Sport

Real Madrid kaupir Cicinho

Real Madrid hefur fengið til sín enn einn Brassann
Real Madrid hefur fengið til sín enn einn Brassann NordicPhotos/GettyImages

Spænska stórveldið Real Madrid hefur gengið frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Cicinho frá nýkrýndum heimsmeisturum félagsliða, Sao Paulo. Kaupverðið er sagt vera í kring um fjórar milljónir evra og þó Cicinho sé brasilíumaður, er hann með ítalskt vegabréf og telst því ekki vera útlendingur í spænsku deildinni.

Það er því ljóst að ekki er skortur á hægri bakvörðum í liði Real Madrid, þar sem fjórir menn munu nú berjast um laust sæti í liðinu, því fyrir í svipaðri stöðu hjá félaginu eru þeir Michel Salgado og Sergio Ramos úr spænska landsliðinu, sem og Carlos Diogo frá Úrúgvæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×