
Körfuboltakvöld

„Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“
Jaka Brodnik og félagar í Keflavíkurliðinu voru sjóðandi heitir í gærkvöldi þegar þeir sendu Álftnesinga í sumarfrí eftir sannfærandi sigur í fjórða leik liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta.

Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið
Titilvörn Tindastóls hefur verið ein sú lélegasta í sögunni og aðeins algjör hugarfarsbreyting og söguleg endurkoma getur bjargað úrslitakeppninni hjá liðinu. Kannski væri góð byrjun að hlusta aðeins á sérfræðing Körfuboltakvölds.

Teitur vildi líka velja tæknivillutroðið
Það var nóg af tilþrifum í fyrsta leik Grindavíkur og Tindastóls í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta.

Teitur: Ég held að Grindavík líði ekki vel
Grindvíkingar urðu í öðru sæti deildarkeppninnar en fengu að launum að mæta ríkjandi Íslandsmeisturum Tindastóls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

„Þetta þarf Kjartan að taka af Keflvíkingum“
Keflvíkingar unnu sinn fyrsta titil í tólf ár þegar þeir urðu bikarmeistarar á dögunum og í kvöld hefst vegferð þeirra að reyna að enda líka sextán ára bið eftir Íslandsmeistaratitlinum.

Hjálpaðu Körfuboltakvöldi við að velja besta lið sögunnar
Subway Körfuboltakvöld hefur verið að leita að besta liði körfuboltasögunnar í allan vetur og nú er komið að úrslitum.

Maté um fyrrum leikmann: „Hann var eiginlega alveg f***ing óþolandi“
Það var líf og fjör í síðasta þætti af Körfuboltakvöld Extra. Þar tók Tómas Steindórsson sig til og valdi lélegustu leikmenn sem hafa spilað undir stjórn Maté Dalmay, þjálfara Hauka í Subway-deild karla.

Hár, atvik og djammari ársins: „Býr á Króknum en missir ekki úr helgi í Reykjavík“
Strákarnir í Körfuboltakvöldi Extra veittu ýmsar óvenjulegar viðurkenningar í síðasta þætti sínum fyrir lok deildakeppninnar í Subway-deild karla í körfubolta.

„Betri en hann var nokkurn tímann með Njarðvík“
„Það er þessi reynslubolti í Hauki Helga Pálssyni sem er svolítið að ganga frá þessum leik,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds, eftir að Álftanes lagði Hauka í Ólafssal.

Stóru málin krufin til mergjar í Framlengingunni
Það var langur föstudagur í fyrradag og því viðeigandi að skella í framlengingu í Körfuboltakvöldi. Þeir Ómar Örn og Sævar Sævarssynir (ekki bræður) voru seinþreyttir til vandræða og voru sammála um margt.

Skelfileg titilvörn Tindastóls: „Rosalega fljótir að verða litlir í sér“
Íslandsmeistarar Tindastóls misstu sigur sér úr greipum gegn Hetti í næstsíðustu umferð Subway deildar karla. Titilvörn þeirra er nú í mikilli hættu og útlit er fyrir að liðið komist ekki inn í úrslitakeppnina.

Tilþrifin: „Eini Daninn í heiminum sem kann að troða“
Að venju voru bestu tilþrif umferðarinnar valin af sérfræðingum Subway Körfuboltakvölds.

Sætin sem liðin geta tryggt sér í lokaumferð Subway deildar karla
Subway deild karla í körfubolta hefur líklegast aldrei verið jafnari eða meira spennandi. Það sést vel á því hvað mikið getur breyst í töflunni í lokaleik liðanna á fimmtudagskvöldið kemur.

Teitur: Ég býð ekki í það ef þeir detta þar út því þá gæti þetta farið illa
Íslandsmeistarar Tindastóls eiga möguleika á því að verða handhafar beggja stóru titlana eftir næstu helgi en til að byrja með þurfa þeir að vinna undanúrslitaleik á móti Álftanesi í VÍS-bikarnum í Laugardalshöllinni í dag.

Magnaður leikmaður með mikið vopnabúr: „Ekki eins og það sé einhver aukvisi að dekka hann“
Dúi Þór Jónsson átti hreint út sagt magnaðar lokamínútur þegar hann tryggði Álftanesi sigur gegn uppeldisfélagi sínu, Stjörnunni, síðastliðinn fimmtudag.

Flokkuðu liðin í Subway-deildinni fyrir úrslitakeppnina
Spáð var í spilin fyrir komandi úrslitakeppni í Subway-deildinni í þættinum Subway Körfuboltakvöld á föstudaginn. Aðeins tvær umferðir eru eftir af deildakeppninni.

Grindvíkingar líklegastir til að taka þann stóra: „Þetta var ógeðslega sannfærandi“
Sérfræðingar Körfuboltakvölds telja að Grindavík sé líklegasta liðið til að fagna Íslandsmeistaratitlinum í körfubolta í vor.

Foxillur Kjartan grýtti spjaldinu í gólfið: „Áran yfir þeim rosa þung og leiðinleg“
Það er mikið í húfi hjá körfuboltaliði Álftaness á næstu vikum en sérfræðingarnir í Subway Körfuboltakvöldi voru sammála um að áran yfir liðinu gæfi ekki ástæðu til bjartsýni.

„Nú verð ég að passa mig að syngja ekki of mikið“
Pétur Rúnar Birgisson, fyrirliði Tindastóls, var með hljóðnemann á sér í síðasta leik Stólanna þar sem liðið vann góðan sigur á Haukum á Ásvöllum.

Flugeldar og fagnaðarlæti eftir fyrsta sigur Hamars
Hamarsmenn unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í Subway-deild karla í körfubolta síðastliðinn fimmtudag. Stuðningsmenn Hamars voru því í aðalhlutverki í síðasta þætti Körfuboltakvölds.

Tilþrifin:„Algjörlega geðveikislega vel gert hjá Julio De Assis“
„Við elskum góð tilþrif,“ sagði Stefán Árni Pálsson, stjórnandi Körfuboltakvölds, þegar komið var að því að skoða flottustu tilþrif 19. umferðar Subway-deildar karla í körfubolta í síðasta þætti.

„Ég held að þetta sé ógeðslega óþægilegt“
Grindvíkingar unnu frábæran sigur í Sláturhúsinu í Keflavík í Subway deild karla í körfubolta í gær og það þótt að lykilmaðurinn DeAndre Kane gengi ekki alveg heill til skógar. Kane harkaði af sér og leiddi Grindavíkurliðið til níunda sigursins í röð.

Gummi Ben hefur verið handtekinn
Guðmundur Benediktsson var gestur í Subway Körfuboltakvöld Extra þættinum í vikunni og hann sagði söguna af því þegar hann var handtekinn.

Mustanginn lagður undir í einvígi Nablans og Kristófer Acox
Í þættinum Subway Körfuboltakvöld Extra sem sýndur var í gær var skemmtilegt innslag þar sem íþróttafréttamaðurinn Nablinn, Andri Már Eggertsson, mætti Kristófer Acox í einvígi.

„Þegar Stólarnir tapa þá fer Subway spjallið á hliðina“
Körfuboltaáhugafólk á Íslandi fer oft inn á fésbókina þegar það þarf að tjá sig um Subway deild karla í körfubolta og Subway Körfuboltakvöld kíkti aðeins á það sem var í gangi þar eftir síðustu umferð.

„Finnst Benni hafa gert það sem Keflavík gerði ekki“
Frammistaða Dominykas Milka undir lok leiks í sigri Njarðvíkur á Tindastól í síðustu umferðar Subway-deildar karla í körfubolta var til umræðu í Körfuboltakvöldi.

Tilþrif 18. umferðar í Subway-deild karla: Sirkustroð og varin skot
Farið var yfir helstu tilþrif 18. umferðar í Subway Körfuboltakvöldi á föstudagskvöldi. Þar kennir ýmissa grasa þar sem troðslur og varin skot koma við sögu.

Subway Körfuboltakvöld: Hverjir þrá frí og hverjir verða meistarar?
Subway Körfuboltakvöld var á dagskrá í gær og þar fóru þeir Stefán Árni Pálsson, Sævar Sævarsson og Helgi Már Magnússon yfir framhaldið í deildinni og ræddu meðal annars hvaða lið væri líklegast til að verða Íslandsmeistari í vor.

Körfuboltakvöld: Eru Stólarnir komir í gang eftir gleði í Garðabænum?
Tindastólsliðið hefur unnið tvo leiki í röð í Subway deild karla í körfubolta og hlutirnir líta aðeins betur út en fyrir stuttu þegar liðið tapaði hverjum leiknum á fætur öðrum.

Kíkti í keilu með Hetti: „Allir óvinir Gísla Marteins halda að þeir séu góðir í keilu“
Liðsmenn Hattar frá Egilsstöðum þurftu að finna sér eitthvað annað að gera í höfuðborginni síðastliðið fimmtudagskvöld eftir að leik þeirra gegn Keflavík í Subway-deild karla var frestað. Þeir ákváðu því að skella sér í keilu til að stytta sér stundir.