Golf

Frábær spilamennska hjá Woods

Tiger Woods hefur tveggja högga forystu á Scott Verplank frá Bandaríkjunum eftir tvo hringi á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Southern Hills Country Club-vellinum í Oklahoma. Woods hefur leikið hringina tvo á sex höggum undir pari en hann fór á kostum í gær og spilaði þá á 63 höggum eða sjö höggum undir pari sem er vallarmet.

Golf

Greame Storm með tveggja högga forystu á PGA mótinu

Graeme Storm, er efstur eftir fyrsta dag á PGA meistaramótinu eftir að hafa spilað á 65 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann fékk fimm fugla og engan skolla á hinn erfiða Southern Hills völlinn en aðeins 12 kylfingar náðu að spila undir pari á fyrsta hring.

Golf

Reynir fyrir sér í atvinnumennsku

Örn Ævar Hjartarson mun í haust taka þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku mótaröðina í golfi. Mörg þúsund kylfingar sækja um á ári hverju en aðeins um þrjátíu komast inn á mótaröðina.

Golf

Birgir Leifur í 20. sæti yfir hittnar flatir á evrópsku mótaröðinni

Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið að slá boltann nokkuð vel á evrópsku mótaröðinni og sést það vel þegar skoðuð er tölfræðisíða mótaraðarinnar. Hann er í 20. sæti á listanum yfir þá sem hafa hitt flestar flatir að meðaltali í réttum höggafjölda með 13,1 flöt hitta að meðaltali.

Golf

750 þúsund krónur söfnuðust í einvíginu á Nesinu

750 þúsund krónur söfnuðust til samtakanna „einstök börn“ þegar hið árlega góðgerðarmót í golfi, einvígið á Nesinu fór fram í dag. Venju samkvæmt er 10 sterkum kylfingum boðið til leiks og er leikið með útsláttarfyrirkomulagi. Einn kylfingur dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn.

Golf

Tiger Woods sigraði örugglega í Ohio í gær

Tiger Woods lék frábæran lokahring og fór með öruggan sigur af hólmi á heimsmótinu í golfi sem lauk í Ohio í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þetta var þriðja heimsmótið í röð sem að Tiger vinnur á Firestone golfvellinum.

Golf

Birgir Leifur í 69. sæti í Rússlandi

Birgir Leifur Hafþórsson lék á 4 höggum yfir pari á lokahring á opna rússnesku mótinu í golfi og er í 70. sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, einn skramba, 2 fugla og paraði 11 holur á lokahringnum.

Golf

Birgir Leifur spilaði á 74 höggum í dag

Birgir Leifur Hafþórsson spilaði fyrsta hringinn sinn á Opna rússneska mótinu á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Hann er jafn í 73. sæti níu höggum á eftir efsta manni Svíanum Nilsson sem spilaði á 65 höggum í dag.

Golf

Leik frestað í Rússlandi vegna eldinga

Leik hefur verið frestað á Opna Rússneska meistaramótinu vegna eldinga. Birgir Leifur er meðal keppenda á mótinu og er hann á einu höggi yfir pari eftir 11 holur. Hann er búinn að fá fjóra fugla á hringnum, þrjá skolla og einn skramba.

Golf

Pissilli settur í bann fyrir lyfjanotkun

Ítalski golfarinn Allessandro Pissilli hefur verið settur í keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Pissilli greindist jákvæður af sterum á Omnium National mótinu þann 29 júní. Pissilli spilar á Ítalska atvinnumannmótaröðinni gæti hlotið allt að tveggja ára keppnibann fyrir þetta.

Golf

Furyk fór holu í höggi og sigraði í Kanada annað árið í röð

Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk varði titil sinn í Kanada um helgina. Hann fór holu í höggi á fjórðu holunni og komst þá í forystu sem hann lét ekki af hendi. Hann spilaði á 64 höggum á síðasta hring og endaði mótið 16 höggum undir pari og var einu höggi á undan Vijay Singh. Fyrir 13. sigur sinn á mótaröðinni fékk hann 900.000 dollara.

Golf

Anna Jódís og Valdís efstar í kvennaflokki

Anna Jódís Sigurbergsdóttir úr GK og Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL deila efsta sæti eftir fyrsta hring í kvennaflokki á Íslandsmótinu á Hvaleyrinni. Þær léku báðar hringinn í dag á 75 höggum, eða 4 höggum yfir pari.

Golf

Þrír deila efsta sæti í karlaflokki

Þeir sem voru ræstir út eftir hádegi í karlaflokki á fyrsta hring á Íslandsmótinu á Hvaleyrinni hafa ekki verið að ógna skori þeirra bestu sem kláruðu hringinn fyrr í dag. Ástæðan fyrir því er að hluta til sú að nokkur vindur hefur verið á vellinum eftir hádegi, en þeir sem fóru út í morgun fengu logn eða hæga norðan golu.

Golf

Harrington hefði líklega hætt í golfi ef hann hefði ekki unnið Opna breska

Írinn Padraig Harrington sigraði 136. Opna breska meistaramótið um helgina þegar hann vann Sergio Garcia í fjögurra holu umspili eftir einna mest spennandi lokaholur síðustu ára. „Ef ég hefði tapað eftir það sem gerðist á átjándu þá veit ég ekki hvort að ég hefði áhuga á því að spila golf aftur,” sagði Harrington.

Golf

Harrington sigraði á opna breska

Predraig Harrington vann í dag sigur á opna breska meistaramótinu í golfi eftir æsispennandi bráðabana við Spánverjann Sergio Garcia. Þetta var fyrsti sigur Harrington á stórmóti á ferlinum og var hann jafnframt fyrsti Írinn til að vinna sigur á mótinu í 60 ár.

Golf

Garcia í vænlegri stöðu á opna breska

Spánverjinn Sergio Garcia er í góðri stöðu til að vinna sitt fyrsta stórmót á ferlinum eftir að hann lauk öðrum hringnum á opna breska meistaramótinu á tveimur höggum undir pari í dag. Hann er því samtals á níu höggum undir pari fyrir lokadaginn og sýndi fádæma öryggi í dag.

Golf

Tiger sló í höfuðið á konu

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í höfuðið á sextugri konu á sjöttu brautinni á opna breska í dag. Ekki var skotið þó með öllu mislukkað því boltinn hrökk af höfði konunnar og inn á brautina á ný. Woods baðst að sjálfssögðu afsökunar og gaf konunni áritaðan hanska í miskabætur. Sauma þurfti tvö spor í höfuð hennar.

Golf

Garcia með tvö högg í forskot

Golf Spánverjinn Sergio Garcia lék annan hringinn á opna breska meistaramótinu á pari og hefur tveggja högga forskot á hinn sjóðheita K.J. Choi þegar tveir hringir eru eftir.

Golf

Sergio Garcia í forystu á opna breska

Spænski kylfingurinn Sergio Garcia hefur tveggja högga forystu í fyrsta sætinu á opna breska meistaramótinu í golfi eftir fyrsta hringinn, en hann lék frábært golf í dag og lauk keppni á 65 höggum - sex höggum undir pari. Írski kylfingurinn Paul McGinley er í öðru sæti tveimur höggum á eftir og höggi þar á eftir koma fimm aðrir kylfingar. Tiger Woods spilaði fyrsta hringinn á tveimur undir pari - 69 höggum - en hann stefnir á að vinna mótið þriðja árið í röð.

Golf

Kylfingar fagna símabanni á opna breska

Algjört farsímabann hefur verið sett á Carnoustie á meðan Opna breska Meistaramótið fer fram. Leitað verður á öllum áhorfendum áður en þeir fara inn á svæðið og þeir sem gleyma að skilja símana sína eftir heima getið geymt þá í geymslum við völlinn.

Golf

Fjöldi kylfinga notar ólögleg lyf

Suður-Afríski kylfingurinn Gary Player segir að fjöldi golfleikara í dag sé að nota ólögleg lyf til að bæta árangur sinn í keppni. Player er 71 árs gamall og vann á sínum tíma níu stórmót. Hann segist vita fyrir víst að minnst tíu spilarar séu að nota vaxtarhormón.

Golf

Havret sigraði á Opna skoska

Franski kylfingurinn Gregory Havret sigraði í dag Opna skoska meistaramótinu eftir að bráðaban þurfti til að fá sigurvegara. Havret fór hringina fjóra fór á 14 höggum undir pari, líkt og Phil Mickelson.

Golf

Montgomerie komst ekki áfram á Opna skoska

Colin Montgomerie komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi á Opna skoska mótinu í gær og er þetta í fyrsta sinn sem það gerist. Hann lék hringinn í gær á 74 höggum og var samtals á einu höggi yfir pari og hafnaði í 71.-88. sæti og var einu höggi frá því að komast áfram. Monty sigraði á Evrópumótaröðinni um síðustu helgi og var það fyrsti sigur hans í 19 mánuði.

Golf

Appelby efstur á PGA mótinu - Tiger vinnur enn á

Ástralinn Stuart Appleby er í forystu á AT&T PGA mótinu sem fram fer í Marylandfylki í Bandaríkjunum eftir þrjá hringi. Hann er með tveggja högga forskot á Kóreumanninn KJ Choi eftir að hann lék á 68 höggum í gær, Choi var á 70 höggum.

Golf

Heiðar á höggi yfir pari

Þeir Sigurpáll Geir Sveinsson og Heiðar Davíð Bragason hefja leik á opna Skánarmótinu ekki sem best, en Sigurpáll er 2 höggum yfir pari eftir fyrsta hring á Landskrona vellinum. Heiðar Davíð hefur leikið 12 holur og er á einu yfir pari. Heiðar er í 45.-65. sæti, en Sigurpáll er í 66.-91. sæti af 155 keppendum.

Golf

Tiger Woods keppir á AT&T mótinu

Tiger Woods er meðal keppenda á At&T National PGA-mótinu sem hefst í dag á Congressional Country vellinum í Washington, en þar hefur Opna bandaríska Meistaramótið m.a. verið haldið tvisvar sinnum.

Golf