
Kópavogur

Faðirinn alvarlega vanræktur á Sunnuhlíð og móðirin lést úr sorg
Dóttir manns sem lést í kjölfar alvarlegrar vanrækslu og mistaka á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fyrir fimm árum lýsir kaldranalegu viðmóti forstjóra heimilisins. Ekki hafi verið tekið mark á fjölskyldumeðlimum sem upplifðu manninn sárkvalinn og oflyfjaðan. Hún segir móður sína aldrei hafa jafnað sig á meðferðinni á eiginmanni sínum og hafi í raun látist úr sorg.

Bóndinn í borginni minnir á hvar stór hluti landbúnaðarvara er framleiddur
Bóndi sem stundar landbúnað á lögbýli í einu af nýjustu hverfum Kópavogs segir fólk almennt ekki átta sig á því hversu stór hluti af landbúnaðarvörum Íslendinga sé framleiddur á Reykjavíkursvæðinu.

Loka að næturlagi til að koma í veg fyrir bílahittinga
Búið er að setja upp hlið við bílaplanið við Norðurturn Smáralindar. Hliðið kemur í veg fyrir að bílahittingar eigi sér stað þar í skjóli nætur.

Áhersla á velferð og skólamál í Kópavogi í fjárhagsáætlun 2023
Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Kópavogs hefur nú lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2023.

Opna fyrsta fótboltaskemmtigarð landsins í Smáralind
Fótboltaland, fyrsti fótboltaskemmtigarður landsins, verður opnað í Smáralind í janúar. Tæplega tuttugu mismunandi þrautabrautir verða í garðinum.

Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk
Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Fólk sem býr og starfar við Elliðavatn lýsir dásemdum útvistarperlunnar
„Það er alveg dásamlegt að vinna hérna. Þessi kyrrð og nánd við náttúruna. Þetta er ólýsanlegur vinnustaður. Þetta eru forréttindi að fá að vinna á þessum stað,“ segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, en skrifstofa félagsins er í Elliðavatnsbænum. Auður býr auk þess í Norðlingaholti, en hún segir það meðal lífsgæða hverfisins hvað það er nálægt Heiðmörk.

Jón Gunnarsson segist ekki hafa haft í hótunum við Unni Berglindi
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur birt pistil þar sem hann svarar ásökunum sem Unnur Berglind Friðriksdóttir setti fram í morgun. Hann vísar því alfarið á bug að hafa haft í hótunum við hana.

Kjörbréfanefndarmenn telja illa að starfsfólki Valhallar vegið
Lögfræðingarnir þrír sem skipa kjörbréfanefnd Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma að hafa mátt sitja undir ásökunum frá formanni Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi þess efnis að þeir gangi erinda formanns flokksins í störfum sínum.

Sakar menn Bjarna um að fara offari í kosningabaráttunni
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, segir stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar formanns fara offari í kosningabaráttunni.

Bleikar sjálfstæðiskonur í Kópavogi
Félag sjálfstæðiskvenna í Kópavogi, Edda, hélt fyrsta viðburð starfsársins í gær. Ræðumenn og heiðursgestir kvöldsins voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Kópavogur verður ekki Menningarborg Evrópu 2028
Ljóst er að Kópavogur verður ekki Menningarborg Evrópu árið 2028. Þetta varð ljóst í morgun þegar bæjarráð Kópavogsbæjar samþykkti með fimm atkvæðum að „ekki [væri] tímabært að taka þátt í verkefninu Menningarborg Evrópu að þessu sinni“.

„Ólíðandi og ámælisvert“ að vera sniðgengin
Fulltrúar lista- og menningarráðs Kópavogsbæjar telja sig hafa verið sniðgengna í umræðu um umsókn bæjarins um að vera útnefnd ein af menningarborgum Evrópu árið 2028. Menningar- og viðskiptaráðuneytið lét engan vita af möguleikanum í tæpa átta mánuði.

Vill að rekstur allra leiða verði boðinn út til einkaaðila
Framkvæmdastjóri Strætó bs. talar fyrir því að rekstur allra strætisvagna fyrirtækisins verði boðinn út til einkaaðila, enda fáist þannig hagstæðari verð. Aukin útvistun núna muni þó ekki leysa bráðavandann sem Strætó er í - framkvæmdastjórinn hefur aldrei séð það svartara í fjármálum félagsins frá því að hann tók við.

Tilefnislaus árás á unglingsstráka: Drógu upp kylfu og létu höggin dynja
Ráðist var á tvo unglingsstráka sem voru á rafhlaupahjóli í Kópavogi í gær. Árásarmennirnir króuðu þá af og eru taldir drengir á svipuðu reki. Lögreglan er með málið til skoðunar en meiðsl voru ekki alvarleg.

Loka Sorpustöðinni við Dalveg í Kópavogi eftir tæp tvö ár
Móttökustöð Sorpu við Dalveg í Kópavogi verður lokað í september 2024. Lóðinni var úthlutað til bráðabirgða árið 1991 og í samstarfssamningi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í Kópavogi kom fram að hugað yrði að flutningi stöðvarinnar þar sem ekki er gert ráð fyrir henni í aðalskipulagi.

Ungmenni með loftbyssu veittust að einstaklingi
Tvö ungmenni voru í gærkvöldi kærð fyrir vopnalagabrot. Þau höfðu verið að leika sér með loftbyssu og veittu sér að öðrum einstakling. Engin meiðsli urðu á fólki en barnavernd og foreldrum var tilkynnt um atvikið.

Reif sig úr að ofan á veitingastað
Lögreglan ók manni heim í gær eftir að kvartað var undan hegðun hans inni á veitingastað. Meðal annars hafði maðurinn rifið sig úr að ofan.

Blikar blása til sóknar eftir titilinn: „Ákváðum að okkur ætlaði ekki að líða svona aftur“
Breiðablik sem fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í annað sinn í sögu félagsins eftir 12 ára bið á heimavelli um liðna helgi hyggst blása til sóknar. Iðkendur félagsins í fótboltanum eru um sautjánhundruð 19 ára og yngri.

Hætta með næturstrætó
Strætó hefur ákveðið að hætta að bjóða upp á næturstrætó um helgar. Ljóst er að farþegafjöldi í næturstrætó var ekki jafn mikill og búist var við.

Fjórtán ára strákar réðust á fólk af handahófi í miðbænum
Þrír fjórtán ára drengir voru handsamaðir í miðbæ Reykjavíkur í nótt eftir að hafa ráðist á fólk af handahófi á að minnsta kosti þremur stöðum.

Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi í Kópavogi
Á sjötta tímanum var tilkynnt um eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Lómasölum í Kópavogi. Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang en greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins, sem reyndist minniháttar.

Kópavogur verði Menningarborg Evrópu: „Hefur alla burði til að standa undir þessari nafnbót“
„Ég er bjartsýn og veit og trúi að Kópavogur hefur alla burði til að standa undir þessari nafnbót.“ Þetta segir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála hjá Kópavogsbæ, sem sent hefur beiðni til bæjarráðs Kópavogsbæjar um að sækja formlega um nafnbótina Menningarborg Evrópu 2028 til framkvæmdastjórnar ESB.

Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði
Mygla fannst í aðalbyggingu Kársnesskóla við Vallargerði nú á dögunum og hefur tilkynning verið send á foreldra. Myglan kom upp í álmu þar sem fyrsti og þriðji bekkur er til húsa en aðgerðir vegna myglunnar eru nú þegar hafnar. Sex kennslustofur verða rýmdar og voru tvær rýmdar um leið og grunur lék á að um myglu væri að ræða, áður en niðurstöður lágu fyrir.

Fundu fíkniefnaræktun í Kópavogi
Lögreglan fann á sjötta tímanum í gærkvöldi fíkniefnaræktun í iðnaðarbili í miðbæ Kópavogs. Voru bæði plöntur og tæki gerð upptæk og skýrsla tekin af húsráðanda. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en ekkert meira kemur fram um umrædda fíkniefnarækt.

Íslandsmeistarinn Óskar Hrafn: „Þetta er öflug tilfinning, ég skal viðurkenna það“
„Ég veit það ekki, ég hef ekki verið út á velli og orðið Íslandsmeistari. Ég ætla að segja að það skipti engu máli hvar þú vinnur svo lengi sem það er í góðum hópi,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, þegar hann mætti til Guðmundar Benediktssonar í Stúkuna fyrr í kvöld.

Breiðablik Íslandsmeistari karla í fótbolta árið 2022
Breiðablik varð í kvöld Íslandsmeistari karla í fótbolta. Stjarnan og Víkingur, Íslandsmeistarar síðasta árs, áttust við í Garðabæ en gestirnir voru fyrir leik kvöldsins eina liðið sem átti tölfræðilega möguleika á að ná toppliðinu. Það fór svo að Stjarnan vann 2-1 sigur sem þýðir að Breiðablik er Íslandsmeistari árið 2022.

Hlauparinn Arnar Pétursson selur íbúðina
Hlauparinn Arnar Pétursson og kærastan hans, förðunarfræðingurinn Sara Björk Þorsteinsdóttir eru að selja íbúðina sína. Eignin er á Kópavogsbraut í hinu vinsæla Kársneshverfi.

Geta orðið níunda félagið frá 1970 til að vinna titilinn í borgaralegum klæðum
Breiðablik getur orðið Íslandsmeistari í kvöld þrátt fyrir að þeir séu ekki sjálfir að spila. Sú staða kom upp eftir sigur Blika á Akureyri um helgina.

Áform um skandinavískt sjávarþorp á Kársnesi
Fyrirtækið sem stendur á bak við Sky Lagoon vill byggja skandinavískt sjávarþorp við strönd Kársnessins. Aðeins eitt púsl vantar og heldur Kópavogsbær því hjá sér þar til deiliskipulagsvinnu er lokið.