Stj.mál

Fréttamynd

Ingibjörg með meira fylgi en Össur

Samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði í gæer er lítill munur á fylgi Össurar og Ingibjargar Sólrúnar þegar tekið er mið af öllum svöurm. Össun nýtur hins vegar bara stuðnings um fjórðungs þeirra sem segjast kjósa Samfylkingunna.

Innlent
Fréttamynd

Veltur framtíð Blairs á ESB?

Evrópumálin verða líklega stærsta verkefni Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, á þriðja kjörtímabili hans. Takist honum ekki að fá bresku þjóðina til að samþykkja nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins kann það að binda enda á pólitískan feril hans.

Erlent
Fréttamynd

Olíugjald lækkað

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka olíugjaldið til að stuðla að frekari notkun díselbíla, sem viðurkennt er að menga síður umhverfið þar sem vélarnar eru sparneytnari en bensínvélar. Ríkisstjórnin kom saman í morgun og samþykkti að breyta lögum um olíugjald og kílómetragjald í þessu skyni.

Innlent
Fréttamynd

Héðinsfjarðargöng verði slegin af

Samgönguáætlun Gunnars I. Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, gerir ráð fyrir því að Héðinsfjarðargöng verði slegin af en göng gerð frá Fljótum yfir á Siglufjörð. Gunnari þykir súrt í brotið að meirihluti stjórnarliða í samgöngunefnd samþykki að einungis fimmtungur fjár til vegaframkvæmda á næstu árum renni til suðvesturhornsins.

Innlent
Fréttamynd

Hefndaraðgerðir stjórnvalda

Stjórnarandstaðan kallar frumvarp til samkeppnislaga hefndaraðgerðir og varar við því að það verði samþykkt sem lög frá Alþingi. Í áliti minnihluta efnahags- og viðskiptanefndar segir að það veiki samkeppniseftirlit á Íslandi og að helstu sérfræðingar þjóðarinnar á þessu sviði vari við því.

Innlent
Fréttamynd

Samgönguáætlun samþykkt

Meirihluti samgöngunefndar Alþingis samþykkti samgönguáætlun í gærkvöld. Búist er við að minnihlutinn skili séráliti í dag.

Innlent
Fréttamynd

Trimble lætur af embætti

David Trimble, leiðtogi sambandssinna á Norður-Írlandi, lét af formennsku flokksins í dag eftir slæma útkomu hans í kosningunum í fyrradag. Trimble hefur verið formaður flokksins frá árinu 1995 en hann missti sæti sitt á þingi í kjölfar kosninganna.

Erlent
Fréttamynd

Full alvara með eigin vegaáætlun

Gunnar I. Birgisson þingmaður Sjálfstæðisflokksiins er afar ósáttur við afgreiðslu meirihluta samgöngunefndar Alþingis á vegaáætlun, en hún var afgreidd úr nefndinni með litlum breytingum. Gunnar lagði fram eigin vegaáætlun í gær og verður hún tekin fyrir á Alþingi eftir helgi.

Innlent
Fréttamynd

Forseti Alþingis gagnrýndur

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu forseta Alþingis harðlega í upphafi þingfundar í morgun fyrir stefnuleysi í störfum þingsins; fjöldi mála lægi fyrir þinginu en samt væri stefnt að því að ljúka þingstörfum 11. maí. Sérlega sárnaði þingmönnum að vera kvaddir út á laugardegi en ekki var gert ráð fyrir því í starfsáætlun þingsins.

Innlent
Fréttamynd

Vilja N-Kóreu að samningaborðinu

Stjórnvöld í Evrópu og Asíu skora á Norður-Kóreu að setjast aftur að samningaborðinu og ræða kjarnorkuvopnaáætlun landsins, án frekari tafa. Talið er að Norður-Kórea sé að undirbúa tilraunir með kjarnorkuvopn.

Erlent
Fréttamynd

Bush mærir Letta

George Bush, forseti Bandaríkjanna, fagnar þeim skrefum sem yfirvöld í Lettlandi hafa stigið í átt til frelsis og lýðræðis eftir að landið varð frjálst frá Sovétríkjunum. Bush kom í opinbera heimsókn til Lettlands í gær og markar það upphaf heimsóknar hans til Evrópu þar sem hann tekur þátt í hátíðarhöldum í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá lokum Síðari heimstyrjaldar.

Erlent
Fréttamynd

Blair heitir róttækum umbótum

Tony Blair hefur heitið róttækum umbótum heimafyrir í heilbrigðismálum, menntamálum og málefnum innflytjenda. Varðandi utanríkismálin telur hann fátækt í Afríku og deilur Ísraelsmanna og Palestínumanna meðal þess sem hann vill setja efst á forgangslistann.

Erlent
Fréttamynd

Grimmdarverk nasista liðin tíð

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir eindregnum stuðningi við umsókn Þjóðverja um sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hann segir Þjóðverja hafa lært af sögunni og að grimmdarverk þeirra í líkingu við þau sem nasistar frömdu á tímum Síðari heimsstyrjaldar séu liðin tíð.

Erlent
Fréttamynd

Norsk ESB-stjórn nánast útilokuð

Nær ómögulegt er að mynda norska ríkisstjórn sem er hlynnt aðild að Evrópusambandinu og Norðmenn munu ekki fylgja Íslendingum kysum við að ganga í sambandið. Þetta segir varaformaður norsku samtakanna Nei til EU.

Erlent
Fréttamynd

Komu Bush mótmælt í Amsterdam

Þúsundir komu saman í Amsterdam og öðrum borgum Hollands í dag til að mótmæla heimsókn George Bush, forseta Bandaríkjanna, en hann kom til landsins frá Lettlandi undir kvöld. Hollenskum mótmælendum finnst skjóta skökku við að yfirmaður innrásarhers í Írak minnist loka heimsstyrjaldarinnar seinni með yfirreið um Evrópu.

Innlent
Fréttamynd

Dísilolían lækkar um 5 krónur

Geir Haarde fjármálaráðherra lagði í gær fram frumvarp til laga um lækkun olíugjalds á dísilolíu, en að óbreyttu heimsmarkaðsverði hefði dísilolía orðið dýrari en bensín frá 1. júlí næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Díselolía 5 krónum ódýrari

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka hið umdeilda olíugjald til að stuðla að frekari notkun díselbíla, sem viðurkennt er að menga síður umhverfið þar sem vélarnar eru sparneytnari en bensínvélar. Útsöluverð díselolíu verður fimm krónum ódýrara en ella í sex mánuði frá og með 1. júlí.

Innlent
Fréttamynd

Börnin stimpluð sem lyfjafíklar

Þingmenn fá ákúrur frá foreldri barns sem gefið er rítalín vegna hegðunarvanda. Faðir stúlku, sem átt hefur við mikla ofvirkni að stríða frá sjö ára aldri, segir umræður um lyfjanotkun barna í þingsölum stimpla fólk í hans stöðu og börn þeirra sem lyfjafíkla og sníkjudýr í þjóðfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sátt um lokun herstöðva

Samningaviðræður um lokun rússneskra herstöðva í Georgíu fór út um þúfur í dag að sögn utanríkisráðherra Georgíu. Af þeim sökum mun forseti landsins, Mikhail Saakashvili, ekki verða viðstaddur sérstök hátíðahöld í Rússlandi næstkomandi mánudag í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari. 

Erlent
Fréttamynd

Heldur áfram baráttunni

Stjórnarmeirihlutinn samþykkti að afgreiða frumvarp um að kynferðisafbrot gegn börnum fyrntust ekki úr nefndinni með þeirri breytingu að kynferðisafbrot gegn börnum byrjuðu nú að fyrnast er þau ná 18 ára aldri en áður var miðað við 14 ár. Þingmaður Samfylkingar ætlar að halda áfram baráttunni því honum finnst ekki verið að veita börnum landsins nægilega réttarvernd með breytingartillögu meirihlutans.

Innlent
Fréttamynd

Vilja segja þingmönnum upp

Unnið er að stofnun þverpólitískra samtaka til varnar Vestfjörðum og hvetur frumkvöðullinn að stofnun þeirra til þess að kjörnum fulltrúum Vestfjarða verði sagt upp störfum. 

Innlent
Fréttamynd

Vill efla sálfræðiþjónustu

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir áríðandi að bregðast við aukinni notkun lyfja við ofvirkni og athyglisbresti barna. Í upphafi þingfundar í gær sagðist hann taka undir áhyggjur þingmanna, en þeir höfðu meðal annars lýst stórfelldri notkun þessara lyfja hér á landi sem ískyggilegri og óhugnanlegri.

Innlent
Fréttamynd

Fresturinn hefst við 18 ára aldur

Meirihluti allsherjarnefndar Alþingis leggur til að fyrningarfrestur vegna kynferðisbrota gegn börnum hefjist við átján ára aldur en ekki fjórtán ára aldur eins og nú er. Nefndin afgreiddi frumvarpið í dag og klofnaði nefndin í afstöðu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Töpuðu fyrir fyrrum samflokksmanni

Tvær konur í framboði fyrir Verkamannaflokkinn þurftu að lúta í lægra haldi fyrir fyrrverandi samflokksmönnum sínum í kjördæmum þar sem flokkurinn fékk meira en helming greiddra atkvæða í síðustu þingkosningum.

Erlent
Fréttamynd

Kosningar í október

Ákveðið hefur verið að gengið verði til kosninga um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð þann áttunda október næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Sigur Fatah-hreyfingarinnar?

Fatah-hreyfingin í Palestínu virðist hafa sigrað í sveitastjórnarkosningum í landinu, samkvæmt óopinberum tölum sem birtar voru í morgun. Samkvæmt þeim hlaut Fatah alls fimmtíu og tvö sæti af áttatíu og tveimur en Hamas-samtökin fengu tuttugu og fjögur sæti.

Erlent
Fréttamynd

Slegnir yfir rítalínnotkun barna

Landlæknir hætti að fylgjast með ávísunum á rítalín til barna og unglinga árið 2001. Þingmenn voru slegnir á Alþingi í dag yfir upplýsingum um umdeilt heimsmet íslenskra barna í notkun rítalíns. 

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherrann sagði af sér

Forsætisráðherra Póllands, Marek Belka, sagði af sér fyrir stundu eftir að meirihluti þings hafnaði því að flýta kosningum. Pattstaða hefur verið á þinginu í mánuð en stjórnmálaskýrendur segja að kosningar hefðu hugsanlega þýtt nýja ríkisstjórn sem væri skipuð hægriöflum og umbótasinnum.

Erlent
Fréttamynd

Af hverju er staða Blairs veik?

Af hverju stendur Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ekki ýkja vel að vígi þrátt fyrir sextíu og sex sæta meirihluta á þingi?

Erlent