
Bókaútgáfa

„Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“
Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi sagðist í engu hafa komið nálægt þeirri ákvörðun að farga 30 þúsund eintökum bókarinnar Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær.

Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs
Farga þurfti þrjátíu þúsund eintökum af bók sem til stóð að gefa þjóðinni í tilefni áttatíu ára afmælis lýðveldisins. Ástæðan var breyting á skipan forsætisráðherra sem kallaði á breytingu á formála bókarinnar.

Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna
Bjarni Snæbjörnsson leikari og rithöfundur fagnaði bók sinni Mennsku með glæsilegu útgáfuteiti í Bókabúð forlagsins á dögunum. Ljósmyndarinn Mummi Lú mætti á viðburðinn og fangaði stemninguna.

„Ég hef aldrei lent í öðru eins“
Ester Harðardóttir, starfsmaður Bónus til þriggja áratuga var ein af þeim sem tilnefnd voru sem maður ársins 2023. Atburðarásin sem leiddi til þess var vægast sagt kostuleg og skapaðist í kjölfar þess að Bónus hafnaði sölu á bókinni Þriðja vaktin. Ester lenti óumbeðin í fjölmiðlastormi en hún tók fjaðrafokinu þó með stóískri ró.

Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar
Tilnefningar til ljóðabókaverðlaunanna Maístjörnunnar, vegna ljóðabóka útgefinna árið, 2023 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag. Sex bækur eru tilnefndar að þessu sinni.

Guðmundur Andri ritar bók um Feðraveldið
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur skrifaði í gær undir útgáfusamning við Hólmfríði Matthíasdóttur og birti mynd af útgáfusamningnum.

„Vona að ritstjóra Morgunblaðsins sé ekki farið að förlast“
Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins lagði í dag út frá slúðursögu í leiðara sínum sem er algerlega úr lausu lofti gripin.

Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi
Það var bæði fjölmennt og góðmennt í Bókabúð Forlagsins á dögunum þegar Einar Lövdahl Gunnlaugsson hélt útgáfuhóf í tilefni af útgáfu bókar sinnar Gegnumtrekkur.

Fékk draumastarfið hjá Forlaginu vegna TikTok-reiknings
Embla Rún hóf að birta myndbönd á samfélagsmiðlinum TikTok árið 2022 þar sem hún gaf fylgjendum innsýn í daglegt líf með þunglyndi og kvíða.

Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur
Bókamarkaðnum á Laugardalsvelli í Reykjavík lauk á sunnudagskvöld og fór svo á endanum að sölumarkmið framkvæmdastjórann náðist. Hundrað þúsund bækur seldust.

Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum
Síðasta skáldsaga kolumbíska Nóbelsverðlaunahafans, Gabriel García Márquez, Until August, sem mætti útleggja sem Þangað til í ágúst, verður gefin út að honum látnum og gegn óskum hans.

Hildur Hermóðsdóttir er látin
Hildur Hermóðsdóttir, kennari og bókaútgefandi, er látin, 73 ára að aldri.

Fallegustu bækur í heimi til sýnis í Garðabæ
Fallegustu bækur í heimi eru nú til sýnis á Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ. Grafískur hönnuður segir að í bókverkunum sé hugsað út í minnstu smáatriði, allt frá staðsetningu blaðsíðutalsins og því hvernig titlar séu settir upp.

Kosning er hafin fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Storytel Awards 2024
Búið er að opna fyrir almenning að kjósa sína eftirlætis hljóðbók í forvali fyrir Íslensku hljóðbókaverðlaunin - Storytel Awards 2024. Verðlaunin eru uppskeruhátíð þar sem höfundar, lesarar og útgefendur fagna saman útgáfu vönduðustu íslensku hljóðbóka liðins árs.

Morðhótun með mynd af strengjabrúðu
Fyrr í vikunni kom út hjá Storytel spennusagan Brúðumeistarinn eftir verðlaunahöfundinn Óskar Guðmundsson í mögnuðum lestri Daníels Ágústs Haraldssonar. Bókin er allt í senn; spennandi, hrollvekjandi og áleitin glæpasaga þar sem rannsóknarteymið Ylfa og Valdimar koma við sögu.

Vetrarparadísin höfðar til íslenskra bókakaupenda
Þá liggur það fyrir og kemur ekki á óvart; söluhæsta bók síðasta árs var Sæluríki Arnaldar Indriðasonar. Á hæla hans fylgja þau Yrsa Sigurðardóttir með Frýs í æðum blóð og Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.

Ein vinsælasta ungmennabók landsins
Skandar og draugaknapinn í þýðingu Ingunnar Snædal er ein vinsælasta ungmennabók landsins um þessar mundir.

Frasabókin er svarti foli þessarar vertíðar
Ef pakkinn þinn líkist bók þá eru mestar líkur á að í honum leynist Arnaldur, Yrsa eða Ólafur Jóhann. Þessi þrjú eiga mest seldu skáldverk ársins samkvæmt Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda.

Biðst afsökunar á „kallalegu yfirlæti“
Þorsteinn V. Einarsson bað starfsmann Bónus, Ester Harðardóttur, afsökunar á því sem hann kallar „kallalegt yfirlæti.“

„Það hefur enginn beðið um þessa bók“
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus segir ummæli Þorsteins V. Einarssonar varðandi sölu á bók sinni og konu hans Huldu Tölgyes dæma sig sjálf.

„Það þýðir lítið að reyna að panta verk hjá mér“
Eggert Pétursson er einn dáðasti myndlistarmaður þjóðarinnar. Hann á ekkert verk eftir sjálfan sig, verkin eru rifin úr höndum hans en það tekur hann að jafnaði rúman mánuð að vinna hvert verk um sig.

Segir bók Þorvaldar rugl frá upphafi til enda
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, mætti í Bítið í morgun til að ræða bók Þorvaldar Logasonar Eimreiðarelítuna – spillingarsögu. Jón Steinar sagði ekki eitt einasta atriði sem þar er um sig skrifað, í bók ef bók skyldi kalla, halda vatni.

Notkun hljóðbóka stóraukist en lestur dregist saman
Notkun hljóðbóka hefur aukist um 145 prósent á síðustu sex árum hérlendis á meðan lestur bóka hefur dregist saman um sautján prósent samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar á vegum Miðstöðvar íslenskra bókmennta.

Útkallsbók í topp tíu eins og svo oft áður
Það er helst að telja megi til tíðinda hversu tíðindalaus Bóksölulisti bókaþjóðarinnar er, eftir aðra helgi desember mánaðar.

„Eins og konfektmoli sem mann langar í aftur og aftur“
Ástarsögufélagið gefur í næstu viku út sína fyrstu bók, Munnbiti. Bókin er skrifuð af félögum félagsins og eru nær allir þeirra með verk í bókinni. Meðal höfunda eru handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sem stígur sín fyrstu skref í ástarsögugerð í bókinni.

Bók um blæðingar „líka fyrir okkur karlpungana til að lesa“
Bóksali á Suðurlandi er viss um að jólin verði góð jólabók en viðurkennir þó að lestur jólabóka hafi minnkað og þar kennir hann snjallsímunum um. Bóksalinn gefur út 30 bækur fyrir jólin, meðal annars bók um blæðingar kvenna, sem hefur nú þegar verið tilnefnd til verðlauna.

Ekki nálægt því að uppfylla bókaþörf barnanna
Safnstjóri skólasafns Seljaskóla kannast ekki við að börn og unglinga skorti áhuga á lestri, þvert á móti geti fátæklegt úrval íslenskra bóka ekki mettað eftirspurn þeirra. Hún segir að styðja þurfi betur við íslenska barnabókahöfunda, helst þurfi að bera þá á gullstól.

Þegar bókin hverfur úr jólapakkanum getum við kysst þetta bless
„Skemmtilegt, endilega. Ég er á flandri í Flandern og verð komin heim um klukkan fjögur að íslenskum tíma. Svo hef ég nógan tíma,“ segir Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur.

Fantasía sem mótaðist á heimshornaflakki
Fanney Hrund Hilmarsdóttir hefur sent frá sér bókina Dreim – Fall Draupnis en það er fyrsta bókin í þríleik um fantasíuheiminn Dreim. Áður hafði Fanney kynnt lesendum sömu persónur í sinni fyrstu skáldsögu, Fríríkinu, sem kom út 2021. Hún segir Dreim – Fall Draupnis heimspekitrylli fyrir unglinga og fantasíufólk, fantasíusögu sem feli í sér vísanir í heimssöguna.

Gaf hvergi afslátt í baráttunni fyrir betra samfélagi
Ævisagan Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg segir frá stórmerkilegu lífi Guðrúnar Jónsdóttur sem oftast er kennd við Stígamót, kvennaframboðið í Reykjavík, Kvennalistann og mikið brautryðjendastarf í jafnréttismálum hér á landi.