Grindavík
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 73 ›
Yfirgáfu Grindavík í snarhasti: „Ömurlegt ástand að horfa upp á þetta“ Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir voru stödd á heimili sínu í Grindavík þegar eldgos hófst í kvöld. Þau eru nú í Hveragerði en þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flýja heimili sitt þegar eldsumbrot hefjast. Innlent 22.8.2024 23:26
Teygir sig frá Grindavík ólíkt fyrri gosum Gossprungan sem opnaðist á Sundhnúksgígaröðinni í kvöld teygir sig nú lengra til norðurs en suðurs og frá Grindavík, ólíkt fyrri gosum. Hraun rennur hratt og er byrjað að nálgast Grindavíkurveg, að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands. Innlent 22.8.2024 22:27
Um 1.300 manns í og við Bláa lónið þegar gosið hófst Um 1.300 manns, bæði gestir og starfsfólk, voru í Bláa lóninu við Svartsengi í kvöld þegar rýming hófst vegna eldgossins sem hófst við Sýlingarfell á tíunda tímanum í kvöld. Innlent 22.8.2024 22:23
Neyðarstigi almannavarna lýst yfir Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna eldgossins sem hófst á tíunda tímanum í kvöld, við Sundhnúkagíga. Innlent 22.8.2024 22:08
Vaktin: Eldgos hafið Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar. Innlent 22.8.2024 21:13
Færri skjálftar en síðustu daga Um fimmtíu skjálftar mældust á Reykjanesskaga síðastliðinn sólarhring, sem er ívið minna en mælst hefur síðustu daga. Innlent 22.8.2024 06:44
Hafa áhyggjur af því að hraun muni ná inn fyrir varnargarða Tilefni er til þess að hafa áhyggjur af því að hraun geti náð inn fyrir varnargarða við Grindavík í næsta eldgosi. Veðurstofan hefur uppfært hættumat vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, sem er óbreytt frá síðustu viku. Innlent 21.8.2024 11:20
Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19.8.2024 10:11
Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19.8.2024 07:40
Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Öllu starfsfólki Marine Collagen í Grindavík hefur verið sagt upp störfum. Í janúargosinu opnaðist stór sprunga á lóð fyrirtækisins en húsnæðið hafði verið óstarfhæft alveg síðan 10. nóvember. Viðskipti innlent 18.8.2024 13:30
Reykur í hrauni ekki eldgos Reykur sést stíga upp úr hrauni á vefmyndavél RÚV á fjallinu Þorbirni. Veðurstofan segir eldgos ekki hafið heldur að líklega sé um vatnsgufu að ræða. Innlent 18.8.2024 09:16
Mesta rúmmálið sem hefur safnast frá því að gosin hófust Enn er óbreytt staða á Reykjanesi og líklegt að annað hvort eldgos eða kvikuinnskot geti hafist á hverri stundu. Meiri virkni er í dag en í gær en ekkert stórt stökk að sögn Minneyjar Sigurðardóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Enn safnast kvika undir Svartsengi. Innlent 17.8.2024 22:09
Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn. Innlent 17.8.2024 13:09
Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Hafsteinn Sævarsson hafði ekki búið lengi í Grindavík þegar hörmungarnar dundu yfir í nóvember í fyrra. Hann og konan hans keyptu sér eign þar í júlí í fyrra og ætluðu að búa sér til framtíðarheimili í Grindavík. Í dag búa þau í Þorlákshöfn en greiða enn af húsnæði í Grindavík sem þau geta ekki selt Þórkötlu nema með milljónatapi. Innlent 15.8.2024 08:33
Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mælir eindregið gegn því að fólk dvelji í Grindavík nú þegar búist er við að gos hefjist á hverri stundu. Óásættanleg hætta er talin fyrir hendi í hluta bæjarins en dvalið hefur verið í um 24 húsum síðustu nætur og dæmi um að barnafólk sé í Grindavík. Innlent 14.8.2024 19:23
Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Hann var glæsilegur fagurbrúni refurinn sem sást á hlaupum yfir nýlegt hraun við Sundhnúkagígaröðina í gær. Hann var með nýveidda bráð í kjaftinum. Innlent 14.8.2024 12:09
Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Grindvíkingum sem hafa selt hús sín fasteignafélaginu Þórkötlu stendur til boða að gera leigusamning um húsnæðið eða svokallaða hollvinasamninga. Nú hefur verið gengið frá kaupum á fasteignum 93 prósent þeirra sem sóttu um þau. Innlent 12.8.2024 10:13
Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Nefndarmaður í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík segir eðlilegt að verja hundruðum milljóna til að verja innviði í bænum þrátt fyrir yfirvofandi eldgos. Það sé eðlilegt framhald af fyrri aðgerðum á borð við uppsetningu varnargarða. Innlent 8.8.2024 20:01
Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Slökkviliðsmenn æfðu sig í að kæla hraun með nýjum kröftugum dælum frá Bretlandi við Svartsengi í dag. Vatni er meðal annars dælt úr Bláa lóninu á margföldum krafti á við dælur slökkviliðsins. Innlent 8.8.2024 19:41
Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefnd hefur kynnt aðgerðaáætlun vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis Grindavíkur. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum. Innlent 8.8.2024 16:04
Alvarlegt vinnuslys í Grindavík Alvarlegt vinnuslys varð í Ægi sjávarfangi í Grindavík á ellefta tímanum í morgun. Starfsmaður festi hönd í vinnuvél. Innlent 7.8.2024 13:44
Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkaði um 1.172 frá því í nóvember í fyrra þar til í lok júnímánaðar, þegar íbúar bæjarins töldu 2.570 manns. Innlent 1.8.2024 10:25
Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Jarðfræðingar við Háskóla Íslands sem stóðu að rannsókn um sigdalinn í Grindavík segja tímabært að fylgja eftir reglum um byggingar við misgengi og sprungur og segja mikilvægt að kortleggja þannig svæði á landsvísu. Innlent 31.7.2024 12:13
Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann ítrekar meðal annars að Grindavík sé ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Innlent 31.7.2024 08:40
Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Klukkan 21:11 í kvöld varð skjálfti á Reykjanestá að stærð 3. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Innlent 30.7.2024 22:57
„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni. Innlent 30.7.2024 19:32
Gæti gosið á næstu dögum Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur. Innlent 30.7.2024 11:58
Ólafur skrifar undir nýjan samning: „Með verkefni sem við þurfum að klára“ Fyrirliði karlaliðs Grindavíkur í Bónus deildinni í körfubolta, Ólafur Ólafsson, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Grindavík laut í lægra haldi gegn Val í úrslitaeinvígi deildarinnar á síðasta tímabili. Ólafur segir Grindavík vera með verkefni í höndunum sem þurfi að klára. Körfubolti 26.7.2024 15:01
Ný líkön sýna umfang hraunsins Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birti í gær myndir á síðu sinni á Facebook þar sem hægt er að sjá flæði og magn hraunsins. Innlent 26.7.2024 11:22
Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Þrátt fyrir að nýtt hættumat bendi til að miklar líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur á næstu vikum verður ráðist í framkvæmdir innan bæjarmarka eftir Verslunarmannahelgi. Brottfluttir íbúar eru bjartsýnir á að komast aftur heim. Innlent 25.7.2024 18:53