
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn

Vorboðar láta sjá sig
Vorið er mætt í Húsdýragarðinn og fyrsti kiðlingur ársins leit þar dagsins ljós í morgun þegar huðnan Kolbrá bar myndarlegum hafri.

Kennir dýrum að vera róleg í sínu eigin umhverfi
Starfsmenn Húsdýragarðsins hafa síðustu daga lært af sænskum fræðingi. Það sé mikilvægt að lesa vel í hegðun dýra þegar verið er að nálgast þau.

Fær ekki krónu eftir slys í Húsdýragarðinum
Kona sem lenti í slysi þegar hún renndi sér niður rennibraut í Fjölskyldu og húsdýragarðinum í Reykjavík á ekki rétt á skaðabótum frá borginni og tryggingafélagi hennar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur.

Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum
Stærsta skeifa heims vekur nú mikla athygli gesta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, en í skeifunni eru 2.852 notaðar skeifur, sem hafa verið undir hestum út um allt land í gegnum árin.

Sárir páskaeggjaleitarar ekki farið með rétt mál
Bæjarins Beztu Pylsur, sem sér um páskaeggjaleit í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum gefur lítið fyrir gagnrýni á framkvæmd hennar og segir hana hafa gengið vel. Eggin hafi nær ávallt dugað fram að lokun og rangt að þau hafi eitt sinn verið horfin um hádegisbil. Forstöðukona garðsins segir ungt starfsfólk hafa þurft að þola reiði og skammir að ósekju.

Eggin tuttugu búin í byrjun dags, fólk að hamstra og starfsmenn eltir uppi
Mæður á Facebook-hópnum Mæðratips furða sig á skipulagi páskaeggjaleitar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Aðeins er hægt að finna tuttugu egg á dag svo þau klárast snemma. Að sögn sjónarvotta eru dæmi um fólk sem hefur hamstrað egg.

Glæsileg sýning á skrautdúfum
Þær voru skrautlegar dúfurnar sem voru til sýnis í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag en um eitt hundrað skrautdúfur voru á sýningunni, meðal annars hláturdúfur.

Áform um nýja selalaug sett á ís
Borgaryfirvöld hafa ákveðið að fresta framkvæmdum við nýja selalaug í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum um óákveðinn tíma. Framkvæmdir hófust síðasta haust og búið var að grafa stærðarinnar holu þar sem laugin átti að vera. Nú verður fyllt upp í holuna.

Diljá býr í Húsdýragarðinum
Fyrstu lömb sumarsins í Húsdýragarðinum komu í heiminn í dag og eitt þeirra hefur nú þegar hlotið viðeigandi nafn í ljósi tímasetningarinnar. Hún ber að sjálfsögðu nafnið Diljá í höfuðið á Eurovisionfara Íslands.

Fyrsti kiðlingurinn einstakur vorboði
Fyrsti kiðlingurinn þetta árið fæddist í Húsdýragarðinum á mánudag. Þeir eru núna orðnir fimm og beðið er í ofvæni eftir þeim sjötta og síðasta.

Brotist inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í nótt
Brotist var inn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardalnum í Reykjavík í nótt. Innbrotsþjófurinn náði að forða sér á hlaupum áður en lögregla kom á staðinn.

„Miklu flottari“ en ljósin í Tivoli
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er nú uppljómaður í tilefni jólahátíðarinnar. Segja má að skreytingarnar minni á Tivoli skemmtigarðinn í Kaupmannahöfn.

Gulli var nálægt því að missa meistaraprófið
Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli byggir úr samnefndum sjónvarpsþáttum, var einu sinni nálægt því að missa meistarapróf sitt. Gulli snerti aðeins á þessu í spurningaflóði í fallturninum í Laugardal á dögunum.

Áttavilltur lundi í Suðurhlíðunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um áttavilltan lunda á vappi í Suðurhlíðunum. Hann var hinn gæfasti í höndum lögreglu sem kom honum til dýrahirðis í Húsdýragarðinum.

Svona á nýja selalaugin í Laugardalnum að líta út
Ný selalaug mun margfalda það rúmmál sem selirnir hafa til sunds auk þess að gefa þeim möguleika á að kafa á meira dýpi. Borgarráð samþykkti í dag að fara í framkvæmdir við nýja selalaug og nýtt þjónustuhús í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Áhyggjufullur yfir slasaðri súlu á Vatnsleysuströnd
Staðarhaldari á Vatnsleysuströnd segist ítrekað hafa reynt að ná í yfirvöld án árangurs vegna vængbrotinnar súlu sem hefur verið á svæðinu undanfarið. Lögregla hefur ekki viljað koma nálægt henni af ótta við fuglaflensu.

Selalaugin í Húsdýragarðinum stækkuð á næsta ári
Til stendur að stækka selalaugina í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hönnun er að hefjast og er lagt upp með að framkvæmdir hefjast á næsta ári. Kostnaður er enn óljós en í fjárfestingaráætlun Reykjavíkurborgar eru áætlaðar 100 milljónir króna í verkefnið.

Fyrsta sýnishorn úr sjónvarpsþættinum Eurogarðurinn
Vísir frumsýnir hér fyrsta sýnishornið úr þáttaröðinni Eurogarðurinn, sem fara í sýningu á Stöð 2 þann 27. september. Um er að ræða íslenska leikna sjónvarpsþætti með einvala liði leikara.

Afkvæmi selsins Snorra heitins og Særúnar kom í heiminn í morgun
Nýjasti íbúi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins kom í heiminn í morgun en landselsurtan Særún kæpti snemma dags.

Frítt í Húsdýragarðinn á laugardaginn vegna hópsenu í Eurogarðinum
Þær fjölskyldur sem taka þátt í tökum á Eurogarðinum klukkan 12 fá frítt í garðinn og tilboð í tækin í Fjölskyldugarðinum í kjölfarið.

Feitur og pattaralegur og veifaði ekki einu sinni bless
Búið að sleppa hringanóranum sem Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fékk í fangið.

Fengu leyfi fyrir innflutningi tarantúlna
Umhverfisstofnun hefur veitt Fjölskyldu- og húsdýragarðinum heimild til innflutnings á fjórum risaköngulóm, eða tarantúlum, frá Þýskalandi.

Bræðurnir Víðir og Þórólfur fylgdust með Ölmu í beinni
„Bræðurnir Víðir og Þórólfur komu í heiminn í gærmorgun en móðir þeirra heitir Síða. Dagar þeirra eru eflaust mun rólegri en þeirra sem þeir eru nefndir eftir.“

Bókasöfnum, sundlaugum og húsdýragarðinum lokað
Borgarbókasafnið verður lokað frá og með þriðjudeginum 24. mars í takt við hertar takmarkanir í yfirstandandi samkomubanni.

Vill að hætt verði að halda villt spendýr í Húsdýragarðinum
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur lagt tillögu fyrir borgarráð um að borgin samþykki stefnubreytingu á dýrahaldi í Húsdýragarðinum í Reykjavík.

Selurinn Snorri allur
Selurinn Snorri, sem hefur dvalið í Húsdýragarðinum í Reykjavík frá 1990, kvaddi þessa jarðvist og hélt á fund feðra sinna á dögunum.

Herskáir risamaurar væntanlegir til landsins
Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og deildarstjóri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, segir maurana ekki eiga nokkra möguleika á því að lifa af úti í náttúrunni hér á landi. Þess vegna verða þeir í góðu yfirlæti í búrum garðsins.

Gestir Fjölskyldu- og húsdýragarðsins rúmlega 100 þúsund fyrri hluta ársins
Ótrúleg sprenging hefur orðið í komu gesta í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á fyrstu sex mánuðum ársins og þá hafa ívið fleiri lagt leið sína í sundlaugar Reykjavíkurborgar.

Vilja sleppa Húsdýragarðskópnum í haust
Selastofninn hruninn við Íslandsstrendur.

Frítt í sund og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn á sumardaginn fyrsta
Víkingar verða með sumarhátíð í Bústaðahverfi, þar verður boðið upp á heitar pylsur, farið í skrúðgöngu, skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni.