Körfubolti
171 172 173 174 175 176 177 178 179 … 216 ›
Sigur í fyrsta leik hjá Bandaríkjamönnum Lið Bandaríkjanna vann sinn fyrsta leik á HM í körfubolta þegar það lagði lið Portó Ríkó 111-100. Bandaríkjamennirnir voru í bullandi vandræðum í fyrri hálfleik og lentu þá undir í leiknum, en sigur þeirra var nokkuð öruggur þegar upp var staðið. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði BNA með 21 stig og þeir LeBron James og Kirk Hinrich skoruðu 15 stig hvor. Chris Paul skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 5 boltum. Körfubolti 19.8.2006 12:56
Tony Parker fingurbrotinn og missir af HM Leikstjórnandinn Tony Parker getur ekki leikið með Frökkum á HM í körfubolta sem hefst í Japan á morgun eftir að í ljós kom að hann er fingurbrotinn. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir franska landsliðið sem mætir gríðarlega sterku liði Argentínu strax í fyrsta leik sínum á morgun. Parker hefur þegar verið beðinn um að snúa aftur í herbúðir San Antonio Spurs í Bandaríkjunum, þar sem hann mun fá læknismeðferð. Körfubolti 18.8.2006 16:23
James, Wade og Anthony fyrirliðar Mike Krzyzewski, þjálfari körfuboltalandsliðs Bandaríkjanna, hefur útnefnt þá LeBron James, Dwyane Wade og Carmelo Anthony sem fyrirliða liðsins á HM sem hefst í Japan á morgun. Þremenningarnir komu allir inn í NBA deildina árið 2003 og eru stigahæstu leikmenn bandaríska liðsins í þeim fimm undirbúningsleikjum sem það hefur spilað að undanförnu. Körfubolti 18.8.2006 16:18
Bruce Bowen fer ekki á HM Varnarjaxlinn Bruce Bowen frá San Antonio Spurs fékk það leiðinlega hlutskipti í gær að verða síðasti maðurinn sem ekki náði inn í landsliðshóp Bandaríkjamanna fyrir HM í körfubolta sem hefst í Japan um helgina. Það er því ljóst hvaða 12 menn skipa bandaríska landsliðið að þessu sinni, en liðið hefur ekki orðið heimsmeistari síðan 1994. Sport 17.8.2006 13:05
Klárar samfélagsþjónustu vegna uppþotsins í Detroit Villingurinn Ron Artest er nú að klára samfélagsþjónustuna sem hann var dæmdur til að gegna eftir að eiga upptökin af einu versta uppþoti í bandarískri íþróttasögu í nóvember árið 2004. Artest segir atvikið heyra sögunni til og á engar óuppgerðar sakir við manninn sem hann réðist á í áhorfendastæðunum í Detroit forðum. Sport 16.8.2006 19:19
Bandaríkjamenn völtuðu yfir Suður-Kóreu Bandaríkjamenn spiluðu í gærkvöld sinn síðasta undirbúningsleik fyrir HM í Japan sem hefst á laugardag þegar þeir völtuðu yfir Suður-Kóreu 116-63 í Seúl. Bandaríska liðið hefur því unnið alla fimm undirbúningsleiki sína fyrir mótið. LeBron James var stigahæstur í liði Bandaríkjamanna með 23 stig, þar af 19 í fyrri hálfleik. Sport 16.8.2006 14:19
Gaf rúman milljarð króna til spítala í Kongó Körfuboltamaðurinn Dikembe Mutombo sem leikið hefur í NBA í 15 ár hefur lagt til rúman milljarð króna til að koma á fót stóru sjúkrahúsi í heimaborg sinni Kinshasa í Kongó. Sjúkrahúsið verður skírt í höfuðið á móður Mutombo sem lést árið 1997 og mun hýsa um 300 sjúkrarúm. Sport 15.8.2006 13:12
Drew Gooden semur við Cleveland Framherjinn Drew Gooden hefur framlengt samning sinn við NBA-lið Cleveland Cavaliers til þriggja ára og hefur þar með bundið enda á miklar vangaveltur sem verið höfðu um framtíð hans. Talið er að Gooden muni fá um 23 milljónir dollara fyrir samning sinn og hefur forráðamönnum Cleveland nú tekist að framlengja samninga allra lykilmanna sinna á síðustu tveimur árum. Sport 14.8.2006 18:31
Gilbert Arenas fer ekki á HM Forráðamenn bandaríska landsliðsins í körfubolta tilkynntu í dag að bakvörðurinn Gilbert Arenas frá Washington Wizards muni ekki spila með liðinu á HM í Japan sem hefst 19. ágúst nk, eftir að hann tognaði á nára á æfingu í morgun. Sport 14.8.2006 16:56
Íhugar framboð Hinn litríki Charles Barkley, sem var einn besti leikmaður NBA deildarinnar á síðasta áratug, íhugar nú að fara í framboð til ríkisstjóra í heimafylki sínu Alabama í Bandaríkjunum. "Ég er kannski ríkur eins og repúblikani, en það þýðir ekki að ég sé hægrimaður," sagði Barkley og bætti við að Alabama þyrfti á aðstoð sinni að halda í framtíðinni. Sport 26.7.2006 19:26
Allen Iverson verður áfram hjá Philadelphia Mikið hefur verið rætt um framtíð stigaskorarans mikla Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í sumar og margir töldu nú eða aldrei fyrir leikmanninn að skipta um lið. Eftir tveggja stunda langan fund með eiganda 76ers í gær hefur leikmaðurinn hinsvegar gefið það út að hann muni ekki fara frá félaginu og eigandi þess segist ekki ætla að reyna að skipta honum í burtu. Sport 26.7.2006 19:32
Al Harrington sagður á leið til Indiana Heimildarmaður ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum segir að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo framherjinn sterki Al Harrington geti gengið í raðir Indiana Pacers. Harrington hefur leikið með Atlanta Hawks undanfarin ár, en virðist nú vera aftur á leið til liðsins sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Sport 24.7.2006 16:39
Shawn Kemp handtekinn enn á ný Fyrrum stjörnuleikmaðurinn Shawn Kemp var handtekinn af lögreglu í Houston í dag eftir að lögreglumaður stöðvaði hann fyrir að aka um á númerslausum bíl. Við nánari athugun fannst sterk lykt af eiturlyfjum í bílnum og í ljós komu nokkur grömm af marijúana sem Kemp hafði falin í fórum sínum. Sport 21.7.2006 19:26
Seattle-liðin seld Hópur fjárfesta frá Oklahoma City hefur fest kaup á NBA-liði Seattle Supersonics og kvennaliðinu Seattle Storm. Nýju eigendunum hefur verið gefinn eins árs frestur til að ná samningum um endurbætur eða byggingu nýrrar íþróttahallar í Seattle, ella verði liðin flutt frá borginni. Sport 19.7.2006 21:30
Mourning áfram hjá Miami Miðherjinn Alonzo Mourning hefur undirritað eins árs framlengingu á samningi sínum við NBA-meistara Miami Heat. Samningurinn verður upp á algjöra lágmarksupphæð og sagðist Mourning byggja ákvörðun sína á því hversu vænt honum þætti um stuðningsmenn liðsins. Sport 18.7.2006 17:18
Kobe Bryant líklega út úr myndinni Nokkur skörð hafa verið höggvin í bandaríska landsliðshópinn í körfubolta sem undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramótið í Japan sem hefst í lok næsta mánaðar. Kobe Bryant mun að öllum líkindum missa af keppninni eftir að hafa þurft að gangast undir minniháttar aðgerð á hné, en áður höfðu þeir JJ Redick (bakmeiðsli), Lamar Odom (persónulegar ástæður) og Paul Pierce (uppskurður á öxl) dregið sig úr hópnum. Sport 18.7.2006 14:18
Paul Pierce framlengir við Boston Hið fornfræga NBA lið Boston Celtics hefur náð samkomulagi við stórstjörnuna Paul Pierce um að framlengja samning sinn við félagið til þriggja ára. Talið er að samningur þessi sem gildir út árið 2008 muni tryggja Pierce tæpar 60 milljónir dollara á samningstímanum, en deildin á þó enn eftir að samþykkja þessa ráðstöfun. Sport 14.7.2006 15:05
Mike James til Minnesota Leikstjórnandinn Mike James skrifaði í gærkvöld undir samning við lið Minnesota Timberwolves í NBA deildinni, en James var með lausa samninga hjá Kanadaliði Toronto Raptors. James þótti minni spámaður í deildinni allt þar til í fyrravetur, þegar hann sprakk út með Toronto og skoraði yfir 20 stig að meðaltali í leik og var á meðal efstu manna í deildinni í 3ja stiga skotnýtingu. Sport 13.7.2006 17:04
Kirk Hinrich í hópinn í stað Redick Leikstjórnandinn Kirk Hinrich hefur verið valinn í bandaríska landsliðshópinn í körfubolta í stað stórskyttunnar JJ Redick sem er meiddur og þurfti að hætta við að fara í æfingabúðir með liðinu. Bandaríkjamenn eru nú á fullu að undirbúa lið sitt fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Japan í næsta mánuði, þar sem liðið leikur í riðli með Ítölum, Porto Rikó, Slóvenum, Kínverjum og Senegölum. Sport 13.7.2006 15:09
Sam Cassell framlengir við Clippers Leikstjórnandinn Sam Cassell hefur framlengt samning sinn við Los Angeles Clippers um tvö ár, en ekki hefur verið gefið upp hvað hann fær í aðra hönd fyrir samninginn. Þó Cassell sé fyrir nokkru kominn af léttasta skeiði sem leikmaður, skoraði hann rúm 17 stig og gaf 6 stoðsendingar að meðaltali í leik fyrir Clippers á síðasta vetri. Það sem meira er tók hann að sér leiðtogahlutverk í liðinu og leiddi það til besta árangurs síns í yfir þrjá áratugi. Sport 13.7.2006 15:03
Wade framlengir við Miami Verðmætasti leikmaður NBA-úrslitanna í vor, Dwyane Wade hjá Miami, hefur framlengt samning sinn við félagið um þrjú ár líkt og LeBron James hjá Cleveland gerði á dögunum. Flestir bjuggust við að Wade skrifaði undir fimm ára samning, en líta má á samningur þessi sé langtímafjárfesting fyrir leikmanninn. Sport 13.7.2006 14:53
LeBron James skrifar undir styttri samning Stórstjarnan LeBron James undirritar í kvöld nýjan samning við Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni, en samningur hans verður þó nokkuð frábrugðinn þeim samningi sem félagar hans Carmelo Anthony og Dwyane Wade úr nýliðaárgangnum 2003 skrifuðu undir á dögunum. Sport 12.7.2006 16:30
Krefur Jordan og Nike um 60 milljarða Maður nokkur að nafni Allen Heckard í Oregon-fylki í Bandaríkjunum hefur nú farið í skaðabótamál við Michael Jordan og Nike íþróttavöruframleiðandann, því hann segist vera orðinn hundleiður á því að fólk ruglist á honum og körfuboltastjörnunni fyrrverandi. Maðurinn fer fram á tæpa 60 milljarða króna í skaðabætur fyrir það sem hann kallar daglega pínu undanfarin 15 ár. Sport 9.7.2006 15:28
LeBron James framlengir við Cleveland Stuðningsmenn Cleveland Cavaliers vörpuðu öndinni léttar í gær þegar félagið gaf það út að ungstirnið LeBron James hefði samþykkt að framlengja samning sinn um fimm ár. James fær fyrir vikið um 80 milljónir dollara í laun á samningstímanum, en áður höfðu þeir Dwyane Wade og Carmelo Anthony úr 2003 árgangi nýliða samþykkt hliðstæða samninga hjá liðum sínum. James undirritar nýja samninginn formlega á miðvikudaginn. Sport 8.7.2006 18:50
Tyson Chandler á leið til New Orleans Undanfarna daga hafa lið í NBA-deildinni verið dugleg að skoða leikmannamarkaðinn. Lið Chicago Bulls og New Orleans Hornets hafa þar verið fremst í flokki. Chicago fékk miðherjann Ben Wallace frá Detroit til liðs við sig á dögunum og hefur nú skipt framherja sínum Tyson Chandler til New Orleans fyrir þá PJ Brown og JR Smith. Ekki er langt síðan serbneska skyttan Peja Stojakovic gekk í raðir New Orleans frá Indiana. Sport 6.7.2006 15:06
Ben Wallace á leið til Chicago Miðherjinn "Stóri-Ben" Wallace, sem verið hefur lykilmaður í harðri vörn Detroit Pistons undanfarin ár, hefur samþykkt tilboð frá Chicago Bulls um að ganga í raðir liðsins. Wallace var með lausa samninga nú í sumar og fáir áttu von á því að hann færi frá félaginu, en Chicago gat boðið honum mikið hærri laun en Detroit og hefur hann því ákveðið að skipta um lið. Sport 4.7.2006 15:17
Bargnani valinn fyrstur Hið árlega nýliðaval í NBA deildinni í körfubolta fór fram í nótt og átti lið Toronto Raptors frá Kanada fyrsta valréttinn. Það var hinn hávaxni ítalski framherji, Andrea Bargnani, sem varð fyrir valinu og hefur honum verið líkt við Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks. Bargnani spilaði með Benetton Treviso í heimalandi sínu og er hann fyrsti Evrópubúinn sem valinn er númer eitt í nýliðavali NBA. Sport 29.6.2006 14:17
Isiah Thomas fær eitt ár til að rétta við skútuna James Dolan, stjórnarformaður New York Knicks, hefur gefið Isiah Thomas, þjálfara og framkvæmdastjóra liðsins, eitt ár til að rétta hlut liðsins. Ef það tekst ekki, verður hann látinn taka pokann sinn líkt og Larry Brown á dögunum. Árangur New York í vetur var einn sá slakasti frá upphafi og nú hefur Thomas verið gert að reyna að fá eitthvað út úr þeim misjafna mannskap sem hann hefur verið að safna til liðsins síðan hann tók við framkvæmdastjórastöðu þar á sínum tíma. Sport 27.6.2006 14:51
Áhorf jókst verulega frá í fyrra ABC-sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hefur gefið það út að áhorf á úrslitaeinvígið í NBA sem lauk á dögunum, hafi verið umtalsvert meira en það var í fyrra. Áhorf á úrslitakeppnina sjálfa jókst um 12% frá árinu í fyrra og 13% meira áhorf var að jafnaði á leikina í úrslitunum. Þrettán milljónir áhorfenda sáu að jafnaði hvern leik í rimmu Miami Heat og Dallas Mavericks. Sport 23.6.2006 18:40
Nesterovic til Toronto Slóvenski miðherjinn Rasho Nesterovic er genginn í raðir Toronto Raptors frá San Antonio Spurs í NBA deildinni. San Antonio fær í staðinn framherjana Matt Bonner og Eric Williams, auk valréttar í annari umferð nýliðavalsins á næsta ári. Nesterovic var á sínum tíma ætlað að fylla skarð David Robinson hjá Spurs, en hefur smátt og smátt fallið úr náðinni hjá þjálfara sínum og kom hann lítið sem ekkert við sögu í úrslitakeppninni í vor. Sport 22.6.2006 15:33