Reykjavík
274 275 276 277 278 279 280 281 282 … 334 ›
Lögðu hald á plöntur og búnað til fíkniefnaframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi vegna framleiðslu fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var lagt hald á plöntur og búnað til framleiðslunnar. Innlent 9.1.2021 07:32
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. Innlent 8.1.2021 19:01
Krefst kyrrsetningar á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú Lögmaður þeirra, sem urðu fyrir líkams- eða eignatjóni vegna brunans á Bræðraborgarstíg í sumar og aðstandanda þeirra sem létust, hefur farið fram á kyrrsetningu á Bræðraborgarstíg eitt og þrjú. Hann segir það gert til að tryggja skaðabótakröfur umbjóðenda sinna gagnvart húseigandanum, sem er fyrirtækið HD verk. Innlent 8.1.2021 17:59
Ósáttur með að krár þurfi áfram að hafa lokað: „Munurinn er þessi eina kleina!“ „Okkur finnst verulega að okkur vegið og mikil mismunun í gangi,“ segir kráaeigandinn Arnar Þór Gíslason um nýjar reglur um samkomutakmarkanir sem kynntar voru í hádeginu. Viðskipti innlent 8.1.2021 14:20
Hafa náð tökum á eldinum en íbúar áfram hvattir til að loka gluggum Íbúar í Mosfellsbæ eru enn hvattir til að loka gluggum vegna mengunar sem stafar frá ruslahaugi sem kvikna í árla morguns. Eldurinn náði á tímabili yfir heilmikil yfirborð ruslahaugs í Álfsnesi en slökkviliðsmaður á vettvangi segir að búið sé að ná tökum á eldinum. Innlent 8.1.2021 12:28
„Nauðsynlegt að byggja nýjan Laugardalsvöll“ Guðni Bergsson, formaður KSÍ, vonast til að byrjað verði að spila á nýjum Laugardalsvelli á allra næstu árum. Íslenski boltinn 8.1.2021 12:00
Sex og hálfs árs fangelsi fyrir tvær hrottalegar líkamsárásir Þorlákur Fannar Albertsson hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps, alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu á síðasta ári. Önnur árásin var á leigusala hans í júní, konu á fimmtugsaldri, en hin á félaga sinn á þrítugsaldri í apríl. Þorlákur bar fyrir sig að hafa verið í geðrofi þegar hann réðst á fólkið. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 8.1.2021 09:26
Íbúar loki gluggum vegna elds í dekkjakurli í Álfsnesi Íbúar á Esjumelum og Leirvogstunguhverfi í Mosfellsbæ hafa verið hvattir til að loka gluggum vegna elds í urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi. Reykur leggur í átt að byggðinni. Innlent 8.1.2021 09:01
Valdataka í Reykjavík Sá fordæmalausi atburður átti sér stað um miðjan dag þann 6. janúar sl. að kjörnum fulltrúum í borgarráði barst tölvupóstur þar sem þeim var tilkynnt að hin svokallaða neyðarstjórn Reykjavíkur hafi ákveðið að fundur borgarráðs daginn eftir yrði fjarfundur en yrði ekki haldinn í ráðhúsi Reykjavíkur. Skoðun 7.1.2021 14:00
Hannar fyrir konur sem vilja sjást í fjöldanum „Hönnunin og vörumerkið spilar svolítið inn á persónuleika kvenna, hún er litrík og ég vinn mikið með áferðir. Engin flík er eins svo þetta er svolítið einstakt sem ég er að reyna að gera,“ segir fatahönnuðurinn Anita Hirlekar. Tíska og hönnun 7.1.2021 10:02
Skutu flugeldum á endurnar á Tjörninni Íbúum við Tjörnina er brugðið en ungir menn hafa sést þar við þann ljóta leik að kveikja á flugeldum og kínverjum og beina að fuglalífi sem þar er. Innlent 6.1.2021 13:59
„Líklega verða börn oftar send heim“ Fyrirséð er að þjónusta í leikskólum muni skerðast við útfærslu styttingar vinnuvikunnar því viðbótarfjármagn fylgir ekki með framkvæmdinni. Líklega verða börn oftar send fyrr heim vegna svokallaðrar fáliðunarstefnu. Þetta segir formaður Félags stjórnenda leikskóla. Innlent 6.1.2021 13:15
Keyptu draugalega einbýlishúsið í Undralandi og hafa nánast rifið allt út Knattspyrnumaðurinn Daði Bergsson og Stefanía Eir Einarsdóttir fjárfestu í eign í fossvoginum sem fjallað var um á Vísi í nóvember. Lífið 6.1.2021 12:37
Vistunartími barna á leikskólum Reykjavíkur skerðist ekki þótt vinnuvikan styttist Vistunartími barna í leikskólum Reykjavíkurborgar mun ekki skerðast og ekki eru gerðar breytingar á þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra þótt vinnuvikan hafi verið stytt í skólunum nú um áramótin. Innlent 6.1.2021 08:41
Hjólhýsi brann til kaldra kola í Laugardal Eldur kom upp í hjólhýsi á tjaldstæðinu í Laugardal um klukkan sex í morgun. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var hjólhýsið alelda og brann það til kaldra kola. Innlent 6.1.2021 07:31
Bílastæðasjóður endurgreiðir þrettán milljónir vegna oftekinna gjalda Bílastæðasjóður Reykjavíkur mun endurgreiða bifreiðareigendum oftekin gjöld sem innheimt voru vegna tiltekinna stöðubrota á tímabilinu 1. janúar til 24. september á síðasta ári. Innlent 5.1.2021 12:27
Afgreiðslustúlku á Hlemmi ógnað og hún elt inn á starfsmannarými Súrdeigsbakaríið Brauð & Co hefur lokað útibúi sínu við Hlemm Mathöll. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ástæðuna meðal annars þá að ekki sé unnt að tryggja öryggi starfsmanna á Hlemmi. Innlent 5.1.2021 09:01
Þremur bifhjólum stolið í Vesturbænum Laust fyrir klukkan hálfellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að þremur bifhjólum hefði verið stolið í Vesturbæ Reykjavíkur, allt frá sama heimilinu. Innlent 5.1.2021 06:28
Mest fjölgun í Reykjavík en hlutfallslega í Fljótsdalshreppi Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.133 á þrettán mánaða tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. janúar 2021. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 768 á sama tímabili og íbúum Mosfellsbæjar fjölgaði um 519 íbúa. Innlent 4.1.2021 16:19
Vilja fylgja reglum en ekki „sérreglum sem virðast gilda bara um kaþólska kirkju“ Biskup kaþólskra á Íslandi hefur ákveðið að aflýsa opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Þetta hafi verið það eina rétta í stöðunni því ekki komi til greina að vísa fólki frá messu sem vilji sækja hana. Honum finnst sóttvarnareglur sem gilda um helgihald vera ósanngjarnar. Innlent 4.1.2021 13:08
Biður fyrir því að sóttvarnayfirvöld „íhugi málin með visku“ „Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan vilja getum við ekki fylgt öllum gildandi sóttvarnareglum í sambandi við messuhald í kirkjum okkar. Með harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörðun að aflýsa öllum opinberum sunnudagsmessum og vigilmessum á laugardagskvöldum. Ákvörðunin tekur þegar gildi.“ Innlent 4.1.2021 11:46
Meintur áhugakylfingur stelur söfnunarbauki úr Melabúðinni Pétur Alan Guðmundsson kaupmaður er furðu lostinn eftir að maður nokkur gerði sér lítið fyrir og hafði á brott með sér söfnunarbauk Hringsins sem hafði verið komið fyrir í Melabúðinni. Innlent 4.1.2021 10:16
Varað við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli hálku á götum og gangstéttum borgarinnar í dagbók sinni í morgun. Innlent 4.1.2021 06:22
Of margir í messu í Landakotskirkju í dag Allt of margir voru komnir saman til messu í Landakotskirkju á öðrum tímanum í dag og mætti lögreglan á staðinn og ræddi við sóknarprest. Rúv greinir frá. Innlent 3.1.2021 14:50
Vöknuðu við mikinn hvell og glerbrot um öll gólf Haukur Már Haraldsson, íbúi í Víkurhverfi í Grafarvogi og eiginkona hans, vöknuðu upp af værum svefni í nótt við mikinn hvell. Einhver hafði kastað grjóthnullungi í gegn um rúðuna í stofuglugganum á íbúð þeirra sem er á annarri hæð. Innlent 3.1.2021 14:31
Handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás Einn var handtekinn í gærkvöld grunaður um stórfellda líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Innlent 2.1.2021 07:22
Magnað drónamyndband af flugeldadýrðinni við Hallgrímskirkju Duglega var skotið upp af flugeldum á höfuðborgarsvæðinu í tilefni áramóta í gærkvöldi. Skotgleðin við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti náði hámarki í kringum miðnætti en Egill Aðalsteinsson tökumaður fréttastofu náði mögnuðum drónamyndum af flugeldadýrðinni í gær. Myndband Egils má sjá hér fyrir neðan. Lífið 1.1.2021 22:15
Sprengdu flugelda í gufubaðsaðstöðu sundlaugar í Kópavogi Einhver eignaspjöll urðu í sundlaug í Kópavogi í nótt en búið var að sprengja flugelda í gufubaðsaðstöðu laugarinnar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki er ljóst í hvaða sundlaug flugeldasprengingarnar fóru fram. Innlent 1.1.2021 18:58
Reyndi að brjótast inn hjá Gilbert úrsmið Tilraun var gerð til að brjótast inn í verslun Gilberts úrsmiðs á Laugaveginum á mánudagsmorgunn. Þjófnum gekk ekki betur en svo að hann náði að brjóta rúðuna, sem er skotheld, að hluta áður en þjófavarnakerfið fór í gang og hrakti hann á brott. Innlent 1.1.2021 18:04
Hópamyndun við Hallgrímskirkju í nótt tilkynnt til lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópamyndun við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Innlent 1.1.2021 14:02