Sport

HK yfir gegn bikarmeisturunum

Ólafur V Júlíusson hefur komið HK yfir gegn bikarmeisturum Keflavíkur í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla þar sem staðan er orðin 1-0. Þá hefur KA minnkað muninn gegn FH í Kaplakrika þar sem staðan er 3-1. Jóhann Þórahallsson skoraði markið eftir undirbúning Hreins Hringssonar. Víðir Leifsson hefur bætt við marki fyrir Fram sem er 2-0 yfir gegn Þór á Akureyri. Þá hefur Pétur Óskar Sigurðsson komið ÍBV í 3-0 gegn Njarðvík. Nú stendur yfir síðari hálfleikur í leikjunum fimm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×