Fjöldabrúðkaup í Aceh-héraði 7. júní 2005 00:01
Mikil hátíðahöld voru í flóttamannabúðum í Aceh-héraði í Indónesíu í gær, þegar tuttugu og þrjú pör, á aldrinum 22 til 63 ára, gengu í það heilaga. Fólkið hefur hafst við í flóttamannabúðunum frá því flóðbylgjan reið yfir annan í jólum á síðasta ári. Mörg þeirra misstu þá allt sitt, heimili, vini og ættingja. Hátíðahöldin í kringum þetta fjölmenna brúðkaup voru þau fyrstu á svæðinu frá því hörmungarnar dundu yfir og tilfinningarnar voru blendnar. Meliana, ein brúðanna, sagðist bæði glöð og döpur. Hún væri döpur vegna þess að brúðkaupið færi ekki fram heima hjá henni en glöð af því að henni og öðrum hefði verið hjálpað þannig að af brúðkaupunum gæti orðið. Yusri, maður hennar, sagðist vona að stjórnvöld gætu hjálpað þeim því þau vissu ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Í Aceh-héraði er talið að fleiri en 130 þúsund manns hafi látist í hamförunum og hálf milljón íbúanna missti heimili sín. Eins og gefur að skilja vill fólk ekki dvelja lengi í flóttamannabúðum og binda pörin, sem giftu sig í gær, miklar vonir við að uppbyggingarstarf á svæðinu verði til þess að þau geti á ný staðið á eigin fótum. Syech Syam, sem einnig var að gifta sig, sagðist ætla að komast í vinnu og ef honum tækist að vinna sér inn peninga ætlaði hann að endurbyggja húsið sitt. Hann vildi ekki búa í tjaldi það sem eftir yrði.
Erlent Fréttir Mest lesið Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Erlent Heitir því að verða betri eiginmaður og finna sér nýja vinnu Innlent Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Erlent The Vivienne er látin Erlent Íslensku þjóðinni ofbjóði ástandið Innlent Mikið álag vegna inflúensu Innlent Hringi viðvörunarbjöllum þegar of auðvelt sé að taka lán Innlent 1166 ára gömul systkini frá Kjóastöðum og öll á lífi Innlent Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Erlent Aðstoðar Ingu eftir viðkomu í Sjálfstæðisflokknum, Viðreisn og JP Morgan Innlent Fleiri fréttir Musk reynir að hafa áhrif víða: „Ekki fóðra tröllið“ Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir The Vivienne er látin Trump ósáttur að flaggað verði í hálfa við innsetninguna Skyndileg árás Úkraínu hafi komið Rússum í opna skjöldu Austurríkiskanslari segir af sér eftir árangurslausar viðræður Í fangelsi fyrir að sofa hjá ári yngri stúlku Höfnuðu skopmynd sem sýndi eigandann í vondu ljósi Fyrrverandi starfsmaður sakar Nicki Minaj um líkamsárás Jimmy Carter kvaddur Einn hinna látnu í New Orleans tengdur konungsfjölskyldunni Látin 116 ára að aldri Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Sjá meira