
Þjóðhátíð í Eyjum

Þjóðhátíð í Eyjum fagnar 150 ára afmæli
Þjóðhátíð í Eyjum hefur verið fastur liður í menningarlífi Vestmannaeyinga síðan árið 1874. Þessi árlega hátíð, sem á rætur sínar að rekja til 1000 ára afmæli Íslands, er nú einn af helstu menningarviðburðum landsins og þúsundir Íslendingar sækja ár hvert.

Verið spennt í marga mánuði og nú er loksins komið að þessu
Jóhanna Guðrún stígur á svið í kvöld á fyrsta degi Þjóðhátíðar í Eyjum. Þar mun hún frumflytja Þjóðhátíðarlagið í ár, Töfra, ásamt Fjallabræðrum. Jóhanna segist ekki geta beðið en hún mun hafa nóg að gera í Eyjum í ár enda mun hún stíga oftar á svið en bara föstudagskvöldið.

Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn
Undirbúningur viðbragðsaðila fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er í fullum gangi. Lögregla hefur aukið viðbúnað í Dalnum til að bregðast við tiltölulega nýtilkominni eggvopnamenningu hér á landi.

Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð
Lögreglan í Vestmannaeyjum er eins klár og hægt er fyrir þjóðhátíð en hún fær þó mikla aðstoð lögreglumanna og fíkniefnahunda af fasta landinu. Sjálfboðaliðar eru líka klárir fyrir þjóðhátíð.

Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn
Það er hætt við því að þeir sem eiga ferð með Herjólfi til Vestmannaeyja á laugardaginn fái aðeins í magann yfir veðurspánni. Hún hljóðar upp á 23 m/s í hádeginu en á að lægja með deginum þótt töluvert blási.

FM Belfast fékk blessun Greifanna fyrir síðsumarsmelli
Gleðigjafarnir í FM Belfast gáfu í dag út nýtt lag, en um er að ræða ábreiðu af einu frægasta lagi Greifanna, Útihátíð. Lagið kom út árið 1986 og hefur allar götur síðan verið stór hluti af sumarstemningunni á Íslandi.

Lalli töframaður sér börnunum fyrir brekkusöng
Brekkusöngur barnanna fer fram i fyrsta sinn á Þjóðhátíð í Eyjum í ár. Hann verður í umsjón Lalla töframanns og fer fram á Tjarnarsviðinu klukkan 14:30 á laugardag. Lalli segist vera spenntur fyrir hinni nýju hefð og reiðubúinn að standa vaktina næstu ár.

Reiknar með 15 þúsund manns í Herjólfsdal
Spenna og eftirvænting fyrir þjóðhátíð í Vestmannaeyjum vex og vex með hverjum deginum en formaður þjóðhátíðarnefndar reiknar með 15 þúsund manns í dalinn. Bekkjabílar verða á sínum stað og efnt verður til búningakeppni í tilefni af 150 ára afmæli þjóðhátíðar.

Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur áhyggjur af því að ofbeldi og vopnaburður muni aukast á Þjóðhátíð í sumar þegar þúsundir ungmenna frá höfuðborgarsvæðinu og víðar streyma til eyjunnar. Hann segir lögregluna hafa gripið til ráðstafana vegna þessa og viðbúnaður á hátíðinni hafi aldrei verið meiri.

„Fólkið er kjarni Þjóðhátíðar og ég vildi sýna það“
Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi Þjóðhátíðarlagsins 2024. Jóhanna Guðrún er flytjandi lagsins og segir að tökudagurinn hafi verið draumi líkastur.

Tóku svartan mann hálstaki við handtöku og greiða bætur
Ríkið hefur fallist á að greiða nítján ára manni, sem er dökkur á hörund, 150 þúsund krónur í bætur vegna handtöku sem hann varð fyrir á Þjóðhátíð á síðasta ári. Lögreglan tók manninn hálstaki í tjaldi.

Svona er Þjóðhátíðarlagið 2024
Tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er flytjandi Þjóðhátíðarlagsins í ár ásamt karlakórnum Fjallabræður. Lagið heitir Töfrar og var frumflutt í Brennslunni á FM957 í morgun. Hlusta má á lagið neðar í fréttinni.

Jóhanna Guðrún semur og flytur Þjóðhátíðarlagið 2024
Tónlistargyðjan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir flytur og semur Þjóðhátíðarlagið 2024. Þetta var opinberað í skemmtiþætti þjóðarinnar FM95Blö á útvarpsstöðinni FM957 nú síðdegis.

Á enn kaffisíuna sem textinn við Lífið er yndislegt var skrifaður á
Það var ekki margt sem að benti til þess að strákurinn í Nike gallanum og með körfuboltann undir hendinni á Hvolsvelli árið 1994 yrði nokkrum árum síðar ein skærasta poppstjarna þjóðarinnar. En sú varð nú samt raunin.

Fyrstu tónlistarmennirnir á Þjóðhátíð í ár tilkynntir
Miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum er hafin. Þá var greint frá fyrstu tónlistarmönnunum sem munu stíga á svið á hátíðinni í ár í beinni útsendingu í Brennslunni á FM957 í morgun.

Bæjarblaðið sektað fyrir að auglýsa nikótín fyrir Þjóðhátíð
Útgefandi bæjarblaðs Vestmanneyinga, Tíguls, hefur verið sektað um 100 þúsund krónur vegna brots á fjölmiðlalögum, með því að birta viðskiptaboð fyrir nikótínpúða og rafsígarettur. Tígull er fyrsti fjölmiðillinn sem sektaður fyrir slíkt brot. Útgefandinn segist hafa prentað heilsíðuauglýsinguna fyrir mistök.

Tilkynnti eiginmanninum óléttuna í Brekkunni í Eyjum
Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eiga von á sínu öðru barni í byrjun næsta árs. Fyrir eiga þau Viktor, fimm ára.

„Þá verður farið ofan í saumana á þessu“
Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir mál 19 ára manns vegna aðgerða lögreglu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar ekki komið á borð til sín enn sem komið er. Hann eigi þó von á að það berist til sín á næstunni.

„Ég vildi fá að hringja í pabba og þeir bönnuðu mér það“
Nítján ára maður, sem er dökkur á hörund, og var handtekinn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar segir húðlit sinn hafa ráðið aðgerðum lögreglu. Hann segir fordóma í samfélaginu hafa færst í aukana. Lögmaður mannsins hefur krafist miskabóta úr hendi ríkisins.

Níu ára strákur í Kópavogi ætlar að verða heimsfrægur söngvari
„Ég ætla að verða heimsfrægur söngvari og mjög góður dansari “, segir níu ára strákur í Kópavogi, sem vann söngvakeppni barnanna á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Það er ekki nóg með að strákurinn sé góður að syngja því hann hefur fengið fimmtán bikara og þrjátíu verðlaunapeninga í keppnum í samkvæmisdansi.

Ekkert mál að græja hjólastólapall fyrir næstu Þjóðhátíð
Formaður Þjóðhátíðarnefndar tekur vel í hugmyndir manns, sem mætti í hjólastól í Herjólfsdal um helgina, og heitir því að bæta aðgengi fyrir næstu hátíð.

Gáfust upp á troðningi og skora á Eyjamenn
Dagur Steinn Elfu Ómarsson skorar á forsvarsmenn Þjóðhátíðar að bæta aðstöðu fyrir þá sem mæta á hátíðina í hjólastól. Dagur og tveir starfsmenn hans gáfust upp á troðningnum í dalnum og fóru heim fyrir síðasta kvöldið.

Þolinmæði í umferðinni skipti miklu máli á degi sem þessum
Verslunarmannahelgin er nú yfirstaðin og ferðalangar keppast við að ná heim til sín. Þrátt fyrir þunga umferð að borginni hefur dagurinn gengið stórslysalaust fyrir sig og lítið hefur verið um óhöpp um helgina, samkvæmt varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar.

Þjóðhátíðin í ár sé með þeim bestu hingað til
Verslunarmannahelgin sem nú er að líða undir lok fór að mestu leyti vel fram víðast hvar á landinu. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir Þjóðhátíðina í ár með þeim bestu hingað til frá löggæslulegu sjónarmiði séð. Hátíðahöld fóru einnig almennt vel fram á Akureyri, Flúðum og í Neskaupstað.

„Ég hlakka mikið til að spila fyrir fólkið í kvöld“
Brekkusöngur þjóðhátíðar í eyjum fer fram í kvöld. Magnús Kjartan Eyjólfsson, stjórnandi brekkusöngsins segist spenntur fyrir kvöldinu. Veðrið lofi góðu og hann hafi trú á að allt gangi vel.

Leita á „vafasömum aðilum“ áður en þeim er hleypt í dalinn
Sérstakt átak lögreglunnar í Vestmannaeyjum til að bregðast við auknum hnífaburði virðist hafa skilað góðum árangri. Leitað er að fíkniefnum og vopnum á þeim aðilum sem lögreglu þykja grunsamlegir, áður en þeim er hleypt inn í Herjólfsdal.

Gripinn með fjörutíu grömm af kókaíni í Eyjum
Einn hefur verið handtekinn grunaður um umfangsmikla sölu fíkniefna á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögreglan lagði hald á fjörutíu grömm kókaíns, sem maðurinn hafði í fórum sínum.

Sló til hunds og var handtekinn
Þjóðhátíðargestur var handtekinn eftir að hafa slegið til fíkniefnaleitarhunds lögreglu en var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Talsverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt og ekki síður hjá fíkniefnaleitarhundum þar sem fimmtán mál tengd fíkniefnum komu upp.

Þúsund hjörtu slá í takt!
Í ár eru 149 ár síðan fyrsta Þjóðhátíðin okkar var haldin. Þjóðhátíð er ein elsta menningarhátíð landsins. Einmitt þessi langa saga og hefð - og þessi órofa tenging við fortíð okkar og þá sem á undan fóru hér í Eyjum - leggur okkur ríkar skyldur á herðar. Við þurfum að hlúa að þessari miklu menningarperlu sem Þjóðhátíðin er.

„Þurfum engu að kvíða þó það blotni aðeins“
Það skiptast á skin og skúrir um verslunarmannahelgina ef spár ganga eftir. Veðurfræðingur segir að besta veðrið verði líklegast á austanverðu landinu í byrjun helgar en á sunnudeginum verði prýðis veður um land allt.