætti nýlega með bandarísku söngkonunni Sabrinu Carpenter en sá orðrómur gekk að hann hefði haldið framhjá henni.

Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“
„Ég myndi gefa honum risa samning því hann er hverrar krónu virði,“ segir Guðmundur Hreiðarsson markmannsþjálfari írska landsliðsins um lærisvein sinn hjá landsliðinu sem hefur gripið tækifærið með Liverpool og slegið í gegn.

Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni
Höfuðpaur skipulagðra glæpasamtaka er á meðal þrettán frambjóðenda sem bítast um fjögur sæti miðborgar Dyflinnar á írska þinginu. Hann var nýlega sýknaður af aðild að morði sem hratt af stað gengjastríði árið 2016.

Mourinho hjálpaði lærisveinum Damiens Duff að verða Írlandsmeistarar
Damien Duff stýrði liði Shelbourne til fyrsta deildarmeistaratitilsins á Írlandi í 18 ár. Hann sótti innblástur til tíma síns sem leikmanns undir José Mourinho, sem sendi liðinu myndskilaboð fyrir leik og hvatti þá til sigurs.

Morðrannsókn hafin í dularfullu máli átta ára drengs
Forsætisráðherra Írlands tjáir sig um dularfullt mál átta ára drengs sem gæti hafa verið týndur í allt að tvö ár þrátt fyrir að aðeins hafi verið tilkynnt um hvarf hans í lok ágúst. Hann veltir því fyrir sér hvernig slíkt geti gerst en gert er ráð fyrir því að drengurinn hafi verið myrtur.

Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi
Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman.

Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta
Evrópudómstóllinn hefur snúið við úrskurði neðra dómstigs í máli sambandsins gegn risafyrirtækinu Apple. Fyrirtækið mun því þurfa að greiða um 14,35 milljarða dala, plús vexti, í skatta.

Vildi fara frá Liverpool
Írski markvörðurinn Caoimhin Kelleher, leikmaður Liverpool, vildi halda á önnur mið í sumar með þá von í brjósti að verða aðalmarkvörður hjá öðru liði. Ekkert varð af brotthvarfi hans frá félaginu og segir Írinn að ákvörðunin hafi ekki verið í sínum höndum.

Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi
Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna.

Gera bíómynd um deilu Roy Keane og Mick McCarthy fyrir HM 2002
Kvikmynd um uppákomuna á HM 2002, þegar Roy Keane yfirgaf herbúðir írska fótboltalandsliðsins, verður frumsýnd næsta sumar.

Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma
Sinéad O'Connor lést af völdum langvinnrar lungnateppu og astma að því er segir á dánarvottorði tónlistarkonunnar, sem lést í fyrra.

Dæmdur fyrir að myrða bróður sinn í útför
Karlmaður hefur verið sakfelldur fyrir að myrða eldri bróður sinn í útför í Kerry-sýslu á Írlandi. Patrick Dooley er sá fjórði til að verða dæmdur fyrir að hafa orðið Thomas Dooley að bana þann 5. október 2022.

Fjör hjá Víkingum í Dublin
Víkingur mætir Shamrock Rovers í seinni leik liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar í Dublin í kvöld. Mikið fjör er hjá stuðningsmönnum Víkinga í Dublin.

Draga ákærur á hendur Towley til baka
Lögreglan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hefur dregið til baka ákæru á hendur írsku konunni Tori Towley, sem var ákærð fyrir sjálfsvígstilraun og áfengisneyslu í síðasta mánuði.

„Mikilvægur dagur fyrir írskan fótbolta“
Heimir Hallgrímsson varð fyrsti kostur írska knattspyrnusambandsins í starf þjálfara karlalandsliðsins fyrr á þessu ári. Nokkur atriði vógu þar þungt. Framkvæmdastjóri írska knattspyrnusambandsins talar um stóran dag í írskum fótbolta.

Biðu í átta mánuði áður en þeir réðu Heimi
Óhætt er að segja að írska knattspyrnusambandið hafi sér sinn tíma í að finna nýjan þjálfara fyrir karlalandsliðið. En hann er nú fundinn; sjálfur Heimir Hallgrímsson.

Heimir tekur við írska landsliðinu
Heimir Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann stýrir Írum í Þjóðadeildinni og undankeppni HM 2026.

Írsk kona ákærð fyrir sjálfsvígstilraun og áfengisneyslu í Dubai
Ung írsk kona hefur verið ákærð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir tilraun til sjálfsvígs. Stjórnvöld á Írlandi hyggjast beita sér fyrir lausn hennar.

„Fyrir framan okkar áhorfendur erum við allt annað lið og þeir munu sjá það“
Stephen Bradley segir sína menn í Shamrock Rovers hafa fengið færi til að stela sigrinum gegn Víkingi í kvöld. Liðin mætast aftur eftir viku og þar munu Írarnir sýna allt aðra hlið.

Írar kjósa til Evrópuþings
Næststærstu lýðræðislegu kosningar heims á eftir þeim indversku fara nú fram í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsnins. Kosið er um fleiri en sjöhundruð sæti í Evrópuþinginu fram á sunnudag. Írar ganga til kosninga til Evrópuþingsins í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan sjö í morgun og loka þeir klukkan tíu. Írar senda fjórtán fulltrúa á þingið en alls sitja þar 720 fulltrúar frá öllum aðildarríkjum sambandsins.

Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds
Írska skyndibitakeðjan Supermac hafði betur gegn skyndibitarisanum McDonalds í dómsmáli sem sneri að notkun vörkumerkisins Big Mac. Samkvæmt dóminum má McDonalds ekki nota vörumerkið í tengslum við kjúklingaborgara lengur.

Ætluðu að draga sig úr Eurovision fram á síðustu stundu
Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) tókst af afstýra því á síðustu stundu að sex lönd hættu við þátttöku í Eurovision lokakeppninni í ár. Þetta kemur fram í umfjöllun norska blaðsins VG þar sem segir að 25 mínútum fyrir keppni hafi allt stefnt í að löndin myndu ekki taka þátt.