Skotvopn
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Hákon Þór fer á Ólympíuleikana í París Haglabyssuskyttan Hákon Þór Svavarsson mun keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í París í sumar. Sport 13.6.2024 18:08
Um tólf vopnuð útköll lögreglu og sérsveitar í hverri viku Alls fór lögreglan á Íslandi í 180 útköll á síðasta ári þar sem hún þurfti að vopnast. Flest voru útköllin á höfuðborgarsvæðinu, eða alls 97. Sérsveitin fór í alls 461 vopnuð útköll á síðasta ári. Samanlagt eru það 558 útköll eða um 12 útköll á viku. Innlent 12.6.2024 22:23
Trump líklega sviptur byssuleyfinu í kjölfar dómsins Lögregluyfirvöld í New York hefur hafið rannsókn sem miðar að því að úrskurða um það hvort svipta eigi Donald Trump, forsetaframbjóðanda og fyrrverandi forseta, byssuleyfi. Erlent 6.6.2024 08:38
Vita ekki hvar tvö þúsund skotvopn eru niðurkomin Lögreglufulltrúi segir áhyggjuefni að hér á landi séu tvö þúsund skotvopn á skrá sem lögregla veit ekki hvar eru niðurkomin. Um 340 vopn eru skráð stolin hér á landi og óttast lögregla að þau séu í röngum höndum. Innlent 5.6.2024 19:59
Undir áhrifum og með eftirlíkingu af skotvopni Tveir menn undir áhrifum fíkniefna og með eftirlíkingu af skotvopni með sér voru handteknir nærri Klambratúni í dag. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst um klukkan sex í dag tilkynning um vopnaðan mann í miðbænum og var viðbúnaður lögreglunnar umfangsmikill. Innlent 22.5.2024 19:45
Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Þeir Gavin og Dan í „Slow Mo Guys“ fengu nýverið þá flugu í höfuðið að kanna hvort mögulegt væri að skjóta byssukúlu í gegnum aðra stærri byssukúlu. Þetta sáu þeir gerast í kvikmyndinni The Suicide Squad og vildu, eðlilega, sannreyna hvort það er hægt í alvörunni og fanga það á háhraðamyndavélar þeirra. Lífið 6.5.2024 10:57
Allskonar byssur til sýnis á Stokkseyri um helgina Það verður mikið um að vera á Stokkseyri um helgina því þar verður Veiðisafnið með byssusýningu um leið og því verður fagnað að nú eru tuttugu ár frá því að safnið hóf starfsemi sína á staðnum. Lífið 23.3.2024 13:05
Íslendingurinn var handtekinn í Baltimore Íslenskur karlmaður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi í Bandaríkjunum eftir að hafa verið handtekinn á flugvellinum í Baltimore í Bandaríkjunum í síðustu viku með skotvopn í farangri sínum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í húsleit á heimili mannsins eftir tilkynningu frá bandarískum löggæsluyfirvöldum. Innlent 18.3.2024 12:33
Haldlögðu mikið magn skotvopna á höfuðborgarsvæðinu Mikið af skotvopnum, meðal annars skammbyssur og vélbyssur, og íhlututum skotvopna, ásamt miklu magni af skotfærum var haldlagt við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgina. Innlent 18.3.2024 11:34
Ríkislögreglustjóri býður skotvopnanámskeið út Um síðustu áramót sagði Umhverfisstofnun upp samningi við Ríkislögreglustjóra sem varðar utanumhald og framkvæmd skotvopnanámskeiða. Ríkislögreglustjóri hyggst bjóða framkvæmdina út. Innlent 23.2.2024 10:27
Leiðtogi NRA segir af sér Wayne LaPierre framkvæmdarstjóri samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum NRA hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum frá og með næstu mánaðamótum. Hann er 74 ára gamall og hefur farið fyrir samtökunum í þrjá áratugi. Erlent 6.1.2024 10:28
Skapari Glock-byssunnar er látinn Austurríski verkfræðingurinn Gaston Glock, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp Glock-skammbyssuna, er látinn. Hann varð 94 ára gamall. Viðskipti erlent 28.12.2023 07:42
Skaut mann á tæplega fjögurra kílómetra færi Úkraínsk leyniskytta er sögð hafa sett nýtt met þegar hann skaut rússneskan hermann á 3.800 metra færi. Það gerði hinn 58 ára gamli Vyacheslav Kovalskiy með sérsmíðaðri byssu og sérstökum skotum. Skotið sem hæfði hermanninn var um níu sekúndur á leiðinni. Erlent 5.12.2023 18:19
Keyptu byssur fyrir 165 milljónir en gefa ekki upp fjöldann Mat dómsmálaráðuneytisins er að birting nákvæmra upplýsinga yfir byssur í eigu lögreglu falli undir lykilupplýsingar um viðbragðsgetu lögreglu. Hún geti þar með haft afdrifaríkar afleiðingar, stofnað öryggi ríkisins í hættu og haft áhrif á öryggi lögreglumanna. Skotvopn voru keypt fyrir 165 milljónir króna fyrr á árinu vegna leiðtogafundar í Hörpu. Innlent 20.11.2023 21:07
Hefur enn ekki fengið svör um byssukaup Þingmaður Pírata furðar sig á því að sér hafi ekki borist svör frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn sinni um vopnakaup lögreglu. Fyrirspurnin var lögð fram í maí og svo aftur á nýju þingi. Ráðuneytið segir svara að vænta 15. nóvember, degi eftir sérstaka umræðu um málið á þingi. Innlent 10.11.2023 06:45
Sex mánaða skilorð fyrir hundrað byssur og 34 þúsund skot Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot. Maðurinn var gripinn með tæplega hundrað byssur og 34 þúsund byssuskot í vörslum sínum. Hann taldi geymslu vopnanna fullnægjandi. Innlent 21.10.2023 13:20
Tryggja skotíþróttum æfingasvæði á Álfsnesi út 2028 Skotíþróttum verður tryggt æfingasvæði á Álfsnesi út árið 2028. Starfshópur á vegum Reykjavíkur, Ölfus og Voga á að finna íþróttinni framtíðarstaðsetningu. Sautján staðsetningar eru til skoðunar, ekki eru allar innan Reykjavíkur. Innlent 12.10.2023 17:31
Bjóða aðstoð hersins eftir að 100 lögreglumenn leggja niður vopn Breska varnarmálaráðuneytið hefur boðið löggæsluyfirvöldum í Lundúnum aðstoð hermanna eftir að fjöldi lögreglumanna í höfuðborginni skilaði inn skotvopnum sínum. Erlent 25.9.2023 08:09
Ákærður fyrir ólöglegan vopnaflutning á Akureyri Lögregla á Norðurlandi eystra hefur ákært 35 ára karlmann fyrir vopnalagabrot með því að hafa flutt skotvopn með ólöglegum hætti og undir áhrifum áfengis. Innlent 21.9.2023 10:34
Sendu hjartahlý skilaboð eftir meinta skipulagningu hryðjuverka Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar sakbornings í hryðjuverkamálinu, segir að margt sem umbjóðandi hans sé sakaður um sé hreinn tilbúningur. Hann sakar ákæruvaldið um að leggja fram samtöl mannanna, í mörgum tilfellum, á samhengislausan hátt þannig að ekki sé hægt að lesa það á réttan hátt. Innlent 15.9.2023 14:43
Þjálfarinn handtekinn með skotvopn eftir frækinn sigur Þjálfari Chris Eubank yngri var handtekinn á flugvelli í Manchester fyrir vörslu skotvopna í gær, degi eftir frækinn sigur breska boxarans. Sport 4.9.2023 14:31
„Það var ekki leiðtogafundur í Nettó“ Maður sem vakti athygli á vopnuðum lögreglumanni í Nettó segir að ekki megi normalísera vopnaburð lögreglunnar. Lögregluþjónninn reyndist vera sérsveitarmaður en samkvæmt verklagi eru þeir alltaf vopnaðir á vakt, þó þeir séu bara að kaup sér skyr. Innlent 5.7.2023 19:18
Hreindýraveiðimenn á síðustu stundu að taka skotprófið Jóhann G. Gunnarsson umsjónarmaður hreindýraveiða á starfstöð Umhverfisstofnunar á Egilsstöðum er orðinn órólegur; honum þykir menn heldur seinir að taka tilskilið skotpróf. Það stefnir í óefni. Innlent 28.6.2023 11:38
Tveggja ára drengur skaut ólétta móður sína óvart til bana Tveggja ára drengur í Ohio skaut móður sína, sem var gengin átta mánuði á leið, óvart í bakið þegar hann lék sér með skammbyssu sem hann fann í náttborði foreldra sinna. Móðirin og ófætt barn hennar létust bæði. Erlent 22.6.2023 00:26
„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“ Aðdáun á alræmdum morðingjum sem hafa framið hryðjuverk á undanförnum árum skín í gegnum samskipti tveggja ungra manna sem eru ákærðir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk. Annar þeirra vakti ítrekað máls á að feta í fótspor þeirra með árásum á einstaklinga og stofnanir. Innlent 16.6.2023 07:00
Hafa lokið rannsókn á Dubliner málinu Rannsókn lögreglu á atviki þar sem maður hleypti af skoti á Dubliner í Reykjavík í mars er lokið. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, situr áfram í gæsluvarðhaldi en það var framlengt þann 6. júní síðastliðinn. Innlent 15.6.2023 10:14
Hryðjuverkadraumórar raktir ítarlega í nýrri ákæru Órum tveggja sakborninga í hryðjuverkamálinu svonefnda um að myrða nafngreint fólk og fremja hryðjuverk er lýst ítarlega í nýrri ákæru sem þingfest var í málinu í dag. Mennirnir tveir sóttu sér einnig efni um þekkta hryðjuverkamenn eins og Anders Behring Breivik. Innlent 12.6.2023 15:14
Ríkiskaup vilja skýringar á innkaupum Ríkislögreglustjóra Ríkiskaup hafa óskað eftir því að Ríkislögreglustjóri tilkynni innkaup á búnaði vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins með formlegum hætti á heimasíðu útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins og rökstyðji val sitt á innkaupaferlinu. Innlent 9.6.2023 07:27
Brynjan bognaði inn í búkinn Í Bandaríkjunum er frekar stór hópur manna sem leika sér að því að skjóta alls konar hluti með alls konar byssum og birta myndbönd af því á Youtube. Þessi hlið myndbandaveitunnar kallast í daglegu tali GunTube en þar hefur fjölmörgum áhugaverðum spurningum verið svarað í gegnum árin. Lífið 8.6.2023 15:35
Aðallega Glock-skammbyssur og MP5-byssur í 185 milljóna króna vopnapakka Ríkislögreglustjóri keypti vopn og skotfæri fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fyrir um 185 milljónir króna. Þetta kemur fram í samantekt á vef lögreglunnar þar sem segir að engar hríðskotabyssur hafi verið keyptar. Innlent 2.6.2023 15:24