Skoðun

Fréttamynd

Einar Gunnarsson: Af „líffræðilegum fjölbreytileika“

Hæstvirtur umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, kveður sér hljóðs í Fréttablaðinu 23. apríl síðast liðinn. Umfjöllunarefnið er barátta (hvað annað) fyrir vexti og viðgangi dýra og plöntutegunda og þeirri meintu ógn sem moðsuðuklisjunni óþjálu, um „líffræðilegan fjölbreytileika“ stafar af „framandi ágengum tegundum“.

Skoðun
Fréttamynd

Njörður P. Njarðvík: Siðareglur fyrir forseta

Sá sem hefur næma siðferðiskennd, þarf ekki að setja sér sérstakar reglur. Siðvitund hans segir honum líkt og ósjálfrátt hvað er við hæfi. Það hefði væntanlega þótt tíðindum sæta á tímum Vigdísar Finnbogadóttur og Kristjáns Eldjárn, að talin væri þörf á sérstökum siðareglum um störf þeirra. Hið sama hygg ég að segja megi um Ásgeir Ásgeirsson og Svein Björnsson, þótt ég þekkti ekki að sama skapi til þeirra persónulega. Mér er minnisstætt að ég heyrði Kristján Eldjárn segja, að á Bessastöðum skyldi ríkja alþýðlegur virðuleiki. Þá var sátt með þjóð og forseta - og gagnkvæm virðing.

Skoðun
Fréttamynd

Hjálmar Sveinsson: Fákeppnin er skipulagsmál

Kostir verslunarmiðstöðva eru miklir, það sést best af vinsældum þeirra. Í þeim er hægt að kaupa næstum allt í einni ferð og ef þær eru reistar í útjaðri byggðanna er hægt bjóða verslunareigendum mun ódýrara húsnæði en tíðkast við hefðbundnar verslunargötur. Þegar þar við bætist að verslunarmiðstöðvar bjóða upp á nær ótakmörkuð, "ókeypis bílastæði" verða þær ómótstæðilegar. Þrátt fyrir það hafa undanfarin 10 til 20 ár verið skýr merki um að blómatími þeirra sé liðinn í sjálfu upprunalandinu, Bandaríkjunum. Þar er þeim lokað í nokkuð stórum stíl. Það er merkileg þróun og afar myndræn eins og sjá má á mögnuðum vef tileinkuðum dauðum mollum: deadmalls.com.

Skoðun
Fréttamynd

Sigurður Pétursson: Dýrafjarðargöng aftur á áætlun

Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfjarða skorar á samgöngunefnd Alþingis að setja aftur inn á Samgönguáætlun áranna 2009-2012 framlög til Dýrafjarðarganga, og staðfesta þannig fyrri vilja Alþingis og Vestfirðinga að göngin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar verði sett á áætlun samhliða Norðfjarðargöngum sem næsta jarðgangaframkvæmd á Vestfjörðum."

Skoðun
Fréttamynd

Helgi Áss Grétarsson: Norræna ofveiðisamfélagið

Í hugmyndaheimi margra Íslendinga er undirrót alls ills í samfélaginu það fyrirkomulag sem við lýði hefur verið við stjórn fiskveiða sl. tvo áratugi. Ófáir hafa haldið því fram að þangað eigi efnahagshrunið rót sína að rekja. Upptaka fiskveiðistjórnkerfisins hafi ýtt til hliðar því samfélagi sem grundvallaðist á norrænum gildum um velferð og jöfnuð. Þessi einfalda söguskoðun var í megindráttum sett fram í pistli Guðmundar Andra Thorssonar sem birtist í Fréttablaðinu 26. apríl sl., og þótt hún eigi sér marga fylgjendur þá er hún að mínu mati fjarstæðukennd. Fyrir þessu eru margvíslegar ástæður en hér verða eingöngu fáeinar nefndar.

Skoðun
Fréttamynd

Hanna Birna Kristjánsdóttir: Aukin þjónusta við íbúa

Reykjavíkurborg leggur áherslu á að bæta stöðugt þjónustu við íbúa í þeirra eigin nærumhverfi. Borgaryfirvöld eru meðvituð um að þarfir íbúanna eru ólíkar eftir hverfum og þörfin fyrir hverfamiðaða þjónustu og upplýsingar er mikil. Hvert þeirra tíu hverfa sem borgina byggja, allt frá vesturbæ norður á Kjalarnes, hafa sína sérstöðu.

Skoðun
Fréttamynd

Guðlagur G. Sverrisson: Orkuveitan og kosningabaráttan

Umræða um málefni Orkuveitu Reykjavíkur er farin að bera keim af kosningunum framundan. Upplýsingum, sem frambjóðendur telja sér til framdráttar, er haldið á lofti án samhengis við nokkuð annað í rekstri fyrirtækisins eða rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja almennt. Af þeim toga eru vígorð um aukningu skulda Orkuveitunnar. Þær eru vitaskuld viðfangsefni sem reglulega er á borði stjórnar fyrirtækisins og hjá OR sem og hjá Reykjavíkurborg stendur yfir fagleg vinna við að meta stöðuna og áhættuna í okkar síkvika rekstrarumhverfi.

Skoðun
Fréttamynd

Róbert Marshall: Ísland er samt best

Það er eins og maður sé kominn á tónleika hjá lögreglukórnum, sagði ég við Kjartan sýslumann þar sem hann stillti sér upp í röð á sviðinu með Haraldi Johannessen og Víði Reynissyni í almannavarnadeildinni ásamt fleiri sérfræðingum á íbúafundi á Hellu í síðustu viku.

Skoðun
Fréttamynd

Helgi Gunnlaugsson: Afbrot og refsingar

Um þessar mundir fagnar fangahjálpin Vernd 50 ára afmæli. Á starfstíma sínum hefur samfélagið allt tekið stakkaskiptum sem birtist m.a. í málaflokki afbrota. Fagmennska hefur aukist og opinber gögn um afbrot og fangelsismál eru nú aðgengileg. Á sama tíma hafa áhyggjur af afbrotum vaxið og kröfur um hertar refsingar eru háværar. Refsingar hafa þyngst og álagið á fangelsiskerfið hefur aldrei verið meira en einmitt núna. Við þessar aðstæður verður starf fangahjálparinnar brýnna en nokkru sinni fyrr.

Skoðun
Fréttamynd

Þórhildur Þorleifsdóttir: Úr viðjum vanans

Fjármálaráðuneytið tilkynnti nýlega um skipan starfshóps um breytingar á skattakerfinu. Hæstvirtur fjármálaráðherra er ábyrgur fyrir skipan hópsins þótt tilnefningaraðilar eigi líka hlut að máli. Í tilkynningunni mátti sjá svart á hvítu að hópurinn var skipaður fimm körlum og einni konu.

Skoðun
Fréttamynd

Barnamenningarhús

Fríkirkjuvegur 11 er perla í hjarta miðborgarinnar. Áratugum saman hefur húsið þjónað reykvískum börnum. Þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ákvað haustið 2006 að selja Björgólfi Thor Björgólfssyni húsið lögðust borgarfulltrúar VG gegn því, enda dýrmætur hluti úr sögu barnanna í borginni. Húsið hefur hýst íþrótta- og tómstundasvið um langt skeið en þar á undan voru þar haldin ýmiss konar námskeið og starfsemi í þágu almennings og með sérstakri áherslu á börn.

Skoðun
Fréttamynd

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir: Opið bréf til félagsmanna BÍ

Ár er síðan ég var kosin formaður Blaðamannafélags Íslands. Hópurinn er breyttur, margir hafa fengið reisupassann á fjölmiðlum eða horfið til annarra starfa. Það eru miklir átakatímar í blaðamennsku eins og öðru. Í fyrra fékk ég óskorað umboð ykkar til að stýra Blaðamannafélaginu, sem ég hef gert eftir bestu getu.

Skoðun
Fréttamynd

Ástráður Haraldsson: Ábyrgð ráðherra

Á dögunum féll í héraðsdómi dómur í máli eins umsækjenda um dómarastöðu í norðaustur-amtinu. Sá taldi settan dómsmálaráðherra hafa brotið á sér með því að skipa síður hæfan umsækjanda í stöðuna. Niðurstaðan varð áfall fyrir dómsmálaráðherra og ríkið. Það er að vonum. Þetta tilvik er í hópi ömurlegustu dæma um misbeitingu opinbers valds hér á landi. Hitt vakti athygli að héraðsdómur taldi settan dómsmálaráðherra persónulega ábyrgan í málinu.

Skoðun
Fréttamynd

Lilja Mósesdóttir: Að ganga í takt

Í fréttaskýringu Kolbeins Óttarssonar Proppé í Fréttablaðinu 22. apríl er ég sérstaklega tekin út í umfjöllun um „ófriðarbál“ innan VG og þess getið að ég gangi í litlum takti við aðra í þingflokknum. Fréttaflutningur Kolbeins veldur mér vonbrigðum því stutt er síðan út kom skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, þar sem ítarlega er gerð grein fyrir hörmulegum afleiðingum foringjaræðis og heraga innan ríkisstjórnarflokka.

Skoðun
Fréttamynd

Dagur B. Eggertsson: Atvinnumál í Reykjavík og aðgerðir gegn atvinnuleysi

Baráttan fyrir fullri atvinnu er hornsteinn jafnaðarstefnunnar og forgangsmál við núverandi aðstæður. Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er alls staðar undirstaða velferðar og því lítur Samfylkingin á það sem eitt mikilvægasta hlutverk borgarinnar að efla og styrkja atvinnulífið í borginni. Avinnuleysi er þjóðarböl og hvert prósentustig í atvinnuleysi kostar borgarsjóð milljarð króna á ári.

Skoðun
Fréttamynd

Þórður Friðjónsson: Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær

Efnahagsleg velsæld þjóða ræðst ávallt af því hvernig þær skipuleggja þjóðarbúskap sinn. Þær þjóðir sem mestum árangri hafa náð hafa komið sér upp stofnunum sem styðja með ýmsum hætti við frjálsan markaðsbúskap. Þær eiga það jafnframt sammerkt að öflugur hlutabréfamarkaður styður við hagkerfi þeirra; ein grunnstofnana heilbrigðs markaðsbúskapar sem knýr hagvöxt. Ásýnd öflugustu hagkerfa heims væri eflaust önnur ef hlutabréfamarkaðar nyti ekki við. Þetta er brýnt að hafa í huga við endurreisn íslensks efnahags.

Skoðun
Fréttamynd

Gísli Gíslason: Skot sem geigar

Sigurður Gunnarsson skotveiðimaður víkur að lífeyrissjóðalánum til Hvalfjarðarganga í grein í Fréttablaðinu 15. apríl og segir þar að „ástæðan fyrir því að ekki er fyrir löngu búið að borga upp Hvalfjarðargöng er sú að lán lífeyrissjóða til þeirrar framkvæmdar voru með okurvöxtum.“ Þetta skot geigar hjá veiðimanninum og það svo um munar.

Skoðun
Fréttamynd

Kæri karlmaður

Kæri íslenski karlmaður. Bréf þetta er ritað af vinkonu þinni og aðdáanda, sem á maka, son, föður, bræður, frændur og vini í þínum röðum.

Skoðun
Fréttamynd

Oddný Sturludóttir : Gagnkvæm virðing

Í dag eru 22.644 innflytjendur á Íslandi eða 9% af þjóðinni. Ísland er fjölbreytt fjölmenningarsamfélag. Þá staðreynd er ekki hægt að hunsa. Fólk getur rökrætt um það hvort það sé jákvætt eða ekki, hvort innflytjendalög séu of ströng eða ekki. En ekkert breytir því að við búum í heimi sem skreppur sífellt saman og er byggður af ferðafæru fólki.

Skoðun
Fréttamynd

Steingrímur J. Sigfússon: Um fátækt á Íslandi

Til að fyrirbyggja misskilning vil ég gera grein fyrir viðhorfum mínum til þeirrar dapurlegu staðreyndar að fátækt er til staðar á Íslandi. Aðspurður um þessi efni á blaðmannafundi í lok síðustu viku reifaði ég mín viðhorf til þessa stuttlega en a.m.k. einn fréttamaður kaus að hafa það eitt eftir mér að fátækt hér væri lítil borið saman við nálæg lönd.

Skoðun
Fréttamynd

Helgi Áss Grétarsson: Enn af fiskabúrum

Sama dag og grein birtist eftir Úlfar Hauksson í Fréttablaðinu, eða 31. mars sl., sendi ég grein í blaðið sem var fyrst og fremst um sjávarútvegsstefnu ESB. Greinin birtist í blaðinu 10. apríl sl. og tveim dögum síðar var birt svargrein í blaðinu eftir Úlfar þar sem athugasemdir voru gerðar við efni greinar minnar.

Skoðun
Fréttamynd

Ég bið ykkur afsökunar

Ég undirritaður, Björgólfur Thor Björgólfsson, bið alla Íslendinga afsökunar á mínum þætti í eigna- og skuldabólunni sem leiddi til hruns íslenska bankakerfisins. Ég bið ykkur afsökunar á andvaraleysi gagnvart þeim hættumerkjum sem hrönnuðust upp. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki auðnast að fylgja hugboði mínu þegar ég þó kom auga á hættuna. Ég bið ykkur afsökunar.

Skoðun
Fréttamynd

Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þóra Tómasdóttir: Það sem gerir okkur reið

Margt gerir okkur reið á Íslandi í dag. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis eru nefndar fjölmargar ásetnings- og vanrækslusyndir sem hafa bitnað á okkur öllum. Sum okkar eiga í vök að verjast og berjast í bökkum, en lífið gengur sinn vanagang hjá öðrum. Öll verðum við fyrir áhrifum af því að trúverðugleiki og traust til stofnanna og valdafólks hefur hrunið.

Skoðun
Fréttamynd

Guðmundur Franklín Jónsson:Fitch, Moody‘s ogStandard & Poors

Þessi ofangreindu matsfyrirtæki gefa skuldabréfum, fjármála­afurðum, fyrirtækjum, bönkum ,ríkjum o.s.frv. matseinkunnir. Öll þessi matsfyrirtæki eiga sameiginlegt að vera rekinn fyrir hámarksávöxtun hluthafa sinna og eru hlutafélög á almennum hlutabréfamarkaði. Moody"s Corp er skráð á New York Stock Exchange (NYSE). Standard & Poors er partur af McGraw Hill Companies, útgáfurisans sem gefur m.a. út BusinessWeek. McGraw Hill er einnig skráð á New York Stock Exchange (NYSE). Fitch Ratings er í meirihluta eigu Fimalacs, sem er skráð á kauphöllina í París.

Skoðun
Fréttamynd

Úlfar Hauksson: Íslenskur sjávarútvegur og Evrópusambandið

Helgi Áss Grétarsson ritar grein hér í Fréttablaðinu þann 10. þessa mánaðar undir yfirskriftinni "Fiskveiðistefna Íslands og ESB". Í greininni er Helgi Áss í og með að svara skrifum mínum hér á síðum blaðsins frá 31. mars sl. þar sem ég brást við grein Helga frá því 27. mars! Tilefni skrifanna er að við Helgi erum ekki sammála um réttmæti þess að bera saman árangur íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins við sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Akstur í boði SORPU

Sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu stofnuðu SORPU fyrir tæplega 20 árum. Á sínum tíma var stofnun byggðasamlagsins mikið framfaraskref í þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Loksins var fólki - fyrirtækjum og heimilum - gefinn kostur á því að flokka og endurvinna úrgang en slíka þjónustu höfðu mörg Evrópulönd þá boðið árum saman. Enda var SORPU vel tekið og fólk almennt séð duglegt að tileinka sér kosti flokkunar og endurvinnslu með jákvæðum umhverfisáhrifum og virðisauka fyrir samfélagið allt.

Skoðun
Fréttamynd

Pawel Bartoszek: Tómir stólar

Verkföllin í skipasmíðastöðinni í Gdansk árið 1980 mörkuðu að mörgu leyti upphaf endalokanna kommúnismans í Póllandi. Kveikjan að þeim verkföllum var þegar að iðnaðar- og baráttukonan Anna Walentynowicz var rekin úr starfi, einungis örfáum mánuðum áður en hún átti rétt á eftirlaunum. Verkföllunum lauk með sigri verkamannanna, Anna fékk starfið sitt að nýju og Samstaðan fékkst skráð sem löglegt félag. Þetta var einn fyrsti marktæki sigur stjórnarandstöðuafla á hinum sitjandi stjórnvöldum. Gagnbyltingin var hafin.

Skoðun
Fréttamynd

Sigþór Sigurðsson: Um vegatolla

Samgönguráðherra hefur viðrað hugmyndir um gjaldtöku eða vegatolla á helstu umferðaræðum útúr höfuðborginni. Gjaldið skal standa beint undir ýmsum arðbærum vegaframkvæmdum á næstu árum. Lífeyrissjóðir okkar landsmanna vilja fjármagna framkvæmdirnar og skapa störf. Valin verða verulega arðbær verkefni og sjóðirnir fá tekjurnar af vegagjöldunum. Bent hefur verið á að við núverandi aðstæður er þetta eina leiðin til þess að koma einhverjum slíkum verkefnum af stað. Ríkissjóður má ekki skuldsetja sig frekar þó um þjóðhagslega arðbær verkefni sé að ræða. Sveitarfélög hafa mörg hver verið rekin afar óskynsamlega á undanförnum árum og hafa ekki bolmagn til að framkvæma né fjárfesta. Ekki þarf að nefna einkageirann sem varla mun standa undir fjárfestingu að neinu nemi á næstu árum. Allt hefur þetta valdið óskaplegu hruni í atvinnugrein sem nefnist bygginga- og verktakaiðnaður. Stór og mikilvæg atvinnugrein sem staðið hefur undir allt að 10-15% landsframleiðslunnar er nánast þurrkuð út. Engir starfsmenn í öðrum atvinnugreinum hafa upplifað annað eins hrun og hér hefur orðið. Hundruð fyrirtækja hafa orðið gjaldþrota og þau sem eftir lifa berjast fyrir lífi sínu. Þúsundir hafa misst vinnuna og atgerfisflótti er slíkur að stór hætta er á að verktakaiðnaðurinn tapi stórum hluta af þeirri verkþekkingu sem byggð hefur verið upp hér á landi.

Skoðun
Fréttamynd

Óskar Bergsson: Betri samningur fyrir borgina

Eftir eins og hálfs árs gott samstarf meiri- og minnihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, þar sem unnið hefur verið eftir þverpólitískri aðgerðaáætlun, er nú kominn glímuskjálfti í mannskapinn og minnihlutinn hefur fundið

Skoðun
Fréttamynd

Ögmundur Jónasson: Kallað eftir rökum

Hluti af stofnanaveldinu íslenska – sá hinn sami og vildi ljúka Icesave-samningunum sem fyrst í sumar – leggur sig nú í líma við að sýna fram á að frestun samninganna hafi valdið okkur ómældu tjóni. Reyndar ekki alveg ómældu – í eiginlegri merkingu – því sumir hafa reiknað meint tjón af nokkurri nákvæmni. Hér eru á ferðinni auk Fréttablaðsins, fræðimenn,

Skoðun