Innlent

Fréttamynd

Hæstiréttur staðfestir frávísun

Hæstiréttur staðfesti nú síðdegis úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá fyrsta ákærulið nýrrar ákæru í Baugsmálinu. Settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, kærði úrskurð héraðsdóms en Hæstiréttur staðfesti hann með vísun í forsendur héraðsdóms.

Innlent
Fréttamynd

Kona slasast í Hornvík

Kona slasaðist í Hornvík á Ströndum fyrir skömmu. Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson frá Ísafirði er á leið að sækja konuna ásamt lækni og sjúkraflutningamönnum. Talið er að konan hafi axlabrotnað og verður hún flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði.

Innlent
Fréttamynd

Ísmaðurinn á leiðinni heim

Ísmaðurinn, Sigurður Pétursson, hefur verið fastur á ís ásamt eiginkonu sinni um 100 sjómílur frá heimabæ sínum Kuumiiut á Austur strönd Grænlands. Hann losnaði í morgunn og segist hlakka til að koma heim.

Innlent
Fréttamynd

2,6 prósenta hagvöxtur í Bretlandi

Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Greiningardeild Glitnis banka segir aukinn hagvöxt í Bretlandi koma sér ágætlega fyrir íslenska hagkerfið vegna mikilla viðskipta á milli Bretlands og Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bensínverð lækkar

Olíufélagið Esso lækkar verð á bensíni í dag og lækkar hver lítri af bensín um eina krónu og tíu aura. Fyrr í vikunni reið ESSO á vaðið og hækkaði verð á bensínlítranum um þrjár krónur og fjörtíu aura.

Innlent
Fréttamynd

Aflaverðmæti dregst saman um 3,8%

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Aflaverðmæti hefur dregist saman um einn milljarð eða 3,8 % frá því á sama tímabili í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Báturinn fundinn

Báturinn sem strandaði í morgun á flosinni á milli Sandgerðis og Garðs er fundinn. Björgunarsveitir leituðu bátsins sem fannst rétt fyrir utan Garðskagans. Beðið er eftir flóði til að flytja bátinn til hafnar en einn maður var á bátnum með fimm tonn af fiski. Honum varð ekki meint af.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnabrot aldrei verið fleiri

Skráð fíkniefnabrot í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði hafa aldrei verið fleiri en í ár, 2006. Það sem af er árinu hefur lögreglan í Hafnarfirði lagt hald á yfir sex kíló af ólöglegum fíkniefnum en til samanburðar gerði lögreglan aðeins upptækt tæpt kíló árið áður.

Innlent
Fréttamynd

Bátur strandar

Lítill bátur strandaði í morgun á flosinni á milli Sandgerðis og Garðs. Björgunarsveitir eru á staðnum, en hafa enn ekki fundið bátinn.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn á ráni lýkur

Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á ráni í verslun í Mosfellsbæ síðustu helgi. Fimm voru handteknir vegna málsins en þrír hafa setið í gæsluvarðhaldi.

Innlent
Fréttamynd

Vill rannsaka mávavandann

Dýraverndarsamband Íslands segir veiðar meindýravarna á mávum í miðborginni vera óleyfilegar og valda ónæði. Öðrum aðferðum sé hægt að beita. Borgaryfirvöld segjast fylgja öllum settum reglum.

Innlent
Fréttamynd

Tapaði síma og fermingarúri

Nokkuð er um að þjófar láti greipar sópa í búningsklefum íþróttahúsa. Þótt íþróttamannvirki séu oft með mann á vakt er oft mikill umgangur um þau og erfitt fyrir vaktmenn að greina svörtu sauðina úr hópnum. Á meðan á knattspyrnuleik stóð milli Fjölnis og Vals í vikunni komst þjófur í búningsklefa Fjölnisheimilisins og hafði meðal annars þrjá GSM-síma af keppendum beggja liða.

Innlent
Fréttamynd

Minni eftirspurn á fasteignamarkaði

Vaxtahækkanir undanfarið hafa orðið til þess að byggingaverktakar halda að sér höndum og fækka framkvæmdum. Enginn vill sitja uppi með lager af óseldum íbúðum, segir framkvæmdastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum.

Innlent
Fréttamynd

Vitna að grjóthruni óskað

Möl og grjót féll af palli stórrar grænblárrar vörubifreiðar á Reykjanesbraut um klukkan 14.30 hinn 3. júlí síðastliðinn, sem olli tjóni á fjórum bílum hið minnsta.

Innlent
Fréttamynd

Lenging nauðsynleg

Atvinnuþróunar­félag Eyjafjarðar sendi frá sér ályktun í gær um lengingu flugbrautar á Akureyrarflugvelli, sem rædd hefur verið hjá bæjaryfirvöldum. „Lenging flugbrautar er grundvallaratriði varðandi framtíðaruppbyggingu millilandaflugs um völlinn og skapar mikil sóknar­færi,“ segir í ályktuninni.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarfélögin íhuga aðild sína að Strætó

Strætó bs. tapaði rúmlega milljón á dag fyrir sparnaðaraðgerðir. Fulltrúi borgarinnar í stjórn fyrirtækisins vanrækti að tilkynna um stöðu mála. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir sveitarfélög íhuga að endurskoða aðild sína að Strætó bs.

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að staðsetja notendur netsíma

Í stjórnsýslukæru Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar segir að það geti verið vandkvæðum bundið að staðsetja notendur netsíma. Hætta getur skapast í neyðartilfellum í störfum lögreglu og björgunarsveita, að sögn kærenda.

Innlent
Fréttamynd

Reglugerð um endurgreiðslur

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur gefið út umburðarbréf til lögreglustjóra vegna löggæslukostnaðar við útihátíðahald. Samkvæmt nýjum reglum skulu mótshaldarar endurgreiða lögreglu­stjóra allan kostnað sem hlýst af aukinni löggæslu umfram það sem eðlilegt getur talist.

Innlent
Fréttamynd

Sex á sjúkrahús eftir árekstur

Flytja þurfti sex manns á sjúkrahús eftir mjög harðan árekstur þriggja bíla á Reykjanesbraut klukkan tíu í gærmorgun. Beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu úr bílflaki.

Innlent
Fréttamynd

Stálu 10 til 15 milljónum

„Þetta reyndust ekki nógu nákvæmar upplýsingar sem lögregla veitti Fréttablaðinu. Hið rétta er að þær upphæðir sem stolið hefur verið úr heimabönkum fólks nema tíu til fimmtán milljónum króna,“ sagði Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Hindrar heimabankaþjófnað

Hafnar eru tilraunir með notkun svokallaðra einskiptis lykilorða til að auka öryggi þeirra viðskiptavina bankanna sem nota heimabanka. Búnaður til þessara nota er kominn til landsins og er nú nokkur fjöldi viðskiptavina bankanna að prufukeyra hann. Þetta segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.

Innlent
Fréttamynd

Ræningi skildi eftir blóðslóð

Fjögur innbrot hafa komið til kasta lögreglunnar í Reykjavík undanfarna daga. Á miðvikudag var tilkynnt um tvö innbrot, annað á heimili í Breiðholti þar sem flatskjá var stolið og hitt í bifreið við Laugaveg. Í gær var tilkynnt um tvö innbrot til viðbótar. Hurð á veitingastað í austurbænum var sparkað upp og tuttugu þúsund krónum stolið. Þá var brotist inn á heimili við Hverfis­götu og fartölva og myndavél tekin. Ræninginn virðist hafa skorið sig og skilið eftir blóðslóð. Allir þjófarnir eru ófundnir. Lögreglan segir innbrot ganga í bylgjum.

Innlent
Fréttamynd

Fjórum bjargað úr eldsvoða

Slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja björguðu í fyrrinótt fjögurra manna fjölskyldu, hjónum og tveimur ungum börnum, út um glugga á brennandi húsi í Keflavík. Feðgar sem einnig bjuggu í húsinu komust út af sjálfsdáðum. Engan sakaði.

Innlent