Ítalski dómarinn Pierluigi Collina er hættur að dæma, það tilkynnti hann forráðamönnum ítalska knattspyrnusambandsins í dag. Hann hafði nýverið gert auglýsingasamning við bílaframleiðandann Opel sem einnig styrkir A.C. Milan en samningurinn var afar illa séður af ítölsku knattspyrnuforustunni og aðdáendum annara liða en A.C Milan.