
Ástin á götunni

Stjarnan á toppinn í 2. deild
Stjarnan laumaði sér á topp 2. deildar karla í fótbolta í dag þegar Garðabæjarliðið sótti 3-5 útisigur til Seyðisfjarðar gegn Hugin. Stjarnan er nú komin í 30 stig með tveggja stiga forskot á Leikni sem reyndar á leik til góða gegn botnliði Leiftri/Dalvík í dag kl. 16.

Lundúnaslagur á Brúnni í dag
Fyrsti risaslagur ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili fer fram í dag en þá mætast Lundúnaliðin Chelsea og Arsenal. Liðin mættust fyrir tveimur vikum síðan í leiknum um Samfélagsskjöldinn en þá var það Didier Drogba sem stal senunni og skoraði bæði mörk Chelsea sem hrósaði sigri í leiknum.

Gylfi í byrjunarliði Leeds
Hermann Hreiðarsson er að vanda í byrjunarliði Charlton sem mætir Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikir dagsins á Englandi hefjast kl 14. Þá er Heiðar Helguson á varamannabekk Fulham sem heimsækir Blackburn. Þá vekur athygli að Gylfi Einarsson er í byrjunarliði Leeds sem mætir Wolves í ensku 1. deildinni.
Fylkir efstur í A-riðli 1. deildar
Fylkir tryggði sér í gærkvöldi sigur í A-riðli 1. deildar kvenna þegar liðið sigraði Þrótt 4-0. Fylkir fékk 28 stig en Haukar sem mæta Víði í dag eru í öðru sæti með 23 stig og geta ekki náð Fylki að stigum. Í B-riðli hefur sameiginlegt lið Þórs, KA og KS fyrir löngu tryggt sér sigur. Liðið hefur unnið alla 11 leiki sína og spilar á morgun síðasta leik sinn í riðlinum við Sindra.

Sofia sektað fyrir Cisse-atvikið
Búlgarska knattspyrnufélagið CSKA Sofia hefur verið sektað um 19.500 evrur vegna kynþáttaeineltis sem sóknarmaður Liverpool, Djibril Cisse varð fyrir í leik liðanna á dögunum. Sektin jafngildir um einni og hálfri milljón íslenskra króna.

Markalaust í hálfleik hjá Man Utd
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik í viðureign Manchester United og Aston Villa sem nú stendur yfir á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hálfleikur stendur nú yfir og staðan því 0-0 en leikurinn hófst kl. 11:45.
Tindastóll lagði Fjarðabyggð
Í 2. deild karla í knattspyrnu sigraði Tindastóll Fjarðbyggð 1-0. Tindastóll komst þar með í sjöunda sætið, er með 15 stig en Fjarðabyggð er í 4. sæti með 23 stig.

Íslendingarnir í ensku 1.deildinni
Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Leicester sem gerði 2-2 jafntefli við Crewe í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Mark Jóhannesar kom úr vítaspyrnu á 60. mínútu en hann lék allan leikinn. Gylfi Einarsson lék allan leikinn í liði Leeds sem sigraði Wolves 2-0.

Liverpool lagði Sunderland
Xabi Alonso tryggði Liverpool 1-0 sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en leikurinn hófst 15 mínútum seinna en aðrir leikir. Liverpool er þar með komið með 4 stig í deildinni en liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrogh í 1. umferðinni um síðustu helgi.

Edu frá í 6 mánuði
Brasilíski miðjumaðurinn Edu sem gekk í raði spænska knattspyrnuliðsins Valencia frá Arsenal á dögunum meiddist alvarlega á æfingu í dag og missir fyrir vikið af nær öllu tímabilinu á Spáni. Edu sleit krossband í vinstra hné í dag og þarf nú að gangast undir uppskurð að sögn læknis félagsins.

Þrjú lið áfram með fullt hús
Man. Utd, Tottenham og Charlton hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann fyrsta sigurinn en Newcastle á enn eftir að skora. Tottenham vann annan leikinn í röð 2-0 og er á toppnum á markatölu og ekki gladdi það stuðningsmenn Spurs minna að sjá Edgar Davids spila sinn fyrsta leik með liðinu.

Man Utd lagði Aston Villa
Man Utd vann 1-0 sigur á Aston Villa á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmarkið á 66. mínútu eftir skalla frá Olof Mellberg varnarmanni Villa sem ætlaði að hreinsa boltann frá eftir sendingu inn í teig frá Christiano Ronaldo. Man Utd hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu.

Búum okkur undir erfiðan leik
Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag sinn eina heimaleik í ár gegn Hvíta-Rússlandi. Jörundur Áki þjálfari segir andann í íslenska liðinu vera góðan. Þetta er fyrsti leikur liðsins í riðli fyrir undankeppni HM 2007 en auk Íslands og Hvíta Rússlands eru Portúgal, Svíþjóð og Tékkland í riðlinum.
Jol hefur augastað á Kuyt
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur mikinn augastað á landa sínum Dirk Kuyt hjá Feyenoord í Hollandi, en hann er að leita sér að sterkum framherja í stað Fredi Kanoute sem seldur var til Sevilla á Spáni í vikunni.

Houllier vill Baros, ekki Cisse
Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Lyon í Frakklandi er sagður hafa gert 8,5 milljón punda tilboð í framherjann Milan Baros hjá Liverpool og hefur játað áhuga sinn á að fá leikmanninn til liðs við frönsku meistarana.
Þeir ættu að reka Eriksson
Fyrrum landsliðsmaðurinn Mick Channon segir að enska knattspyrnusambandið ætti að sjá sóma sinn í að reka landsliðsþjálfara sinn Sven-Göran Eriksson, eftir útreiðina sem liðið fékk á Parken í Kaupmannahöfn í 4-1 tapinu í vikunni.
Luque ekki til Newcastle
Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle hefur viðurkennt að félaginu hafi enn á ný mistekist að klófesta sterkan sóknarmann og sá nýjasti er Alberto Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni.

Carvalho biður Mourinho afsökunar
Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun.

Carvalho þarf í greindarpróf
Jose Mourinho brást ókvæða við ummælum Ricardo Carvalho nýverið, þar sem hann gagnrýndi ákvarðanir þjálfarans að hafa sig á varamannabekk Chelsea um síðustu helgi.

Sá besti sem við gátum fengið
Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet.

Heiðar verður að vera þolinmóður
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, gaf það í skyn í viðtali í morgun að Heiðar Helguson gæti þurft að vera þolinmóður á að fá tækifæri í byrjunarliði Fulham, því hann segist nokkuð ánægður með framherja sína.
Jafnt á Ásvöllum
Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrstu deild karla í kvöld. Kristján Ómar Björnsson og Hilmar Rafn Emilsson gerðu mörk Hauka en mörk Ólafsvíkinga gerðu þeir Alexander Linta úr víti og Hermann Geir Þórisson.

Denilson til Vestel Manisaspor
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Denilson sem eitt sinn var álitinn einn efnilegasti leikmaður heims er genginn til liðs við nýliða Vestel Manisaspor, í tyrknesku úrvalsdeildinni að láni frá spænska liðinu Real Betis. Denilson gekk til liðs við Betis eftir heimsmeistarakeppnina 1998 en aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.

Morrison til Norwich
Sóknarmaðurinn Clinton Morrison er genginn til liðs við Norwich í Championship deildinni frá úrvalsdeildarliði Birmingham fyrir 2 milljónir punda. Morrison taldi sig ekki fá sanngjarna meðferð frá Steve Bruce, knattspyrnustjóra Birmingham og bað um sölu.

Owen á leið til Liverpool?
Breskir fjölmiðlar kepptust um það í morgun að greina frá því að Michael Owen væri á leið aftur til Liverpool eftir allt saman.
Pearce stendur með sínum manni
Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Man. City, hefur komið markverði sínum David James til varnar, en hann átti hörmulegan leik með Englandi gegn Dönum í gær og hefur þurft að þola mikil skítköst frá breskum fjölmiðlum.

Stærsti ósigur Breta í 25 ár
Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1 tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk.

Vináttulandsleikir í gær
Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í gær. Króatar og Brasilíumenn gerðu jafntefli 1 - 1 í Split , Svíar lögðu Tékka 2 - 1. Holland og Þýskaland gerðu jafntefli 2 - 2 í Hollandi en heimamenn komust í 2 - 0.
Dramatík á Akureyri
Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1. Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild.
Ókeypis á sunnudag
Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2007 í kvennaknattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudag kl. 14:00. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum og eina heimaleikinn á árinu. Aðgangur á leikinn er ókeypis og er fólk því hvatt til að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu.