Erlendar

Fréttamynd

Djokovic hafði betur gegn Nadal

Serbinn Novak Djokovic sigraði Rafael Nadal frá Spáni í úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem lauk í gærkvöldi. Úrslitin fóru fram á Flushing Meadows vellinum í New York.

Sport
Fréttamynd

Serena sektuð fyrir kjaftbrúk

Tenniskonan Serena Williams hefur verið sektuð um tæplega 240 þúsund krónur fyrir að láta dómarann heyra það í úrslitaleik US Open.

Sport
Fréttamynd

Serena Williams fór létt með Wozniacki og er komin í úrslit

Serena Williams er komin í úrslitaleikinn á opna bandaríska meistaramótinu í tennis eftir sannfærandi sigur á dönsku stelpunni Carolinu Wozniacki í nótt. Wozniacki er í efsta sæti á heimslistanum en bið hennar eftir fyrsta sigrinum á risamóti lengist því enn.

Sport
Fréttamynd

Djokovic reis upp frá dauðum og sló út Federer

Serbinn Novak Djokovic kom til baka úr nánast vonlausri stöðu og tryggði sér sæti í úrslitaleik opna bandaríska meistaramótsins með 3-2 sigri á Svisslendingnum Roger Federer. Roger Federer var kominn í 2-0 en tókst ekki að slá út Serbann snjalla sem er á eftir sínum fyrsta sigri á opna bandaríska meistaramótinu.

Sport
Fréttamynd

Byssubrandurinn Burress brjálaður út í Eli Manning

NFL-leikmaðurinn Plaxico Burress, sem varð heimsfrægur fyrir að skjóta sjálfan sig í fótinn á næturklúbbi í New York, er enn foxillur út í þjálfara og aðalstjörnu NY Giants. Burress fékk engan stuðning frá þeim er hann lenti í atvikinu en hann var í kjölfarið dæmdur til þess að sitja í steininum í tvö ár.

Sport
Fréttamynd

NFL-meistararnir í Green Bay byrjuðu á flottum sigri

Green Bay Packers liðið vann Ofurskál ameríska fótboltans (Super Bowl) í upphafi ársins og byrjaði nýtt NFL-tímabil í nótt á góðum 42-34 heimasigri á New Orleans Saints í þessu uppgjöri NFL-meistara undanfarinna tveggja ára.

Sport
Fréttamynd

US Open klárast á mánudaginn

Mótshaldarar á opna bandaríska meistaramótinu í tennis hafa ákveðið að úrslitaleikirnir í einliðaleik karla og kvenna fari fram degi síðar en áætlað var.

Sport
Fréttamynd

Carl Lewis meinað að bjóða sig fram

Alríkisdómstóll í Bandaríkjunum hefur meinað fyrrum frjálsíþróttakappanum Carl Lewis að bjóða sig fram í kosningum til öldungadeildar New Jersey-fylkis.

Sport
Fréttamynd

Manning missir af sínum fyrsta leik í 13 ár

Eftir að hafa verið í byrjunarliði Indianapolis Colts í 227 leikjum í röð þarf Peyton Manning að sætta sig við að horfa á leik Colts úr stúkunni um helgina. Manning hefur ekki misst úr leik í 13 ár eða síðan hann komst í liðið þann 6. september árið 1998.

Sport
Fréttamynd

Tímabilið í NFL hefst á stórleik

Tímabilið í NFL-deildinni hefst í kvöld með sannkölluðum stórleik liðanna sem hafa unnið Super Bowl síðustu tvö ár. Meistarar Green Bay Packers taka þá á móti New Orleans Saints.

Sport
Fréttamynd

Var Arturo Gatti myrtur?

Sérfræðingar segja nú líkur á því að hnefaleikakappinn Arturo Gatti, sem lést árið 2009, hafi ekki framið sjálfsmorð. Rannsóknir sýna að höfuðhögg hafi líklega leitt hann til dauða.

Sport
Fréttamynd

Wozniacki gerði grín að Nadal á blaðamannfundi

Danska tennisstjarnan Caroline Wozniacki er þekkt fyrir skemmtilega framkomu og hún tók sig til og gerði grín að Spánverjanum Rafael Nadal þegar hún settist í stólinn sinn á blaðamannafund í gær.

Sport
Fréttamynd

Wozniacki þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum

Caroline Wozniacki frá Danmörku þurfti að hafa mikið fyrir því að komast í átta manna úrslit opna bandaríska meistaramótsins í tennis í gær. Wozniacki, sem er efst á heimslistanum, rétt marði Svetlana Kuznetsova frá Rússlandi í leik sem stóð yfir í rúmlega þrjá tíma.

Sport
Fréttamynd

Federer og Tsonga eigast við í átta manna úrslitum

Stærstu nöfnin í tennisíþróttinni í karla – og kvennaflokki halda sínu striki á opna bandaríska meistaramótinu. Frakkinn Jo-Wilfried Tsonga lagði Mardy Fish frá Bandaríkjunum, 6-4, 6-7 (5), 3-6, 6-4, 6-2, og komst þar með í átta manna úrslit þar sem hann mætir Roger Federer frá Sviss. Federer hefur unnið 16 stórmót á ferlinum og er þetta í 30. skipti sem hann kemst í átta manna úrslit á stórmóti.

Sport
Fréttamynd

Úr fangelsi í NFL-deildina

Fyrir rúmum tveimur árum sat Jimmy Wilson í fangelsi ákærður fyrir morð. Í dag er hann á mála hjá Miami Dolphins og mun keppa í NFL-deildinni í vetur.

Sport
Fréttamynd

Nadal hrundi í gólfið á blaðamannafundi

Tennisstjarnan Rafael Nadal er á fullri ferð í titilvörn sinni á bandaríska meistaramótinu og vann síðast Argentínumanninn örugglega í þriðju umferð. Atvik á blaðamannafundinum eftir leikinn vakti þó nokkurn óhug meðal fjölmiðlafólksins á staðnum.

Sport
Fréttamynd

Heimsmet hjá Bolt og félögum

Usain Bolt og félagar í sprettsveit Jamaíka gerðu sér lítið fyrir og settu í dag heimsmet í 4x100 metra hlaupi karla. Þeir komu í mark á 37,04 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Bolt: Sýndi heiminum að ég er enn bestur

Fótfráasti maður jarðarinnar, Jamaíkumaðurinn Usain Bolt, vann öruggan sigur í 200 metra hlaupi á HM í frjálsum íþróttum í dag. Bolt kom í mark á 19,40 sekúndum sem er þriðja besti tími Bolt í greininni.

Sport
Fréttamynd

Ótrúlegur sigur hjá Murray

Andy Murray var afar létt eftir að honum hafði tekist að vinna nauman sigur á Hollendingnum Robin Haase í fimm settum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis.

Sport