
Auglýsinga- og markaðsmál

Sjáðu stórbrotna auglýsingu Hannesar: Áflog í uppsiglingu og Óskar á hvítum hesti
Á kynningarfundi Bestu deildarinnar í dag var frumsýnd ný auglýsing úr smiðju Hannesar Þórs Halldórssonar, leikjahæsta landsliðsmarkvarðar Íslands frá upphafi. Þjálfarar og leikmenn deildarinnar eru þar í aðalhlutverkum.

Aðeins 32 ára í forstjórastólinn og veltir milljörðum á ári
Guðrún Ragna Garðarsdóttir varð forstjóri Atlantsolíu aðeins 32 ára gömul. Félagið veltir um sjö milljörðum á ári og þótt fyrirséðar séu breytingar í olíugeiranum vegna orkuskiptanna, er engan bilbug á Guðrúnu eða félaginu að finna.

Matthías í Hatara til Brandenburg
Matthías Tryggvi Haraldsson hefur verið ráðinn sem texta- og hugmyndasmiður á auglýsingastofunni Brandenburg.

Opna Bæjarins beztu við Hlemm og hressa upp á útlit 10-11
Bæjarins bestu pylsur hafa opnað stað inni í verslun 10-11 sem stendur á Laugavegi við Hlemm. Opnun staðarins í versluninni, auk nýs staðar Sbarro á sama stað, kemur á sama tíma og Orkan, sem rekur verslanir 10-11, hefur gert breytingar á útliti verslananna.

Auglýsing á „krísu-útrýmingarsölu“ ekki lögmæt
Neytendastofa hefur sektað fyrirtækið Cromwell Rugs ehf. um eina milljón króna fyrir brot á neytendalögum. Félagið var einnig sektað af Neytendastofu í október síðastliðnum, þá um þrjár milljónir króna.

Úrslit í FÍT keppninni 2022: Borgarlínan, snjallmælir, bjór og skyr
Úrslit FÍT keppninnar voru opinberuð nú í kvöld. FÍT, Félag Íslenskra teiknara, stendur fyrir verðlaunahátíðinni á hverju ári en í ár voru 88 verk tilnefnd í 21 flokkum.

1. apríl 2022: Þríeykið gert ódauðlegt, nýr Íþróttaálfur tekur við og Sumarbúð Íslendinga rís
Fyrsti apríl, dagurinn sem fólk ýmist elskar eða elskar að hata, er nú genginn í garð enn einu sinni og strax á miðnætti hófust fyrirtæki, fréttamiðlar, fyrirtæki og einstaklingar handa við að reyna að gabba Íslendinga. Fréttastofa hefur tekið saman nokkur helstu göbb dagsins en sitt sýnist hverjum um hversu frumleg eða trúverðug þau eru í ár.

Anna Kristín nýr formaður SÍA
Anna Kristín Kristjánsdóttir var kjörin formaður Samtaka íslenskra auglýsingastofa (SÍA) á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Fráfarandi formaður er Guðmundur Hrafn Pálsson frá Pipar/TWBA.

Tekur við starfi samskiptastjóra BSRB
Freyja Steingrímsdóttir hefur verið ráðin nýr samskiptastjóri BSRB og mun hún hefja þar störf um mánaðarmótin.

Tekur við starfi markaðsstjóra Kaptio
Hugbúnaðarfyrirtækið Kaptio hefur ráðið Alondru Silva Munoz sem markaðsstjóra fyrirtækisins. Hún mun stýra teymi innan Kaptio sem hafi það að markmiði að auka sýnileika og vöxt félagsins.

Ráðin kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur
Nathalía Druzin Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur.

H:N Markaðssamskipti leita til upprunans og skipta um nafn
Auglýsingastofan H:N Markaðssamskipti hefur tekið upp gamla nafnið sitt og heitir nú Hér & nú.

Króli, Ásgeir, Alma og Johanne ráðin til Pipars\TBWA
Auglýsingastofan Pipar\TBWA hefur ráðin til sín fjóra nýja starfsmenn, þau Ásgeir Tómasson, Ölmu Guðmundsdóttur, Kristinn Óla Haraldsson og Johanne Turk.

Þykir flippuð í Noregi en ferköntuð á Íslandi
Í spennandi vinnu, með þrjú börn, nýtt húsnæði og aðeins tvö ár síðan fjölskyldan flutti heim að utan.

Ívar ráðinn framkvæmdastjóri
Ívar Gestsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Birtingahússins. Tekur hann við af Huga Sævarssyni sem hefur ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum eftir að hafa stýrt félaginu síðastliðin fimmtán ár.

Sex atriði til að selja meira með auglýsingum
Rannsóknir sýna að stór hluti af hlutverki auglýsinga er að viðhalda sölu inn í framtíðina og verjast samkeppninni. Auglýsingar eru því mikilvægar í rekstri flestra fyrirtækja þrátt fyrir að við viljum mörg kalla þær skatt á reksturinn.

Breyttir tímar: Allt að gerast á Messenger, LinkedIn og Twitter
Fyrirtæki hafa breytt nálgun sinni við viðskiptavini í kjölfar Covid og ný rannsókn McKinsey sýnir að samskiptaform sölumanna og viðskiptavina eru að breytast hratt.

Afinn sem fær meira að segja eiginkonuna til að senda sér fundarboð
Við þekkjum Valgeir Magnússon flest betur sem Valla sport en Valli býr í Osló þar sem hann er að byggja upp Pipar\TBWA og The Engine fyrirtækið upp fyrir Norðurlandamarkað.

Helgi stýrir sölu- og markaðsstarfi Niceair
Helgi Eysteinsson hefur gengið til liðs við flugfélagsins Niceair og verður honum falið að stýra uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins.

„Þarna erum við með risastóran hóp sem hefur bara gleymst að tala við“
Fyrirtæki og stofnanir eru að gleyma að tala við fjölmennan hóp Íslendinga.

Renata frá Krónunni til PayAnalytics
Renata Blöndal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála hjá PayAnalytics.

Sættir tekist í máli nakta mannsins í Nova-auglýsingunni
Mál mannsins sem birtist nakinn í Nova-auglýsingu gegn hans vilja hefur verið fellt niður en sættir hafa tekist milli málsaðila.

Hala inn milljónum: Auglýsingin sem smeygir sér fram hjá nýjum lögum
Nýtt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra tekur fyrir auglýsingar á nikótínvörum - en ekki á nikótínverslunum. Og þar sem er vilji er vegur.

Heimavöllur Barcelona fær nýtt nafn eftir risasamning við Spotify
Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona hefur samþykkt nýjan styrktarsamning við streymisveituna Spotify sem hljóðar upp á 235 milljónir punda, sem samsvarar tæplega 41 milljarði íslenskra króna.

Nova vill styðja manninn sem vildi ekki birtast nakinn á skjám landsmanna
Fjarskiptafyrirtækið Nova hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttar Vísis um mann sem hefur stefnt þeim sem stóðu að gerð auglýsingar fyrir fyrirtækið en þar birtist hann nakinn gegn vilja sínum.

Allsber í auglýsingu og afar ósáttur við það
Maður nokkur sem birtist allsnakinn í Allir úr-auglýsingu fyrir Nova telur á sér brotið; hann hafi verið fullvissaður um að hann myndi ekki sjást koma nakinn fram. Það fór þó ekki svo og hefur maðurinn stefnt þeim sem önnuðust gerð auglýsingarinnar.

Stærsti styrktaraðili Chelsea hættir stuðningi við félagið
Stærsti styrktaraðili enska knattspyrnufélagsins Chelsea, farsímafyrirtækið Three, hefur hætt stuðningi sínum við félagið, að minnsta kosti tímabundið.

Black Mirror á Netflix og nýr þjónustumælikvarði sem fjármálastjórar munu elska!
Í dag styðjast 2/3 af 1000 stærstu fyrirtækjunum í Bandaríkjunum við NPS og nánast öll íslensk fyrirtæki sem gera þjónustumælingar. Reichheld segir að flest fyrirtæki noti NPS á rangan hátt. Notkunin er reyndar orðin svo mikil í starfi fyrirtækja að hún er farin að minna á Netflix-þáttinn Black Mirror.

Vill að áhrifavaldar fái endurgreiðslu frá ríkinu
Björn Steinbekk, drónaflugmaður og markaðsmaður, segir að áhrifavaldar eigi að fá sömu ívilnanir og kvikmyndaiðnaðurinn. Hann hefur þegar borið upp erindið við Lilju Alfreðsdóttur ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra.

Gísli Freyr tekur við af Stefáni Einari
Gísli Freyr Valdórsson hefur verið ráðinn fréttastjóri viðskiptadeildar Morgunblaðsins og tekur hann við stöðunni af Stefáni Einari Stefánsyni.