Alþingi
294 295 296 297 298 299 300 301 … 301 ›
Sala Símans rædd í ríkisstjórn Sala Landssímans verður rædd á ríkisstjórnarfundi sem hófst á tíunda tímanum en ráðherranefnd um einkavæðingu tekur lokaákvörðun um söluferlið. Einkavæðingarnefnd hefur ekki endanlega gengið frá skýrslu um málið en þar munu fáir endar vera lausir. Innlent 13.10.2005 18:58
Fjármálaráðherra hnýtir í VG Það er engu líkara en að vinstri grænir hafi tekið að sér fjármálin í borginni, sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Þannig lauk gagnrýni hans á þá ákvörðun R-listans að bjóða upp á gjaldfrjálsan leikskóla. Innlent 13.10.2005 18:56
Kvartað á Alþingi Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, kvartaði yfir því á Alþingi í dag að hans flokksmenn fengu ekki að koma að óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra. Helgi Hjörvar Samfylkingu kvaddi sér einnig hljóðs og sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks fá greiðari aðgang að ráðherrum þegar kæmi að óundirbúnum fyrirspurnum. Innlent 13.10.2005 18:56
Úrbætur gerðar á Hegningarhúsinu Ýmsar úrbætur hafa verið gerðar á Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í kjölfar athugasemda heilbrigðisyfirvalda og evrópunefndar um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Innlent 13.10.2005 18:55
Fjölmiðlanefnd: Sögulegar sættir Sögulegar sættir gætu náðst milli stjórnar og stjórnarandstöðu um áhersluatriði laga um eignarhald á fjölmiðlum. Fjölmiðlanefndin svokallaða er að ljúka störfum og útlit er fyrir samstöðu um að einstaklingar og fyrirtæki megi eiga stærri eignarhlut en gert var ráð fyrir í öllum útgáfum fjölmiðlafrumvarpsins. Innlent 13.10.2005 18:55
Uppsögn EES-samningsins skoðuð Kostnaður Íslendinga við þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu nemur allt að tveimur milljörðum á ári. Evrópustefnunefnd Alþingis fjallar á næstunni um hugmyndir um uppsögn EES-samningsins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:55
Undarleg vinnubrögð við frumvarp "Vinnubrögðin í málinu eru undarleg en að vísu ekki eindæmi af hálfu þessa ráðherra." segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar um frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra um endurskipulagningu ríkisútvarpsins Innlent 13.10.2005 18:53
Skrifi einkavæðinganefnd bréf Einkavæðinganefnd sá ekki tilgang í að mæta á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sölu Landssímans. Þingnefndinni var bent á að skrifa einkavæðinganefnd bréf. Stjórnarandstaðan í nefndinni gerði harða hríð að forsætisráðherra vegna málsins í upphafi þingfundar á alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:53
Forsætisráðherra með ráðherraræði Einkavæðingarnefnd taldi ekki þjóna neinum tilgangi að hitta efnahags- og viðskiptanefnd vegna sölu Landsímans. Þingnefndinni var bent á að skrifa nefndinni bréf ef hún hefði einhverjar spurningar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu forsætisráðherra um ráðherraræði í þinginu í dag. Innlent 13.10.2005 18:53
Skýr vilji Alþingis um flugvöllinn Mjög erfitt er að ímynda sér að Reykjavíkurflugvöllur verði rekinn með aðeins einni flugbraut. Þetta sagði samgönguráðherra í umræðum á Alþingi í dag en hann sagði þingið hafa sýnt skýran vilja til að tryggja miðstöð innanlandsflugs í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:52
Vill ekki hætta með samræmd próf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hún teldi ekki rétt að hætta samræmdum prófum í grunnskóla. Þessi skoðun ráðherra gengur þvert á ályktun Félags grunnskólakennara í síðustu viku sem vill hætta að prófa grunnskólanemendur með þessum hætti. Innlent 13.10.2005 18:51
Siv réðst að utanríkisráðherra Siv Friðleifsdóttir réðst að utanríkisráðherra í þinginu í dag vegna ummæla hans um Evrópustefnu Framsóknarflokksins. Víst væri um tímamót að ræða. Hún spurði sig um andrúmsloftið á stjórnarheimilinu; hvaða skilaboð væri verið að senda forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Hefnd fyrir olíumálið? Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar, segir stjórnarfrumvörp um samkeppnismál veikja stöðu samkeppnismála. Að öllum líkindum sé verið að treysta pólitísk ítök í rannsókn samkeppnismála og hefna fyrir olíumálið. Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi sjálfstæðismanna og Vg eykst Fylgi Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna eykst en fylgi annarra flokka minnkar, samkvæmt nýrri þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar sem unnin var fyrir Morgunblaðið og birt er í blaðinu í dag. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 39,3%, en var tæplega 34% í síðustu alþingiskosningum. Fylgi Vinstri grænna eykst um nær helming og er nú 16,5%. Innlent 13.10.2005 18:51
Samkeppnisstofnun varaði við sölu Samkeppnisstofnun varaði við áhrifum af sölu grunnnets Landssímans fyrir fjórum árum. Stofnunin taldi það hafa alvarlegar afleiðingar ef ekki yrði gripið til hliðaraðgerða vegna símasölunnar. Innlent 13.10.2005 18:51
Þrjár nýjar stofnanir Í nýjum frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er lagt til að í stað Samkeppnisstofnunar verða til tvær stofnanir, Samkeppniseftirlitið og úrskurðarnefnd samkeppnismála. Að auki verður sett á fót Neytendastofa. Innlent 13.10.2005 18:51
Heimild yfirvalda felld niður Heimild samkeppnisyfirvalda til að bregðast við aðstæðum sem skaða samkeppni er felld niður samkvæmt lagafrumvörpum sem viðskiptaráðherra lagði fram í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslendingar flytja vopn til Íraks Ríkisstjórnin hefur boðist til að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra upplýsti þetta á Alþingi í gær við umræður utan dagskrár um stuðning Íslands við þjálfun íraskra öryggissveita. Innlent 13.10.2005 18:51
Íslenskir dómstólar hlíti EFTA Í frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er ákvæði sem segir að íslenskir dómstólar verði að hlíta niðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA í samkeppnismálum er varða Evrópska efnahagssvæðið. Iðnaðarráðherra segir það ekki brot á ákvæði í stjórnarskrá er varði sjálfstæði dómstólanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi Framsóknar aldrei minna Fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki, samkvæmt nýrri könnun þjóðarpúls Gallups sem birt var á RÚV í gær. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 10% og hefur minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 13.10.2005 18:51
Ekki nauðsynlegt að þýða öll lög Frá og með áramótum verða íslensk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að þýða á íslensku öll lög og reglugerðir sem gilda hér á landi. Frumvarp dómsmálaráðherra, sem afnemur þýðingarskylduna, var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:51
Guðni vill rífa Steingrímsstöð Landbúnaðarráðherra lýsir því yfir að hann vilji fjarlægja Steingrímsstöð í Efra-Sogi. Það væri lítil fórn fyrir Landsvirkjun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir ekki víst að það yrði urriðanum til bóta að fjarlægja stöðina. Innlent 13.10.2005 18:49
Hver á að eiga orkulindirnar? Grundvallarágreiningur í íslenskum stjórnmálum um hver eigi að eiga orkulindir þjóðarinnar kristallaðist í snörpum umræðum á Alþingi í dag. Formaður Vinstri grænna setti samstarfið innan R-listans í uppnám þegar hann strengdi þess heit að allt yrði gert til að koma í veg fyrir sameiningu orkufyrirtækja ríkisins og einkavæðingu þeirra. Innlent 13.10.2005 18:49
Vilja algert reykingabann Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Innlent 13.10.2005 18:47
Væri ekki á leið til lýðræðis Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að ef ekki hefði verið gerð innrás í Írak hefðu ekki verið neinar kosningar þar og þjóðin ekki á leið til lýðræðis. Innlent 13.10.2005 18:47
Áfengisgjald lækkað um 30% Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram frumvarp um að áfengisgjald á léttvín og bjór verði lækkað um þrjátíu prósent sem myndi þýða mikla lækkun vegna þess hversu áfengisgjaldið vegur þungt í útsöluverði áfengis. Innlent 13.10.2005 18:47
Stórt skref stigið á Alþingi Stórt skref var í dag stigið í átt að bættum réttindum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Félagsmálaráðherra kynnti tillögur um að foreldrar gætu fengið greiðslur úr ríkissjóði í allt að níu mánuði til að sinna veikum börnum. Málið vakti almenna ánægju meðal þingmanna allra flokka á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 18:47
Aukin réttindi foreldra Félagsmálaráðherra boðaði rétt fyrir hádegi umfangsmiklar breytingar á réttindum foreldra langveikra barna í fyrirspurnartíma sem nú stendur yfir á Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, bar upp fyrirspurnina um þennan rétt foreldra. Innlent 13.10.2005 18:47
Skurðstofunni í Eyjum ekki lokað Heilbrigðisráðherra stefnir að því að skurðstofu sjúkrahússins í Vestmannaeyjum verði ekki lokað í sex vikur í sumar eins og boðað hafði verið vegna fjárskorts sjúkrahússins. Sú ákvörðun hefur verið harðlega gagnrýnd og Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslyndra, spurði ráðherra á Alþingi í dag hvort hann ætlaði að beita sér í málinu. Innlent 13.10.2005 18:47
Færa þarf sendiráð BNA Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók undir það með Merði Árnasyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær að staðsetning bandaríska sendiráðsins í Þingholtunum væri ekki heppileg. Innlent 13.10.2005 18:47