
Georgía

Tólf fundust látin í georgískum skíðabæ
Tólf manns hafa fundist látin í húsi í georgíska skíðabænum Gudauri. Talið er að fólkið hafi látist af völdum kolmónoxíðseitrunar.

Fótboltamaðurinn umdeildi orðinn forseti Georgíu
Mikheil Kavelashvili var í dag kjörinn forseti Georgíu. Hann var einn í framboði. Hann er sagður hallur undir Kremlið og andvígur áframhaldandi aðildarviðræðum landsins að Evrópusambandinu.

Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu
Þingkosningarnar sem fóru fram í Georgíu í haust fóru ekki heiðarlega fram og þær ætti að endurtaka, að mati Evrópuþingsins. Það kallar ennfremur eftir refsiaðgerðum gegn leiðtogum stjórnarflokksins Georgíska draumsins.

Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City
Stjórnarflokkur Georgíu, Georgíski draumurinn, hefur tilnefnt Mikheil Kavelashvili sem forsetaefni sitt í kosningum sem fara fram þar í landi 14. desember næstkomandi.

Telja opinber úrslit kosninganna í Georgíu ekki standast
Rannsóknafyrirtæki sem gerði útgönguspá fyrir þingkosningarnar í Georgíu um síðustu helgi segir opinber úrslit sem voru gefin út „tölfræðilega ómöguleg“. Stjórnarandstaðan hvetur til frekari mótmæla gegn kosningaúrslitanna.

Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu
Saksóknarar í Georgíu segjast nú rannsaka ásakanir stjórnarandstöðunnar í landinu um að úrslitum þingkosninga sem fóru fram um helgina hafi verið hagrætt. Stjórnarandstaðan og forseti landsins viðurkenna ekki úrslitin.

Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum
Stjórnarandstaðan í Georgíu véfengir úrslit kosninga sem haldnar voru þar í landi í gær. Embættismenn segja Georgíska drauminn, stjórnarflokk ríkisins, líklega hafa sigrað kosningarnar.

Hótar því að banna georgísku stjórnarandstöðuna
Stofnandi Georgíska draumsins, stjórnarflokks Georgíu, ítrekaði í gær hótanir sínar um að banna stjórnarandstöðuflokkana vinni flokkur hans sigur í þingkosningum um helgina. Niðurstöður þeirra ráða því hvort Georgía leiti aftur í faðm Rússlands eða efli tengslin til vesturs.

Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki
Salome Zourabichvili, forseti Georgíu, hefur neitað að undirrita lög gegn réttindum hinsegin fólks sem samþykkt voru á þinginu í síðasta mánuði.

Dælir peningum í landsliðsmenn eftir sigurinn sögulega
Bidzina Ivanishvili, fyrrverandi forsætisráðherra Georgíu hefur ákveðið að láta því sem nemur rétt tæpum einum og hálfum milljarði íslenskra króna af hendi til karlaliðs Georgíu í fótbolta eftir sögulegan sigur liðsins á Portúgal á Evrópumótinu í fótbolta í gær.

Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn
Stjórnarflokkur Georgíu nýtti aukinn meirihluta sinn á þingi til þess að ógilda neitunarvald sem forseti landsins beitti á umdeild fjölmiðlalög í dag. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt lögunum undanfarnar vikur.

Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum
Forseti Georgíu beitti í dag neitunarvaldi gegn umdeildum fjölmiðlalögum sem samþykkt voru i þinginu í vikunni og komið hafa af stað mótmælaöldu í landinu.

Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu
Utanríkisráðherra telur ekki óeðlilegt að sýna georgískum mótmælendum umdeildra laga samstöðu. Hann furðar sig á misvísandi yfirlýsingum forseta georgíska þingsins eftir fund sendinefndar ráðherrans með honum.

Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson spurði forsætisráðherra að því hvort það hafi verið með vilja og vitund ríkisstjórnarinnar, að utanríkisráðherra hafi farið til Georgíu og tekið þátt í mótmælum. Bjarni sagði Ísland og aðrar þjóðir sem þarna væru ekki taka afstöðu gegn þarlendum stjórnvöldum.

Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, lýsir áhyggjum af því að nýsamþykkt lög um félagasamtök og fjölmiðla í Georgíu hafi neikvæð áhrif á stöðu landsins í hinum frjálsa heimi. Hún er stödd í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eystrasaltsríkjanna.

„Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu
Georgíska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp í anda rússneskra laga sem hafa verið notuð til þess að bæla niður andóf og þagga niður í fjölmiðlum. Þúsundir manna mótmæltu frumvarpinu við þinghúsið á meðan atkvæðagreiðsla fór fram.

„Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli
Georgísk þingnefnd afgreiddi umdeild „rússnesk lög“ á rétt rúmri mínútu í morgun þrátt fyrir fjölmenn mótmæli við þinghúsið um helgina sem héldu áfram í dag. Mikil lögregluviðbúnaður er við þinghúsið og frásagnir eru um harkaleg átök lögreglu og mótmælenda.

Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn
Gífurlega umfangsmikil mótmæli fóru fram í Tíblisi í Georgíu í gær. Þar hafa fjöldi mótmælenda komið saman á undanförnum vikum vegna umdeildra laga sem yfirvöld vinna að. Mótmælin virðast hafa náð nýjum hæðum í gærkvöldi.

Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Georgíu þar sem yfirvöld vinna að því að samþykkja ný og mjög svo umdeild lög. Mótmælendum hefur verið mætt af mikilli hörku og hefur komið átaka í Tíblisi bæði fyrir utan þinghúsið og þar inni.

Guðni fékk glæsilegar móttökur í Georgíu
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er mættur til Georgíu þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur í Tbilisi frá Salome Zourabichvili forseta Georgíu.

Úkraínu boðið að hefja aðildarviðræður við ESB
Leiðtogaráð Evrópusambandsins bauð í dag Úkraínu og Moldóvu að hefja formlegar viðræður um inngöngu í sambandið. Það kom fram á fundi leiðtoganna sem stendur nú yfir í Brussel.

Báðust afsökunar á að hafa dregið rússneskan aðdáanda á svið
Bandaríska hljómsveitin The Killers hefur beðið aðdáendur sína afsökunar eftir að sveitin dró rússneskan aðdáenda á svið á tónleikum sínum í Georgíu við Svartahaf síðastliðinn þriðjudag.

Fallið frá fyrirhugaðri löggjöf um „erlenda aðila“
Draumaflokkurinn, stærsti þingflokkur Georgíu, hefur ákveðið að draga til baka frumvarp um „erlenda aðila“ eftir hörð mótmæli. Flokkurinn sagðist í yfirlýsingu vilja draga úr átökum í þjóðfélaginu.

Hyggja á lagasetningu sem ESB segir ósamræmanlega gildum sambandsins
Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í Tbilisi, höfuðborg Georgíu, í dag til að mótmæla fyrirhuguðum lögum sem gagnrýnendur segja ógna málfrelsi í landinu. Óeirðarlögregla var kölluð til og beitti vatnsbyssum og piparúða gegn mótmælendum.

Mótmælendur ruddust inn í þinghús Georgíu
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Tiblisi, höfuðborg Georgíu, í kvöld. Mótmælendur hafa grýtt lögregluþjóna, kastað bensínsprengjum að þeim og reynt að ryðja sér leið inn í þinghúsið. Öryggissveitir hafa meðal annar beitt stórum vatnsbyssum og táragasi gegn mótmælendum.

Rússar flýi herkvaðningu Pútíns
Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn.

Heimurinn farinn að átta sig á að bregðast þurfi við: „Þetta gengur lengra en tvíhliða stríð og smáar skærur“
Sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi segir mikilvægt að Georgía fái aðild að Atlantshafsbandalaginu, ekki síst í ljósi ástandsins í Úkraínu. Georgíumenn finni til með Úkraínumönnum á hátt sem aðeins þeir sem hafa lent í innrásarhernum geta gert. Ljóst sé að fleiri lönd séu í hættu takist ekki að stöðva Rússa.

Styrkja tengslin við Ísland og ræða aðild að NATO í ljósi stríðsins
Georgísk sendinefnd er nú stödd á hér á landi til að styrkja tengslin milli landanna og ræða aðild Georgíu að Atlantshafsbandalaginu. Formaður utanríkismálanefndar þingsins þar í landi segir það mikilvægt, ekki síst í ljósi stöðunnar í Úkraínu.

Forsætisráðherrann segir af sér eftir handtöku stjórnarandstöðuleiðtoga
Giorgi Gakahria, forsætisráðherra Georgíu, hefur sagst ætla að segja af sér embætti eftir að leiðtogi stjórnarandstöðu landsins var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Gakahria segist grípa til þessa ráðs í tilraun til að koma í veg fyrir frekari klofning meðal þjóðarinnar.

Georgíumenn mótmæla niðurstöðu þingkosninga
Þúsundir Georgíumanna hafa flykkst út á götur Tbilisi, höfuðborgar landsins, til að mótmæla niðurstöðum þingkosninga sem fóru fram þann 31. október síðastliðinn.