Erlent

Sjö Íslendingar á hættusvæðum

Utanríkisráðuneytið hefur ekki upplýsingar um 26 Íslendinga í Asíu. Talið er að aðeins hluti fólksins hafi verið á svæðum þar sem flóðbylgja reið á land í kjölfar jarðskjálftans á annan í jólum sem mældist níu á Richterkvarða. Staðfest er að rúmlega 23 þúsund manns hafi látist. Pétur Ásgeirsson, skrifstofustjóri almennrar skrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir ekkert benda til þess að Íslendingar hafi slasast eða farist. Gert sé ráð fyrir að meirihluti þeirra 26 sem engar spurnir hafi borist af hafi ekki verið á hættusvæðum, eins og í Pattaya og Singapúr, en ganga verði úr skugga um það. Pétur segir fjölskyldur nokkurra þeirra 26 hafa verið í sambandi við ráðuneytið. Hér heima óttist fólk af asískum ættum um afdrif ættingja sína. Somjai Sirimekha, túlkur hjá Alþjóðahúsi, segir sjö taílenskar fjölskyldur meðal þeirra. Rauði krossinn hefur boðið þeim aðstoð við að leita ættingja á hamfarasvæðunum. Rauði krossinn fundaði með áhyggjufullu fólki í húsakynnum sínum í gærkvöld. Þórir Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Rauða kross Íslands, segir ríflega tvö þúsund hafa hringt í hjálparsíma Rauða krossins, 907 2020, og veitt þúsund króna framlag. Stjórnvöld hafi einnig ákveðið að veita fimm milljónir til hjálparstarfsins. Enginn Íslendingur hefur farið utan til hjálparstarfa. Þorsteinn Þorkelsson, sviðstjóri björgunarsviðs hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, segir krafta Íslendinga sem starfi í viðbragðsliði Sameinuðu þjóðanna ekki hafa verið óskað að þessu sinni. Þórir segir um 130 manna þjálfaðan hóp veraldarvaktar Rauða krossins vera í viðbragðstöðu. Ekki sé útlit fyrir að hópurinn fari utan. Pétur segir danska sendiráðið í Bangkok ætla að hlutast til um Íslendinga á svæðinu. Þeir geti haft samband við danska hjálparmiðstöð á Phuket í Taílandi. Íslendinga leitað á hættusvæði:* - Óþekkt staðsetning á Taílandi 4- Pattaya á Taílandi11 - Taíland nálægt strönd 1 - Suðurhluti Taílands 1 - Cocin, Indlandi 1 - Balí, Indónesíu 6 - Singapúr 3   * Heimildir frá utanríkisráðuneytinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×