Viðskipti

Fréttamynd

Disney dreifir Latabæ í Evrópu

Forsvarsmenn Latabæjar og Disney-samsteypunnar skrifuðu í dag undir samning um rétt til að sýna Latabæjarþættina í Frakklandi, á Ítalíu og á Spáni. Enn er ekki ákveðið hvenær næsta þáttaröð verður framleidd.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lyfjasala undir væntingum

Sala á lyfjum frá Actavis stóð ekki undir væntingum á fyrsta fjórðungi ársins. Afkoman var jákvæð um rúmar 900 milljónir króna sem er 900 milljónum minna en á sama tíma í fyrra þegar Ramipril-hjartalyfin fóru á markað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lífeyrissjóðir sameinast

Fjórði til fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins verður til um næstu áramót þegar Samvinnulífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðin sameinast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

4,4 milljarða halli á vöruskiptum

Vöruskipti landsmanna við útlönd voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna í síðasta mánuði, borið saman við sama mánuð í fyrra. Fluttar voru út vörur fyrir liðlega 17 milljarða en inn fyrir rúmlega 21 milljarð króna. Verðmæti útflutningsins jókst um tvö prósent í apríl 2005 miðað við apríl 2004 en verðmæti innflutningsins jókst um 21 prósent. Sjávarafurðir voru meirihluti þess sem flutt var út en mest var flutt inn af fólksbílum, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Farþegum FL Group fjölgar áfram

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um tæplega eitt prósent í apríl í ár í samanburði við apríl á síðasta ári og á fyrstu fjórum mánuðum ársins hefur farþegum flugfélagsins fjölgað um 9,9 prósent milli ára. Framboð félagsins og sala í mánuðinum var einnig nánast hin sama og á síðasta ári og var sætanýting einnig mjög svipuð og í apríl í fyrra, eða 72,7 prósent á móti 73,5 prósentum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsta verksmiðja sinnar tegundar

Lýsi hefur opnað nýjar höfuðstöðvar við Fiskislóð og tvöfaldast framleiðslugeta fyrirtækisins í nýja húsnæðinu. Nýja verksmiðjan er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Framleiðslugetan er nú sex þúsund tonn á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Meiri halli á vöruskiptum

Fyrstu fjóra mánuði ársins var mun meira flutt inn til landsins en frá því og var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um sextán milljarða króna, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Á sama tímabili í fyrra var hallinn á vöruskiptum hins vegar 3,4 milljarðar. Í prósentum jókst hallinn tæplega fjórfalt. Vöruskiptin í apríl voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna, sem er mikil breyting frá apríl árið 2004 þegar hallinn var 2,9 milljarðar á föstu gengi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kærum Kers og Olís vísað frá

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur vísað frá kærum Kers og Olís vegna þeirrar ákvörðunar Samkeppnisstofnunar að veita Landssambandi íslenskra útvegsmanna aðgang að upplýsingum tengdum samráði olíufélaganna sem áður höfðu verið felldar úr úrskurði samkeppnisráðs vegna trúnaðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fiskimjölsverksmiðjan seld

Samherji hf. hefur selt fiskimjölsverksmiðju sína í Grindavík til Síldarvinnslunnar hf. en sem kunnugt er hefur verksmiðjan ekki verið starfrækt frá því í byrjun febrúar síðastliðins eftir að mikill eldur kom upp í verksmiðjunni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Æ fleiri heitir reitir hjá OgVodafone

Sífellt fleiri fyrirtæki bjóða viðskiptavinum sínum upp á Heita reiti (Hot Spot), þráðlausa háhraða nettengingu, frá Og Vodafone. Um 50 veitinga- og kaffihús og ýmiss konar þjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjanesbæ og á Akureyri hafa nú þegar tekið þjónustuna í notkun.

Innlent
Fréttamynd

ASÍ bregst harkalega við

ASÍ bregst harkalega við yfirlýsingum fjármálaráðherra um vaxtabótakerfið. Ráðherrann telur koma til greina að endurskoða kerfið frá grunni. Samtök atvinnulífsins telja hins vegar fullt tilefni til að lækka vaxtabætur þar sem fasteignaviðskipti drífi áfram verðbólguna.  

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Efnahagslífið ekki að ofhitna

Í nýrri skýrslu OECD er staðhæft að íslenskt efnahagslíf sé að ofhitna og til að mynda hafi verðbólga farið yfir ytri mörk Seðlabankans á undanförnum mánuðum. Fjármálaráðuneytið mótmælir þessu. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagræðingin að engu orðin

Hagræðingin sem heimilin í landinu náðu fram með uppgreiðslu yfirdráttarlána vegna endurfjármögnunar fasteignalána virðist að engu orðin. Skuldir vegna yfirdráttarlána eru nú jafnmiklar og fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaðnum. Merki um mikla neyslu, segir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Næstbesta afkoma frá upphafi

Flugleiðir, eða FL Group, skiluðu 25 milljóna króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins sem er um 880 milljónum króna betri afkoma en á sama tímabili í fyrra. Þetta er næstbesta afkoma af starfsemi félagsins á þessum árstíma frá upphafi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn: Bjóðendur opinberaðir

Bjóðendur í Símann verða opinberaðir í dag. Alls bárust fjórtán tilboð í fyrirtækið en að baki þeim standa þrjátíu og sjö fjárfestar, innlendir og erlendir. Tilboðunum var skilað inn fyrir réttri viku og hafa framkvæmdanefnd um einkavæðingu og ráðgjafar frá Morgan-Stanley farið yfir þau.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Nöfn bjóðenda í Símann birt

Einkavæðingarnefnd hefur birt nöfn þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem buðu í Símann en fjórtán óbindandi tilboð bárust í hlut ríkisins í fyrirtækinu. Tveir erlendir fjárfestar voru útilokaðir frá því að gera bindandi tilboð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tólf áfram

Tólf hópar munu fá tækifæri til að gera bindandi tilboð í Símann. Helmingur þeirra eru erlendir fjárfestar, en erlendir aðilar koma að tilboðum fleiri. Hópur kvenna í atvinnulífinu undir forystu fyrrverandi aðstoðarforstjóra Íslandssíma er á meðal þeirra sem komust í aðra umferð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

2 milljarða hagnaður Orkuveitunnar

Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur nam tæpum tveimur milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við 340 milljónir á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem Orkuveitan birti í dag. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SPRON kaupir ekki Allianz

Áform SPRON um kaup á 80 prósenta hlut í Hringi eignarhaldsfélagi, sem er eignarhaldsfélag utan um rekstur Allianz á Íslandi, hafa runnið út um þúfur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaður Símans þrefaldast

Hagnaður Símans á fyrsta ársfjórðungi þrefaldaðist á milli áranna 2004 og 2005. Hann var rúmir 1,2 milljarðar króna í ár en var á sama tímabili í fyrra 409 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum. Þar segir einnig að Síminn hafi á tímabilinu selt öll hlutabréf sín í Straumi fjárfestingabanka hf. og nam hagnaður af sölunni eftir skatta 576 milljónum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Varar við ofnhitnun í efnahagslífi

Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir efnahagslífið á Íslandi vera að ofhitna. Ríkið verði að draga úr útgjöldum og vextir að hækka til að koma í veg fyrir að verðbólgan fari úr böndunum. Annars sé hætta á kreppuástandi þegar gengi krónunnar fer að lækka og dregur úr áhrifum stóriðjuframkvæmda.

Innlent
Fréttamynd

Nýr forstjóri Samskipa frá Mærsk

Fyrrverandi forstjóri Mærsk-skipafélagsins, Michael F. Hassing, verður næsti forstjóri Samskipa við hlið Ásbjörns Gíslasonar sem flytur sig um set til Íslands. Núverandi forstjóri, Knútur G. Hauksson, tekur við forstjórastarfi hjá Heklu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Yfirdráttarlán aftur í sama horf

Frá lokum febrúar hafa heimilin aukið yfirdráttarlán sín um rúma tvo milljarða króna. Aukningin kom að mestu leyti fram í mars enda jukust yfirdráttarlán heimilanna aðeins lítillega í apríl eða um rúmar 350 milljónir króna. Í lok apríl skulduðu heimilin 60,5 milljarða króna í yfirdráttarlán og eru yfirdráttarlánin því orðin jafn há og þau voru fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gengi krónu heldur áfram að hækka

Gengi krónunnar hækkaði í gær um 0,7 prósent og hefur haldið áfram að styrkjast í morgun. Hefur gengið hækkað um nær 4 prósent á rúmri viku. Á þessum tíma hefur dollarinn farið úr tæplega 67 krónum niður í ríflega 64 krónur, evran úr ríflega 84 krónum niður í ríflega 81 krónu og pundið úr 123 krónum niður í 118.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Davíð ásamt nefnd til Japans

Davíð Oddsson utanríkisráðherra mun fara fyrir viðskiptasendinefnd til Japans í september næstkomandi. Á vef Útflutningsráðs segir að ferðin sé sniðin bæði að þeim fyrirtækjum sem séu þegar í viðskiptum á svæðinu og þeim sem vilji hefja samstarf eða markaðssókn inn á þennan markað.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanlega engin niðursveifla

Niðursveiflan sem spáð hafði verið í efnahagslífinu kemur alls ekki eða seinkar að minnsta kosti um nokkur ár. Þetta telur fjármálaráðherra að gæti gerst í ljósi mikils áhuga á frekari stóriðjuframkvæmdum.

Innlent
Fréttamynd

Stýrir gámaflutningastarfsemi ytra

Daninn Mikael Hassing, fyrrverandi forstjóri skipafélagsins Mærsk á Bretlandi, hefur verið ráðinn forstjóri Samskipa, við hlið Ásbjörns Gíslasonar. Hassing stýrir gámaflutningastarfsemi Samskipa erlendis.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Breytingar á yfirstjórn Heklu

Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, færir sig um set um næstu mánaðamót og tekur við starfi forstjóra Heklu ásamt því að koma inn í eigendahóp fyrirtækisins. Tryggvi Jónsson, núverandi forstjóri Heklu, verður hins vegar stjórnarformaður félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Viðskipti innlent