Ítalski boltinn
186 187 188 189 190 191 192 193 194 … 198 ›
Nedved í fimm leikja bann Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved var í dag dæmdur í fimm leikja bann með liði Juventus í ítölsku B-deildinni eftir að hafa fengið rautt spjald í leik Juve og Genoa. Nedved missti stjórn á skapi sínu og traðkaði á andstæðingi sínum og bætti um betur og tróð dómaranum niður þegar hann fékk að líta rauða spjaldið. Juventus er í öðru sæti deildarinnar og mætir toppliðinu Bologna í næsta leik. Fótbolti 5.12.2006 14:45
Shevchenko er ekki á leið til Ítalíu Adriano Galliani hjá AC Milan, segir að ekkert sé til í þeim fullyrðingum bresku blaðanna að framherjinn Andriy Shevchenko sé á leið aftur til AC Milan. "Við höfum ekki verið í neinum viðræðum við Chelsea um að fá leikmanninn aftur til okkar," sagði Galliani á heimasíðu ítalska félagsins. Fótbolti 30.11.2006 16:09
Nesta og Serginho undir hnífinn? Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki. Fótbolti 30.11.2006 15:25
Af hverju að fara til Englands? Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter Milan á Ítalíu segist ekki skilja af hverju framherji sem er sáttur í herbúðum liðs síns á Ítalíu ætti að láta sér detta í hug að flytja til Englands og spila í ensku úrvaldseildinni. Þessi orð lét hann falla í samtali við breska blaðið Mirror þegar hann svar spurður út í vandræði Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Enski boltinn 30.11.2006 15:06
Dida dregur lappirnar Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan hafa lýst yfir óánægju sína með það hversu erfiðlega gengur að ná samningum við brasilíska markvörðinn Dida. Samningur Dida rennur út í júní, en hann nú meiddur og getur ekki spilað með liðinu fyrr en í fyrsa lagi í janúar. Fótbolti 29.11.2006 16:13
Inter heldur toppsætinu Inter Milan hefur fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir mjög þýðingarmikinn 2-1 útisigur á Palermo á Sikiley í kvöld. Zlatan Ibrahimovic og Patrick Vieira skoruðu mörk Mílanóliðsins í kvöld. Palermo búið að missa annað sætið alfarið í hendur Roma sem lagði Sampdoria 4-2 í dag þar sem Francesco Totti skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 26.11.2006 21:38
Maldini tryggði Milan sigur Gamla brýnið Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Messina í ítölsku A-deildinni. Milan hafði ekki unnið sigur í fjórum síðustu leikjum sínum í deildinni og því má segja að mark fyrirliðans hafi verið gulls ígildi. Hann var raunar nálægt því að skora öðru sinni í leiknum en skalli hans hafnaði í slánni á marki Messina. Fótbolti 25.11.2006 22:08
Gamlir refir íhuga að hætta Ítalska dagblaðið Gazzetta dello Sport greinir frá því í dag að einhver skörð verði væntanlega höggvin í stórlið AC Milan í vor, því þeir Paolo Maldini og Alessandro Corstacurta hallist að því að leggja skóna á hilluna. Þá er einnig reiknað með því að brasilíski bakvörðurinn Cafu sé að spila sína síðustu leiktíð með liðinu. Fótbolti 22.11.2006 14:40
Engar væntingar skiluðu okkur HM-titlinum Marcello Lippi, ítalski þjálfarinn sem stýrði þjóð sinni til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, segir að litlar væntingar hafi átt stærstan þátt í að Ítalir urðu heimsmeistarar. “Það var engin pressa á okkur og það hjálpaði gríðarlega,” sagði Lippi við ítalska fjölmiðla í gær. Fótbolti 19.11.2006 23:21
Inter með þriggja stiga forystu Inter Milan er með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir leiki dagsins. Hernan Crespo tryggði liðinu 1-0 sigur á Reggina en Roma burstaði Catania, 7-0. Fótbolti 19.11.2006 16:17
Cannavaro verður valinn bestur Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro verður valinn leikmaður ársins af franska fótboltatímaritinu France Football, að því er Ramon Calderon, forseti Real Madrid, heldur fram. Fótbolti 18.11.2006 12:47
Ég á skilið að fá gullknöttinn Fabio Cannvaro, leikmaður Real Madrid og ítalska landsliðsins, segist vonast til að ítalskur leikmaður verði sæmdur gullknettinum þegar hann verður afhentur fljótlega, en hann og Gianluigi Buffon markvörður eru báðir tilnefndir. Fótbolti 15.11.2006 16:09
Palermo á toppnum Palermo situr í toppsæti ítölsku A-deildarinnar eftir leiki dagsins, en liðið vann 3-0 sigur á Torino í dag. Í kvöld mættust Parma og Inter í æsilegum og dramatískum leik, þar sem Inter tryggði sér sigur á lokamínútunum. Fótbolti 12.11.2006 21:32
Totti tryggði Roma sigur á Milan Francesco Totti var hetja Roma í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk Roma í dramatískum 2-1 útisigri liðsins á AC Milan. Fyrir vikið er Roma aðeins einu stigi á eftir toppliðunum Inter og Palermo. Á sama tíma vann Fiorentina 3-1 sigur á Atalanta. Fótbolti 11.11.2006 22:06
Rændur og barinn af þjófum í Róm Dino Zoff, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar hann var á göngu með konu sinni í Róm á laugardagskvöldið. Óprúttnir náungar höfðu af þeim öll þeirra verðmæti og gáfu Zoff um leið vænt glóðurauga. Fótbolti 6.11.2006 10:33
Inter lagði Milan í æsilegum leik Inter Milano lagði granna sína í AC Milan 4-3 í æsilegu uppgjöri erkifjendanna í ítölsku A-deildinni í gær. Crespo, Stankovic og Ibrahimovic komu Inter í 3-0 í upphafi síðari hálfleiks áður en Seedorf minnkaði muninn fyrir Inter. Materazzi kom þá Inter í 4-1 og var rekinn af velli fyrir fagnaðarlæti sín og í kjölfarið minnkuðu þeir Gilardino og Kaka muninn fyrir AC. Fótbolti 29.10.2006 16:18
Dómurinn enn mildaður Refsing þriggja ítalskra knattspyrnufélaga sem gert var að sæta refsingu fyrir hlut sinn í knattspyrnuskandalnum þar í landi í sumar var í kvöld mildaður enn einu sinni. Átta stiga refsing AC Milan mun standa áfram, en Lazio, Juventus og Fiorentina fá refsingar sínar mildaðar og er þessu ljóta máli nú formlega lokið þar sem ekki verður um frekari áfrýjun að ræða. Nánari upplýsinga er að vænta innan skamms. Fótbolti 27.10.2006 21:05
Pressan er öll á Milan Framherjinn Hernan Crespo segir að pressan sé öll á liði AC Milan fyrir risaslag grannliðanna AC og Inter í ítölsku A-deildinni á laugardaginn. Inter er á toppi deildarinnar með 18 stig úr 8 leikjum, en AC er þar 11 stigum á eftir í 12. sæti og þá á eftir að reikna með stigarefsinguna úr skandalnum í sumar. Fótbolti 26.10.2006 17:56
Inter burstaði Livorno Heil umferð var á dagskrá í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Efsta liðið Inter Milan vann auðveldan 4-1 sigur á Livorno þar sem Ibrahimovic, Cruz og Materazzi skoruðu fyrir meistarana en fyrsta mark liðsins var raunar sjálfsmark. Fótbolti 25.10.2006 21:04
Ekki tilbúinn að fyrirgefa Zidane strax Ítalski landsliðsmaðurinn Marco Materazzi segist enn ekki vera tilbúinn til að fyrirgefa Zinedine Zidane fyrir að skalla sig í úrslitaleik HM í sumar. Hann segir þó að eflaust muni hann gera það í framtíðinni ef rétt tækifæri gefst. Fótbolti 25.10.2006 18:29
Enn fækkar áhorfendum á Ítalíu Svo virðist sem knattspyrnuáhugamenn á Ítalíu séu að snúa baki við keppni í A deildinni þar í landi ef marka má nýlega könnun blaðsins Gazzetta dello Sport, en sigur Ítala á HM í sumar hefur ekki komið í veg fyrir að áhorfendatölur í deildinni hafa lækkað níunda keppnistímabilið í röð. Fótbolti 25.10.2006 16:17
Adriano farinn í frí til heimalandsins Brasilíska framherjanum Adriano hjá Inter Milan hefur verið gefið vikufrí af forráðamönnum félagsins sem hann mun nota til að fara til heimalandsins í læknis- og sálfræðimeðferð. Adriano hefur alls ekki náð sér á strik á síðustu mánuðum og hefur ekki skorað mark síðan í vor. Fótbolti 24.10.2006 16:01
Buffon ætlar ekki að fara til Chelsea Umboðsmaður ítalska markvarðarins Gianluigi Buffon segir skjólstæðing sinn ekki ætla að ganga í raðir Englandsmeistara Chelsea í janúar eins og breskir fjölmiðlar hafa haldið fram í dag. Umboðsmaðurinn segir Buffon ekki ætla að fara frá félaginu í janúar, enda hefði hann farið strax frá Juve eftir að liðið féll í B-deildina ef hann hefði ætlað sér það á annað borð. Enski boltinn 20.10.2006 14:27
Ekki að taka við Inter Milan Fjölmiðlar á Ítalíu hafa gert því skóna undanfarna daga að Sven-Göran Eriksson muni verða næsti þjálfari Inter Milan ef Roberto Mancini nær ekki að koma liðinu á sigurbraut hið snarasta. Eriksson vísar þessu á bug og segist styðja fyrrum aðstoðarmann sinn hjá Lazio heilshugar. Fótbolti 18.10.2006 16:20
Ætlar að spila aftur fyrir Rangers Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers. Fótbolti 15.10.2006 17:29
Inter á toppinn Inter Milan skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag með 2-1 sigri á Catania í dag. Það var Dejan Stankovic sem skorað bæði mörk Inter í dag og eru ítölsku meistararnir þar með komnir með 14 stig eftir 6 leiki og hafa 2 stiga forskot á Roma sem tapaði 1-0 úti gegn Reggina. Fótbolti 15.10.2006 17:39
Roma á toppinn Roma skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Empoli 1-0 á heimavelli sínum með marki frá Vincenzo Montella. Meistarar Inter þurftu að láta sér lynda 1-1 jafntefli á útivelli gegn Cagliari og AC Milan tapaði sömuleiðis stigum þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Siena. Fótbolti 1.10.2006 19:04
Sigurganga Juventus heldur áfram David Trezeguet skoraði tvö mörk annan leikinn í röð fyrir lið Juventus þegar það vann 2-0 sigur á Piacenza í dag og er því aðeins með fjögur stig í mínus í deildinni og er því 15 stigum á eftir efsta liði deildarinnar Brescia, sem gerði jafntefli í dag. Trezeguet skoraði líka tvö mörk um síðustu helgi í 4-0 sigri á Modena, en það var gamla kempan Alessandro Del Piero sem lagði upp bæði mörk Frakkans í dag. Fótbolti 30.9.2006 20:39
Kominn með HM húðflúr Varnarmaðurinn umdeildi Marco Materazzi hjá Inter Milan er búinn að fá sér enn eitt húðflúrið og er það minnisvarði um sigur Ítala á HM í sumar. Materazzi komst þar eins og allir vita í heimsfréttirnar með því að verða fyrir reiðum skalla Zinedine Zidane, en ítalski varnarmaðurinn skoraði líka mark Ítala í leiknum dramatíska. Fótbolti 28.9.2006 19:32
Inter skaust á toppinn Ítalíumeistararnir í Inter unnu 4-3 sigur á Chievo í gær í ótrúlegum leik á heimavelli sínum. Með þessum sigri komst Inter á toppinn en það munaði litlu að liðið glopraði niður forskoti sínu eftir að hafa komist í 4-0. Á seinasta stundarfjórðungi leiksins skoraði Chievo þrjú mörk og fékk færi í viðbótartíma til að ná jafntefli. Fótbolti 24.9.2006 19:25