
Georgía

Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.

Sóttvarnaryfirvöld í Georgíu óttast að nú verði veldisvöxtur í útbreiðslu kórónuveirunnar vegna páskahátíðar
Sóttvarnaryfirvöld í Georgíu óttast að nú verði veldisvöxtur í útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi vegna páskahátíðar. Sóttvarnarlæknir grátbiður íbúa um að iðka trú sína heima og sækja ekki kirkjur.

Bretar og Bandaríkjamenn saka Rússa um stórfelldar netárásir á Georgíu
Bresk stjórnvöld saka leyniþjónustu rússneska hersins (GRU) um að hafa staðið að baki stórfelldum netárásum á Georgíu í fyrra. Árásirnar eru sagðar hafa gert yfir tvö þúsund vefsíður óaðgengilegar þar í landi.

Georgíska fjölskyldan flutt úr landi í morgun
Georgísku hjónin, sem eiga barn sem er fætt hér á landi og annað sem er jarðað hér, voru flutt úr landi í morgun. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá Útlendingastofnun við fyrirspurn fréttastofu.

Innanríkisráðherrann verði nýr forsætisráðherra
Mamuka Bakhtadze greindi frá því í gær að hann hugðist hætta sem forsætisráðherra Georgíu eftir um ár í embætti.

Vilja geta heimsótt leiði sonar síns
Hjón frá Georgíu berjast fyrir að fá dvalarleyfi hér á landi svo þau geti heimsótt leiði sonar síns í Gufuneskirkjugarði. Þau eignuðust annað barn janúar og segja að samkvæmt lögum megi ekki vísa barni úr landi sem hefur búið hér óslitið frá fæðingu. Hjónunum hefur alls þrisvar verið synjað um bæði hælis-og dvalarleyfi.

Þúsundir mótmæltu flugbanni Rússa
Þúsundir mótmælenda komu saman þriðja daginn í röð í Tblisi, höfuðborg Georgíu, til þess að mótmæla afskiptum Rússa af málefnum Georgíu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti á föstudag að búið væri að aflýsa öllum flugferðum frá Rússlandi til Georgíu sem er vinsæll áfangastaður rússneskra ferðamanna.

Putin bannar flug á milli Rússlands og Georgíu
Vladimir Putin, forseti Rússlands, hefur tímabundið bannað georgískum flugfélögum að fljúga til Rússlands en spenna á milli ríkjanna tveggja hefur farið vaxandi undanfarið.

Georgíumenn kalla eftir kosningum
Georgíumenn mótmæltu fyrir utan þinghúsið í Tbilisi, höfuðborgar landsins, annan daginn í röð og kölluðu eftir breytingum í stjórn landsins, afsögn innanríkisráðherra og nýrra þingkosninga.

Táragasi og gúmmíkúlum beitt á mótmælendur eftir ávarp rússnesks þingmanns
Lögregla í Tbilisi höfuðborg Georgíu hefur í kvöld beitt táragasi og skotið gúmmíkúlum til að hafa hemil á mótmælendum sem reyndu að brjótast inn í þinghúsið eftir að rússneskur þingmaður ávarpaði þar samkomu í dag.

Breti handtekinn vegna banaslyss á Thames eftir hálft ár á flótta
Lögregla í London segir að breskur karlmaður, sem hafði hlotið dóm fyrir að hafa orðið konu að bana í slysi á ánni Thames, hafi verið handtekinn í Georgíu.

Fækkun bólusettra leiðir til metfjölda mislingasmita í Evrópu
Alls hafa rúmlega 41.000 manns greinst með mislinga í álfunni og 37 hafa látist.

Fólk kastaðist úr bilaðri stólalyftu
Átta eru sagðir hafa slasast á skíðasvæðinu í Gudauri í Georgíu og þar af tveir alvarlega.

Fyrrverandi forseti Georgíu handtekinn eftir æsilegan eltingarleik á húsþökum
Mikhael Saakashvili, fyrrverandi forseti Georgíu, var handtekinn í dag í Kiev, höfuðborg Úkraínu, eftir æsilegan eltingarleik á húsþökum í miðborg höfuðborgarinnar. Mótmælendur sem mótmæltu handtökunni tókst þó að leysa hann úr haldi lögreglu og tókst honum að flýja.

Höfuðpaur Istanbúl-árásar drepinn
Öryggislögregla Georgíu segir að maðurinn hafi einnig sprengt sjálfan sig í loft upp eftir um tuttugu klukkustunda langt umsátur lögreglu fyrir utan Tbilísí í síðastu viku.

Líkið sem fannst í Hvítá af Nika Begadze
Nika var 22 ára gamall og var frá Georgíu. Hann hafði stöðu hælisleitanda hér á landi.

Útlendingastofnun bætir Georgíu og Kósóvó við á lista yfir örugg ríki
Útlendingastofnun barst 62 umsóknir um hæli frá Georgíumönnum á fyrri hluta ársins og þrettán frá einstaklingum frá Kósóvó.

NATO þingmenn funda við landamæri Rússlands í Georgíu
Varaformaður Framsóknarflokksins, Lilja Alfreðsdóttir, segir fullkomlega eðlilegt að þingmennirnir komi saman þar til að ræða málefni norðurslóða, þrátt fyrir að reikna megi með hörðum viðbrögðum Rússa.

Ísland hyggst auka þátttöku sína í borgaralegum verkefnum NATO
Tveggja daga fundi varnarmálaráðherra aðildarríkja NATO lauk í dag.

Aldrei fleiri umsóknir afgreiddar
Útlendingastofnun afgreiddi fleiri umsóknir um alþjóðlega vernd en nokkru sinni áður í síðasta mánuði.

Recep Tayyip Erdogan: Hinn vægðarlausi forseti Tyrklands
Erdogan hefur á undanförnum árum gjörbylt stjórnkerfi landsins og ekki síðan í stjórnartíð Atatürk hefur einn maður verið eins ráðandi í tyrkneskum stjórnmálum og þjóðfélagsumræðu.

Zika-veiran gæti borist til Evrópu
Búist er við að veiran berist til Evrópu í sumar.

Forsætisráðherra Georgíu segir af sér
Hinn 33 ára Irakli Garibashvili hefur gegnt embættinu frá árinu 2013.

Rannsaka mögulega stríðsglæpi Rússlands og Georgíu
Saksóknari Alþjóðasakamáladómstólsins segist hafa gögn sem sýni fram á stríðsglæpi árið 2008.

Dýragarðurinn opnaður á ný
Dýragarðurinn í Tíblisi, höfuðborg Georgíu, var opnaður í gær eftir að hafa verið lokaður frá því í júní. Mikil flóð stórskemmdu dýragarðinn fyrir þremur mánuðum og dýr bæði sluppu og drápust. Þá fórust einnig nítján Georgíumenn í flóðunum.

Rússar vinna að frumvarpi um aðgerðir gegn Íslandi
Rússneska landbúnaðarráðuneytið vinnur nú að gerð frumvarps um innflutningsbann á ákveðnum matvörum frá sjö Evrópuríkjum, þar á meðal Íslandi.

Tígrísdýr banaði manni í Tbilisi
Slapp úr dýragarði borgarinnar í flóðinu um helgina.

Enn leika dýrin lausum hala í Georgíu
Að minnsta kosti tólf eru látnir.

Dýr ganga laus um götur höfuðborgar Georgíu
Ljón, Tígrisdýr, flóðhestur og fleiri dýr sluppur úr dýragarði eftir mikil flóð.

Fyrrverandi forsætisráðherra Georgíu nýr ríkisstjóri Odessa
Mikheil Saakashvili leiddi Georgíu í stríði við Rússa árið 2008.