Viðskipti

Fréttamynd

Kaupi hlut í Marks og Spencer

Hópur íslenskra fjárfesta er við það að tryggja sér ríflega þriggja prósenta hlut í verslanakeðjunni Marks og Spencer fyrir rúma tuttugu milljarða króna. Þetta kemur fram í breska blaðinu <em>Guardian</em> í morgun. Þar segir að kaupin verði væntanlega tilkynnt á allra næstu dögum en þreifingar hafi staðið yfir í um það bil tíu daga. Ekki er vitað hverjir kaupendurnir eru, en Baugur, Kaupþing og Landsbankinn eru öll nefnd á nafn í grein <em>Guardian</em>.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Spenna á vinnumarkaði

Spenna virðist hafa myndast á vinnumarkaði og Íslandsbanki segir launaskrið líklegt að sama skapi á næstu misserum. Skráð atvinnuleysi er 2,2% samkvæmt nýjum tölum frá Vinnumálastofnun. Á sama tíma í fyrra var það 3,3%.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaðurinn á Hesteyri

Ekki er óvarlegt að ætla að hagnaður Hesteyrar af fjárfestingu sinni í Keri hf. árið 2002 sé um fjögurra milljarða króna virði í dag. Hesteyri er eigandi fjórðungshlutar í VÍS sem er stór hluthafi í KB banka. Skinney-Þinganes á nú þriðjungshlut í Hesteyri.

Innlent
Fréttamynd

Semja við SR-mjöl og Fóðurblönduna

Eimskip hefur samið við SR-mjöl og Fóðurblönduna um að annast heildarflutninga á mjöli til og frá landinu og mun félagið festa kaup á nýju skipi í þessu skyni. Eimskip mun flytja 80 þúsund tonn af fiskimjöli árlega fyrir SR-mjöl til áfangastaða í Norður-Evrópu en hins vegar um 60 þúsund tonn árlega af fóðurmjöli til landsins fyrir Fóðurblönduna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Minnsti hagvöxtur í langan tíma

Hagvöxtur var 2,9 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins og er það minnsti hagvöxtur sem mælst hefur á einum ársfjórðungi frá samdráttarárinu 2002. Hagvöxturinn er lítill miðað við það sem spáð hefur verið fyrir árið í heild. Seðlabankinn spáir til að mynda 6,6 prósenta hagvexti en fjármálaráðuneytið 5,5.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Föroya Sparikassi í Kauphöllina

Föroya Sparikassi, stærsta fjármálafyrirtæki Færeyja, er orðið aðili að Kauphöll Íslands, þriðja erlenda fyrirtækið sem það verður. Heildareignir Föroya Sparikassa eru tæpar níu hundruð milljónir evra og með aðild að Kauphöll Íslands er verið að renna styrkari stoðum undir verðbréfahluta starfseminnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mesta aukning einkaneyslu í 5 ár

Einkaneysla jókst um tæp 9,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og þarf að leita fimm ár aftur í tímann til að finna sambærilega aukningu. Mest jukust kaup á innfluttum vörum og þjónustu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Átökin halda áfram

Ólga er í eigendahópi Íslandsbanka eftir sölu Steinunnar Jónsdóttur á fjögurra prósenta hlut til Burðaráss. Bauð hún Burðarási að kaupa hlutinn eftir að hún frétti hverjir væri í hópi þeirra sem hygðust kaupa hlut hennar í bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Reyndu að kaupa ráðandi hlut

Eignarhaldsfélag í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs Group, Karls Wernerssonar, stjórnarmanns í Íslandsbanka, og Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group, reyndi að kaupa ráðandi hlut í Íslandsbanka, samtals 33,76 prósent. Það voru feðginin Jón Helgi Guðmundsson og Steinunn Jónsdóttir sem komu í veg fyrir kaupin með því að selja hlut Steinunnar til Burðaráss að því er <em>Morgunblaðið</em> greinir frá í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Samið um sölu Pennans Eymundsson

Samkomulag hefur náðst um sölu Pennans Eymundsson. Samkvæmt öruggum heimildum fréttastofu Bylgjunnar fara Þórður Kolbeinsson og Kristinn Vilbergsson fyrir hópi fjárfesta sem stendur að kaupunum. Ákveðið hefur verið að Kristinn verði forstjóri Pennans eftir kaupin.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

KB banki hækkar vexti

KB banki hækkar vexti óverðtryggðra inn- og útlána um allt að hálfu prósentustigi frá og með 11. júní. Vaxtabreytingin kemur í kjölfar tilkynningar um hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

8,3 milljónir milljónamæringa

Fleiri milljónamæringar verða til í Norður-Ameríku og í Asíu en í Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækin Merryll Lynch og Capgemini hafa gefið út. Talið er að í heiminum séu nú um 8,3 milljónir manna sem eiga meira en eina milljón bandaríkjadala, að heimili sínu frátöldu, eða sem nemur um 65 milljónum íslenskra króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Vísitala neysluverðs hækkar

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,71 prósent frá fyrra mánuði og er 242,4 stig í júní samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,2 stig en hækkaði um 0,35 prósent frá því í maí. Eigið húsnæði í vísitölunni hækkaði um 2,4 prósent, þar af voru áhrif af hækkun markaðsverðs á húsnæði 0,49 prósent en á móti vógu áhrif af lækkun meðalvaxta um 0,11 prósent.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sameining ólíkleg í ljósi laganna

Samkeppnisyfirvöld geta lagt bann við því að keppinautar á markaði eigi menn í stjórnum þeirra fyrirtækja sem þeir eiga í samkeppni við. Ekki er líklegt í ljósi samkeppnislaga að Landsbankinn sameinist Íslandsbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Rannsakar hæfi Halldórs

Ríkisendurskoðandi er að kanna hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi verið vanhæfur til að taka ákvarðanir um sölu ríkisbankanna vegna eigna- og venslatengsla við þau félög sem keyptu Búnaðarbankann. Frá þessu er greint á ruv.is.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Breytingar á úrvalsvísitölunni

Kauphöllin kynnir á morgun nýja samsetningu úrvalsvísitölunnar fyrir seinni hluta ársins. Hún tekur svo gildi 1. júlí næstkomandi. Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að SÍF og Jarðboranir komi inn í úrvalsvísitöluna að þessu sinni í stað Flögu og Samherja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Greiðslukortavelta jókst um 19%

Innlend greiðslukortavelta jókst um 19% á tímabilinu janúar til apríl miðað við sama tíma í fyrra. Í Vegvísi Landsbankans segir að þetta sé óvenjumikil aukning. Á tímabilinu nam velta kredit- og debetkorta rúmum 114 milljörðum króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Öfugum megin fram úr

Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, gefur lítið fyrir gagnrýni Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra og segir hana hafa farið öfugum megin fram úr rúminu í morgun. Hann bendir á að Landsbankinn sé hlutafélag og njóti mikils trausts meðal viðskiptamanna sinna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sameining kemur ekki til greina

Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, telur sína blokk í bankanum enn hafa meirihluta, þrátt fyrir að Burðarás sé orðinn þriðji stærsti hluthafinn í bankanum eftir stórviðskipti í gær. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir valdasamþjöppun í bankageiranum slæm tíðindi og telur ekki koma til greina að Landsbanki og Íslandsbanki sameinist.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslandsbanki: Vill ekkert tjá sig

Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, vildi ekkert tjá sig um kaup Burðaráss á hlut Steinunnar Jónsdóttur í bankanum þegar fréttastofan náði sambandi við hann á sjöunda tímanum í kvöld en hann er á ráðstefnu í Álasundi á vegum bankans með Bjarna Ármannssyni, forstjóra Íslandsbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Burðarás keypti 4,11% af Steinunni

Burðarás keypti í dag 4,11% hlut Steinunnar Jónsdóttur í Íslandsbanka. Nafnvirði hlutanna var tæpar 540 milljónir króna en keypt var á genginu 13,6. Söluverðið er því tæpir 7,4 milljarðar króna. Kaupin breyta valdahlutföllum innan bankans verulega.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dollarinn styrkst um 10%

Bandaríkjadollar hefur styrkst um 10% gagnvart evru á árinu en styrkingin er meðal annars rakin til þess að hagvöxtur í Bandaríkjunum hefur verið töluvert meiri en vöxturinn á evrusvæðinu. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Íslensk sérleyfi seld til útlanda

Íslensk fyrirtæki í útrás nýta sér í auknum mæli sérleyfi sem þau selja í útlöndum. Sérleyfi, eða svokallað „franchise“, hefur verið nokkuð áberandi á Íslandi undanfarin ár, þ.e.a.s. að íslensk fyrirtæki stofni fyrirtæki hér á landi á erlendu sérleyfi sem þau hafa keypt en nú virðist sem verið sé að snúa fyrirkomulaginu við.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Afnemur skilyrði vegna íbúðalána

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur fyrst bankastofnana ákveðið að afnema skilyrði um önnur bankaviðskipti á 4,15 prósenta íbúðalánum. Segir í fréttatilkynningu að þessi lán séu nú öllum opin hjá SPRON sama hvar lántakandi sé í bankaviðskiptum og gildi það einnig fyrir þá sem þegar hafi tekið 4,15 prósenta íbúðalán hjá SPRON.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sterling breyti ferðamynstri Dana

Flugfélagið Sterling, sem er að meirihluta í eigu Íslendinga, á eftir að gjörbreyta ferðamynstri Dana, að mati stærstu ferðamiðlunar Danmerkur. Sölustjóri Star Tour spáir því að Danir muni í þúsundavís ferðast til Bandaríkjanna í stað þess að halda austur á bóginn næsta vor þegar Sterling býður upp á lággjaldaflug til Bandaríkjanna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Endurfjármögnun SÍF lokið

Um fimmtíu prósenta umframeftirspurn var eftir lánum við endurfjármögnun SÍF sem nú er formlega lokið, en umsjónarbankarnir KB banki og Bank of Scotland seldu hluta láns félagsins til sjö banka og fjögurra fjárfestingasjóða. Fram kemur í tilkynningu frá SÍF að 13 bankar og fjárfestingarsjóðir standi nú að sambankaláni SÍF og er heildarlánsfjárhæðin nú 262,4 milljónir evra en upphafleg lánsfjárhæð var 290 milljónir evra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekki inn á Bandaríkjamarkað í vor

Skandinavíska flugfélagið Sterling, sem er í eigu þeirra Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, er ekki á leið inn á Bandaríkjamarkað í vor eins og kemur fram í dönskum fjölmiðlum í dag. Þá er félagið ekki að ráða til sín 400 manns eins og jafnframt hefur komið fram í fjölmiðlum þar í landi.

Viðskipti innlent