Erlendar

Fréttamynd

Nadal ekki alvarlega meiddur

Spánverjinn Rafael Nadal mun geta spilað í næstu umferð á Wimbledon-mótinu í tennis. Rannsóknir hafa leitt í ljós að meiðsli sem hann varð fyrir í síðustu umferð eru ekki alvarleg.

Sport
Fréttamynd

Hápunktar úr leikjum dagsins á Wimbledonmótinu í tennis

Það var mikið um óvænt úrslit í einliðaleik kvenna þegar að 16-manna úrslitin hófust á Wimbledon-mótinu í tennis í dag. Hin danska Caroline Wozniacki, efsta kona heimslistans, féll úr leik sem og báðar Williams-systurnar. Serena Williams átti titil að verja á mótinu en hún tapaði fyrir Marion Bartoli frá Frakklandi í tveimur settum, 6-3 og 7-6. Þetta var fyrsta mót Serenu í tæpt ár vegna meiðlsa og veikinda sem hafði ef til vill sitt að segja.

Sport
Fréttamynd

Ekkert óvænt í karlaflokki á Wimbledon

Allir fjórir efstu á heimslistanum í tennis komust í dag áfram í fjórðungsúrslit einliðaleiks karla á Wimbledon-mótinu í dag. Fátt var um óvænt úrslit í 16-manna úrslitunum sem fóru öll fram í dag.

Sport
Fréttamynd

Williams-systur og Wozniacki úr leik

Það var mikið um óvænt úrslit í einliðaleik kvenna þegar að 16-manna úrslitin hófust á Wimbledon-mótinu í tennis í dag. Hin danska Caroline Wozniacki, efsta kona heimslistans, féll úr leik sem og báðar Williams-systurnar.

Sport
Fréttamynd

Nadal og Federer áfram - Söderling úr leik

Rafael Nadal og Roger Federer komust báðir áfram í 16-manna úrslit í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu í tennis í dag. Öllum viðureignum í 32-manna úrslitum í kvenna- og karlaflokki er lokið.

Sport
Fréttamynd

Boris Becker rífst við móður Andy Murray

Þjóðverjinn Boris Becker lét hafa eftir sér fyrr á árinu að Skotinn Andy Murray ætti að rjúfa samband sitt við móður sína meðan á keppnisferðalagi hans stæði. Óhætt að segja að ummælin hafi vakið litla hrifningu hjá mömmunni Judy Murray.

Sport
Fréttamynd

Serena Williams á langt í land eftir langa fjarveru

Serena Williams hóf titilvörn sína á Wimbledon meistaramótinu í tennis í dag með því að leggja Aravane Rezai að velli í fyrstu umferð. Williams hefur ekkert keppt í heilt ár vegna meiðsla og veikinda og á hún töluvert langt í land með að ná fyrri styrk.

Sport
Fréttamynd

Dæmdir úr leik á EM fyrir að reykja í laumi

Það er ekki á hverjum degi sem að íþróttamenn eru dæmdir úr leik í miðri keppni á stórmóti vegna notkunar á ólöglegum efnum. Það gerðist hinsvegar á Evrópumeistaramótinu í keilu sem fram fer í München í Þýskalandi. Þrír keppendur voru dæmdir úr leik eftir að þeir voru staðnir að því að reykja fyrir utan keppnishöllina en keppendurnir komu frá Finnlandi, Slóvakíu og Rúmeníu.

Sport
Fréttamynd

Nadal hóf titilvörnina á Wimbledon með sigri

Rafael Nadal frá Spáni hóf titilvörnina í gær á Wimbledon stórmótinu í tennis með því að leggja Bandaríkjamanninn Michael Russell í þremur settum í fyrstu umferð. Hinn 25 ára gamli Nadal var nokkuð lengi í gang en hann sigraði 6-4, 6-2 og 6-2. Nadal er efstur á heimslistanum og líklegur til afreka á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Tvöfaldur sigur hjá Brasilíu á HM í strandblaki, myndir

Heimsmeistaramótinu í strandblaki í karla og – kvennaflokki lauk í Róm á Ítalíu um helgina. Larissa Franca og Juliana Felisberta Silva frá Brasilíu sigruðu í kvennaflokknum og Brasilía fagnaði einnig sigri í karlaflokknum þar sem að Emanuel Rego og Alison Cerutti stóðu uppi sem sigurvegarar.

Sport
Fréttamynd

Óeirðir í Vancouver eftir sigur Bruins í Stanley Cup

Boston Bruins sigraði Vancouver Canucks 4-0 í oddaleik um Stanley-bikarinn í íshokkí í Vancouver í nótt. Það er óhætt að segja að stuðningsmenn heimaliðsins hafi tekið tapinu illa. Slagsmál brutust út á götum Vancouver og þurfti að kalla til óeirðarlögreglu sem beitti táragasi.

Sport
Fréttamynd

Clijsters hættir við keppni á Wimbledon

Belgíska tenniskonan Kim Clijsters hefur dregið sig út úr Wimbledon-mótinu í tennis sem hefst um helgina. Clijsters sem er önnur á heimslistanum glímir við meiðsli á fæti. Hún segir það mikil vonbrigði að þurfa að hætta við þátttöku.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Serenu eftir árs fjarveru

Serena Williams sneri aftur á tennisvöllinn í dag eftir 12 mánaða fjarveru frá íþróttinni. Hún sigraði hina búlgörsku Tsvetana Pironkova í þremur settum í Eastbourne mótinu á Englandi í dag.

Sport
Fréttamynd

Murray slátraði Roddick

Skotinn Andy Murray fór illa með nafna sinn Andy Roddick í undanúrslitum á AEGON Meistaramótinu í tennis í Queen í Englandi í dag. Bandaríkjamaðurinn Roddick átti ekkert svar við stórleik Murrey sem sigraði í tveimur settum 6-3 og 6-1.

Sport
Fréttamynd

Ragna leikur til úrslita í Litháen

Ragna Ingólfsdóttir vann í dag glæsilegan sigur í undanúrslitum á alþjóðlega litháenska mótinu í badminton. Ragna sigraði Svisslendinginn Jeanine Cicognini í tveimur lotum 21-18 og 25-23. Ragna leikur til úrslita á morgun.

Sport
Fréttamynd

Ragna komin í undanúrslit í Litháen

Ragna Ingólfsdóttir er komin í undanúrslit á alþjóðlega litháenska mótinu í badminton. Ragna sigraði heimakonuna Akvile Stapusaityte í þremur lotum 17-21, 21-14 og 21-5. Leikurinn tók 47 mínútur.

Sport
Fréttamynd

Burress sleppur úr steininum í dag

Vandræðagemsinn Plaxico Burress sleppur úr steininum í dag en hann hefur mátt dúsa þar síðustu 20 mánuði fyrir að skjóta af byssu á næturklúbbi í New York.

Sport
Fréttamynd

Nadal enn konungur leirsins

Rafael Nadal vann í dag sigur á opna franska meistaramótinu í tennis í sjötta sinn á ferlinum. Hann lagði Roger Federer í úrslitaviðureiginni með þremur settum gegn einu.

Sport
Fréttamynd

Úrslitin í opna franska: Federer gegn Nadal

Draumaúrslitaleikur Roger Federer og Rafael Nadal á opna franska meistaramótinu í tennis hefst klukkan eitt. Með sigri jafnar Nadal með Svíans Björn Borg sem stóð uppi sem sigurvegari á mótinu sex sinnum á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Li í úrslitin í París

Li Na frá Kína komst í dag í úrslit einliðaleiks kvenna á opna franska meistaramótinu í París eftir sigur á Mariu Sharapovu í undanúrslitum.

Sport
Fréttamynd

Djokovic komst í undanúrslit án þess að spila

Novak Djokovic, sem enn hefur ekki tapað tennisviðureign á árinu, er kominn áfram í undanúrslitin á opna franska meistaramótinu vegna þess að andstæðingur hans í fjórðungsúrslitunum dró sig úr leik vegna meiðsla.

Sport
Fréttamynd

Ótrúleg mistök á lokahring Indy-500 kappakstursins

Bandaríkjamaðurinn J.R. Hildebrand fór illa að ráði sínu í Indianapolis-500 kappakstrinum sem lfram fór í gær. Hinn 23 ára nýliði hafði gott forskot á keppinauta sína á lokahringnum þegar hann missti stjórn á bíl sínum með þeim afleiðingum að hann keyrði á vegg.

Sport