Körfubolti

Dómaranefnd KKÍ segir Kristófer ekki hafa átt skilið brottrekstur eða leikbann
Dómaranefnd Körfuknattleikssambands Íslands hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna atviks sem átti sér stað í þriðja leik Vals og Þórs Þorlákshafnar í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

Lárus biður Kristófer afsökunar: „Ekki mitt hlutverk að vera dómari í þessu máli“
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, hefur beðið Kristófer Acox, leikmann Vals, afsökunar eftir að þjálfarinn sakaði Kristófer um að hafa viljandi meitt Jordan Semple í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta síðastliðinn fimmtudag.

Ísland mætir Tyrklandi, Búlgaríu og Úkraínu í forkeppni Ólympíuleikana
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta verður í C-riðli í forkeppni fyrir Ólympíuleikana í París sem fram fara á næsta ári.

„Úr þessu sjónarhorni finnst mér mjög sérstakt hvernig hann er að koma sér í burtu“
Jordan Semple var heillum horfinn þegar Þór Þorlákshöfn tók á móti Val í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í gær. Semple fór úr axlarlið eftir samskipti sín við Kristófer Acox í þriðja leik liðanna og gat augljóslega ekki beitt sér af fullum krafti í leik gærdagsins.

Steph Curry skaut Stríðsmönnunum í undanúrslit | Miami tók forystuna
Stephen Curry skoraði hvorki meira né minna en 50 stig fyrir Golden State Warriors er liðið vann 20 stiga sigur gegn Sacramento Kings í oddaleik um sæti í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í gærkvöldi, 120-100.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þorlákshöfn - Valur 94-103 | Íslandsmeistararnir knúðu fram oddaleik
Eftir frábæra byrjun Þórsara unnu Íslandsmeistarar Vals nokkuð sanngjarnan endurkomusigur er liðin mættust í fjórða leik undanúrslitaeinvígis Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 94-103 og við erum á leið í oddaleik.

Lárus: „Þessum leikmanni hjá Val er búið að takast sitt ætlunarverk“
Valsarar unnu frábæran sigur á Þór í 4-liða úrslitum Subway-deildar karla og jöfnuðu einvígið í 2-2. Lárus Jónsson þjálfari Þórs var með einfalt og skýrt svar um það hvað hefði farið úrskeiðis hjá hans mönnum.

Fyrsta aðstaðan sem er sérstaklega byggð fyrir kvennalið
Las Vegas Aces, ríkjandi meistarar WNBA deildarinnar í körfubolta, hafa opinberað nýja æfinga- og keppnisaðstöðu liðsins. Er þetta í fyrsta sinn sem aðstaða er sérstaklega byggð fyrir og í kringum lið í WNBA deildinni.

Jókerinn fékk aðstoð við að leggja Durant og Booker að velli
Denver Nuggets nýtti allan þann mannskap sem liðið býr yfir til að leggja Phoenix Suns að velli í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum vestursins í NBA deildinni í körfubolta. Vinna þarf fjóra leiki til að komast í úrslit.

Myndband: Logi Gunnarsson hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum
Logi Gunnarsson, einn reynslumesti körfuboltamaður Íslands, hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum.

Umfjöllun: Tindastóll – Njarðvík 117-76 | Njarðvíkingar sáu aldrei til sólar og Stólarnir á leið í úrslit
Tindastóll vann vægast sagt öruggan sigur er liðið tók á móti Njarðvík í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 117-76 í leik sem var í raun búinn í hálfleik og Stólarnir eru á leið í úrslit annað árið í röð.

Martin og félagar komnir langleiðina inn í úrslitakeppnina
Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia unnu góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Obradoiro í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöldm 87-78.

Sjáðu fagnaðarlæti Íslandsmeistara Vals þegar bikarinn fór á loft
Valur varð Íslandsmeistari kvenna í körfubolta á föstudagskvöld. Eðlilega fylgdu því mikil fagnaðarlæti og sjá má stemninguna á Hlíðarenda þegar bikarinn fór á loft í mynbandinu hér að neðan.

Pökkuðu Grizzlies saman og sendu í sumarfrí | Kóngarnir knúðu fram oddaleik
Los Angeles Lakers pakkaði Memphis Grizzlies ofan í ferðatösku og sendi á leið í sumarfrí með 40 stiga sigri í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Sacramento Kings tryggðu sér oddaleik gegn ríkjandi meisturum Golden State Warriors með öruggum sigri.

Embla: Vissum að þetta kæmi á endanum ef við héldum áfram allan leikinn
Embla Kristínardóttir var hetja Valskvenna þegar hún skoraði þrjú af fimm síðustu stig liðsins sem gerði það að verkum að Valur vann Keflavík 72-68 og einvígið um Íslandsmeistaratitilinn 3-1. Embla setti niður þriggja stiga skot til að koma Valskonum yfir áður en Hildur Björg Kjartansdóttir setti niður tvö víti til að klára leikinn að fullu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Keflavík 72-68 | Valur Íslandsmeistari eftir dramatískan sigur
Valur er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir nauman fjögurra stiga sigur gegn Keflavík í Origo-höllinni í kvöld í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Subway-deildar kvenna. Lokatölur 72-68 og Valskonur unnu einvígið 3-1.

Kiana: Það trúði engin að við myndum vinna mótið
Kiana Johnson var valin besti leikmaður úrslitakeppni Subway deildar kvenna þegar uppi var staðið. Hún leiddi Valskonur til sigurs í kvöld og einvíginu við Keflavík og hampaði titlinum. Hún skilaði 13 stigum, átta fráköstum og fimm stoðsendingum í kvöld þegar Valskonur unnu fjórða leikinn 72-68. Hún taldi að vantrú annarra hafi drifið Valsliðið áfram.

Katarbúar fá að halda enn eitt stórmótið
Íslenska körfuboltalandsliðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti á HM í körfubolta sem fer fram í Indónesíu, Japan og Filippseyjum í sumar.

Hópslagsmál brutust út í stórleik EuroLeague
Mikil slagsmál brutust út í leik Real Madrid og Partizan Belgrad í EuroLeague í körfubolta í gær.

Skemmtilegasta NBA-serían í beinni í kvöld
Áhugafólk um NBA deildina í körfubolta er að fleyta rjómann af tímabilinu þessar vikurnar enda er úrslitakeppnin komin á fulla ferð.

Skoðaði fjölskyldumyndir þegar hún var að missa vonina í rússneska fangelsinu
Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner sem dúsaði í fangelsi í Rússlandi í tíu mánuði ræddi upplifun sína á blaðamannafundi í gær.

Semple á leið í ómskoðun og Shahid fárveikur
Lið Þórs frá Þorlákshöfn var laskað í leik sínum gegn Valsmönnum í gær. Þeir máttu sín enda lítils og töpuðu stórt. Staðan í einvíginu 2-1 fyrir Þórsurum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Þór Þorl. 91-65 | Meistararnir á lífi eftir stórsigur
Íslandsmeistarar Vals unnu sannkallaðan stórsigur er liðið tók á móti Þór frá Þorlákshöfn í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld, 91-65.

„Valsarar miklu betri en við í seinni hálfleik“
Valsmenn fóru með nokkuð afgerandi og öruggan sigur af hólmi gegn Þórsurum í 4-liða úrslitum Subway-deildarinnar í kvöld, lokatölur 91-65. Þórsarar mættu laskaðir til leiks, Vincent Shahid veikur og Pablo Hernandez puttabrotinn. Eftir aðeins rúmar tvær mínútur bættist Jordan Semple svo á sjúkralistann.

„Þinn styrkur - Þeirra styrkur“ er nýtt átak fyrir landsliðskrakka KKÍ
Körfuknattleikssamband Íslands ætlar að fara nýja leið í að aðstoða leikmenn yngri landsliða sinna að safna pening fyrir verkefnum sumarsins.

Þórsarar geta sópað liði út úr úrslitakeppninni í fyrsta sinn
Þórsarar frá Þorlákshöfn geta komist í lokaúrslitin í þriðja sinn í sögu félagsins í kvöld þegar þeir heimsækja Íslandsmeistara Vals á Hlíðarenda.

Teiknaði sjálfur upp lokaleikkerfið, skoraði og sendi Milwaukee í sumarfrí
Miami Heat gerði sér lítið fyrir og sendi efsta lið Austurdeildarinnar, Milwaukee Bucks, í sumarfrí í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Miami vann einvígið, 4-1.

„Þurfti bara að taka til í hausnum“
Haukur Helgi Pálsson, leikmaður Njarðvíkur, hefur átt erfitt uppdráttar í undanförnum leikjum í úrslitakeppninni Subway-deild karla í körfubolta. Haukur hitti þó heldur betur á sinn leik í kvöld er Njarðvík vann 31 stiga sigur á Tindastól, 109-78. Haukur endaði leikinn stigahæstur með 20 stig.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík 109-78 Tindastóll | Njarðvíkingar grípa í líflínu
Njarðvíkingar halda sér á lífi í úrslitakeppninni Subway-deildar karla í körfubolta eftir 31 stiga stórsigur á Tindastól í Ljónagryfjunni í kvöld, 109-78. Sigur Njarðvíkinga var aldrei í hættu en heimamenn leiddu frá upphafi til enda.

Elvar Már öflugur í enn einum sigrinum
Elvar Már Friðriksson og félagar í Rytas halda áfram að gera það gott í efstu deild karla í körfubolta í Litáen. Liðið vann góðan sex stiga sigur á Nevezis í kvöld, lokatölur 99-93.