Íþróttir

Fréttamynd

Mauresmo í efsta sæti heimslistans

Franska tenniskonan Amelie Mauresmo er kominn í efsta sæti heimslistans í annað sinn á ferlinum, en nýr listi var birtur í dag. Mauresmo, sem vann sigur á opna ástralska meistaramótinu á dögunum, er komin upp fyrir belgísku tenniskonuna Kim Clijsters. Justine Henin-Hardene er í þriðja sæti listans, Maria Sharapova í því fjórða og Lindsay Davenport í fimmta.

Sport
Fréttamynd

Einbeiting er lykillinn að gengi Reading

Íslenski landsliðsmaðurinn Brynjar Björn Gunnarsson hjá Reading, segir í samtali við BBC í dag að andlegur styrkur leikmanna liðsins og einbeiting séu meginástæður þess að liðið er komið langt með að tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinni að ári, en sigur gegn Leicester á laugardaginn tryggir liðinu úrvalsdeildarsætið.

Sport
Fréttamynd

Manchester City - West Ham í beinni

Einn leikur fer fram í enska bikarnum í kvöld þegar Manchester City tekur á móti West Ham í undanúrslitum keppninnar. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 19:55.

Sport
Fréttamynd

Fordæmir átökin á Craven Cottage

Brian Barwick, yfirmaður enska knattspyrnusambandsins, hefur fordæmt átökin sem urðu eftir leik Fulham og Chelsea á Craven Cottage um helgina, þegar áhorfendur réðust inn á völlinn og slógust við lögreglu. Aðeins einn maður var þó handtekinn í kjölfarið, en atvikið er litið mjög alvarlegum augum.

Sport
Fréttamynd

Allir verkamenn sendir heim

Nú er útlit fyrir að enn frekari tafir verði á byggingu nýja Wembley-leikvangsins í London, eftir að allir verkamenn á svæðinu voru sendir heim í dag. Ástæðan er sú að verkamenn á svæðinu heyrðu háværan hvell þegar þeir voru við störf og er óttast að hluti af þaki byggingarinnar hafi pompað niður um næstum einn metra.

Sport
Fréttamynd

Dómarinn lét leikmenn hafa áhrif á sig

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, vill meina að dómarinn hafi látið leikmenn Fulham hafa áhrif á ákvörðun sína í leik liðanna um helgina, þegar hann dæmdi mark af Didier Drogba. Markið reyndist réttilega ólöglegt, en Mourinho telur að það hefði fengið að standa ef ekki hefði verið fyrir kröftug mótmæli leikmanna Fulham.

Sport
Fréttamynd

Pires ekki í viðræðum við Rangers

Umboðsmaður franska miðjumannsins Robert Pires hjá Arsenal segir að leikmaðurinn sé ekki í viðræðum við nein önnur félög um nýjan samning, en breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Pires ætti í viðræðum við skoska liðið Glasgow Rangers.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Nets á Dallas í sex ár

Lið New Jersey Nets vann í nótt sinn fyrsta sigur á Dallas í heil sex ár þegar liðin áttust við í New Jersey og fóru leikar 100-89 fyrir heimamenn. Richard Jefferson skoraði 28 stig fyrir Nets, en Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas.

Sport
Fréttamynd

Ólæti á Craven Cottage

Fulham má búast við eftirmála í kjölfar leiksins gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld vegna óláta sem urðu að leik loknum á Craven Cottage, heimavelli Fulham.

Sport
Fréttamynd

Skallagrímur í undanúrslit eftir framlengingu í Grindavík

Skallagrímur varð í kvöld þriðja liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express-deildar karla í körfubolta þegar liðið hafði betur í framlengingu gegn Grindavík, 73-77. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn, 65-65 og því þurfti að framlengja í Grindavík.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík í undanúrslit - framlengt í Grindavík

Njarðvík varð í kvöld annað liðið til að tryggja sig í undanúrslit Iceland Express deildarinnar í körfubolta eftir 2 stiga sigur á ÍR í Seljaskóla, 76-78. Leikur Skallagríms og Grindavíkur fer í framlengingu en lokatölur eftir venjulegan leiktíma í Grindavík urðu 65-65. Borgnesingar voru einu stigi yfir í hálfleik, 35-36.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur aftur á toppinn

Haukar komust aftur á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á næst neðsta liði deildarinnar, Víkingi á Ásvöllum í Hafnarfirði, 31-23. Ramune Pekeskyten var markahæst Hauk með 12 mörk en Hekla Daðadóttir var markahæst Víkinga með 7 mörk.

Sport
Fréttamynd

"Dómarinn lét Fulham hafa áhrif á sig"

Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea var að vonum niðurlútur eftir að hans menn töpuðu óvænt fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni nú undir kvöldið. Lokatölur urðu 1-0 í vestur Lundúnaslagnum í ensku úrvalsdeildinni. Mourinho gerði þó minna af því en venjulega eftir tapleik að skella skuldinni á aðra en sig sjálfan eða sína leikmenn.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá ÍBV og Val

ÍBV og Valur gerðu jafntefli, 24-24 í Vestmannaeyjum í DHL-deild karla í handbolta í kvöld en þetta var frestaður leikur sem fram átti að fara í gær. Mladen Cacic var markahæstur heimamanna í ÍBV með 9 mörk en Hjalti Þór Pálmason skoraði mest Valsmanna eða 7 mörk. Valur er í 3. sæti deildarinnar með 30 stig.

Sport
Fréttamynd

Scolari ræddi við Englendinga

Enska knattspyrnusambandið fundaði fyrir helgi með landsliðsþjálfara Portúgala, Luiz Felipe Scolari, um stöðu landsliðsþjálfara enska landsliðsins. Þessu halda fjölmargir enskir fjölmiðlar fram í dag en enska sambandið leitar nú logandi ljósi að eftirmanni Sven-Göran Eriksson sem hættir með liðið eftir HM í Þýskalandi í sumar.

Sport
Fréttamynd

Fulham vann Chelsea

Fulham náði með elju og mikilli fyrirhöfn að landa 1-0 heimasigri á Englandsmeisturum Chelsea nú undir kvöldið með marki Luis Boa Morte á 17. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea en Heiðar Helguson sat á varamannabekk Fulham og kom inn á þegar 70 mínútur voru liðnar af leiknum.

Sport
Fréttamynd

Markalaust hjá Keflavík og Þór A

Fimm leikir eru á dagskrá í A-Deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í dag og er tveimur þeirra lokið. Grindavík og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í Reykjaneshöll og í Fífunni gerðu Keflavík og Þór Akureyri markalaust jafntefli.

Sport
Fréttamynd

Eyjastúlkur á toppinn

ÍBV tyllti sér á topp DHL-deildar kvenna í handbolta síðdegis með því að leggja FH að velli í Eyjum, 29-23. Eyjastúlkur eru með eins stig forystu á Val og Hauka en Hafnarfjarðarliðið getur endurheimt toppsætið um kvöldmatarleytið þegar Haukar mæta næst neðsta liðinu, Víkingi kl. 18.

Sport
Fréttamynd

Fulham yfir gegn Chelsea í hálfleik

Fulham er yfir í hálfleik, 1-0 gegn Englandsmeisturum Chelsea með marki Luis Boa Morte á 17. mínútu en leikurinn hófst kl. 16. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea en Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham. Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea trompaðist á hliðarlínunni eftir að Fulham komst yfir og gerði tvær breytingar á liði sínu strax á 26. mínútu og þriðju breytinguna í hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Udinese átti ekki séns í AC Milan

Andriy Shevchenko skoraði 18. markið sitt í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að skora tvö mörk þegar AC Milan tók Udinese í kennslustund með 4-0 útisigri. Inter Milan er tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum eftir 3-1 sigur á Lazio í dag þar sem Alvaro Recoba skoraði tvívegis.

Sport
Fréttamynd

Alkmaar í 2. sætið

Grétar Rafn Steinsson lék síðustu 20 mínúturnar með liði AZ Alkmaar sem komst í dag í 2. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með því að sigra Feyenoord 1-0. Leikurinn var afar fjörugur og fóru bæði lið með fjölda færa forgörðum en úrslitin þýða að liðin höfðu sætaskipti í deildinni. Arnar Þór Viðarsson var ekki í leikmannahópi Twente sem gerði 1-1 jafntefli við botnlið Roosendaal.

Sport
Fréttamynd

Eiður ekki í hópnum gegn Fulham

Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham sem tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikurinn hefst kl. 16. Athygli vekur að Eiður Smári Guðjohnsen er ekki svo mikið sem í leikmannahópi Chelsea í dag en ekki er vitað til þess að nein meiðsli væru að hrjá íslenska landsliðsfyrirliðann fyrir leikinn.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Liverpool á Newcastle

Liverpool vann öruggan útisigur á Newcastle, 3-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Peter Crouch, Steven Gerrard og Djibril Cisse skoruðu mörk Liverpool sem er í 3. sætil deildarinnar með 61 stig, tveimur stigum á eftir Man Utd sem á tvo leiki til góða.

Sport
Fréttamynd

Rokklag um fótboltamann slær í gegn á Englandi

Eitt vinsælasta rokklagið í Bretlandi þessa dagana fjallar um sóknarmann enska 2. deildarliðsins Brentford, Lloyd Owusu. Þannig er í pottinn búið að bassaleikari hinnar ævafornu rokksveitar Status Quo, John 'Rhino' Edwards, er mikill stuðningsmaður Brentford sem leikur í C-deildinni í knattspyrnu á Englandi.

Sport
Fréttamynd

Eto'o ekki falur fyrir neina fjárhæð

Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona segir að kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto'o sé ekki falur, sama hvaða fjárhæð verði boðin í leikmanninn. Sögusagnir herma að Chelsea hafi boðið 50 milljónir punda í leikmanninn þegar liðin mættust í Meistaradeildinni fyrr í mánuðinum.

Sport
Fréttamynd

Sif og Viktor Íslandsmeistarar í fjölþraut

Sif Pálsdóttir Gróttu og Viktor Kristmannsson Gerplu urðu í gær Íslandsmeistarar í fjölþraut í fimleikum. Keppt var í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi en allt okkar besta fimleikafólk tekur þátt í mótinu. Í gær var keppt í fjölþraut karla og kvenna.

Sport
Fréttamynd

Ástrali kominn með 4 högga forystu

Ástralinn Rod Pampling er með fjögurra högga forystu á Bay Hill boðsmótinu í bandaríksku mótaröðinni þegar átján holur eru eftir. Frábærar aðstæður voru á Bay Hill vellinum í gær en mótið er eitt það sterkasta á bandarísku mótaröðinni.

Sport
Fréttamynd

Óvenju lágt skor Wade dugði Miami til sigurs

Leikur Dwyane Wade og Shaquille O'Neal hjá Miami Heat einkenndist af miklum villuvandræðum þegar lið þeirra marði eins stigs sigur á Chicago Bulls, 85-84 í NBA deildinni í körfubolta í nótt.

Sport
Fréttamynd

Óli Stef með fjögur í sigri Ciudad

Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad Real sem vann fimm marka sigur á Valladolid, 34-29 í spænska handboltanum í gærkvöldi. Ciudad er í 3. sæti úrvalsdeildarinnar með 36 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur raðar inn mörkunum

Guðjón Valur Sigurðsson var maður leiksins og skoraði 13 mörk eða um helming marka sinna manna þegar lið hans Gummersbach marði eins marks sigur á Kronau/Östringen, 27-26 í þýsku Bundesligunni í handbolta í gærkvöldi. Guðjón er langmarkahæsti leikmaðurinn í deildinni með 197 mörk.

Sport