Fótbolti

Valdi Juventus fram yfir AC Milan

Gianluigi Buffon
Gianluigi Buffon NordicPhotos/GettyImages

Gianluigi Buffon, landsliðsmarkvörður heimsmeistara Ítala, hefur ákveðið vera um kyrrt hjá Juventus sem fyrr í sumar var dæmt niður í Seríu B vegna hneykslismálsins þar. Eins og svo margir aðrir leikmenn liðsins var búist við því að hann færi frá félaginu.



"Ég get ekki neitað því að eftir fimm ára veru hjá félaginu var freistandi að fá nýja reynslu annars staðar," sagði Buffon. Hann sagði einnig frá því að mörg stórlið hefðu sýnt honum áhuga, þar á meðal enska úrvalsdeildarliðið Arsenal. "Það komu nokkur félög til greina, til dæmis AC Milan, Inter eða Arsenal og hallaðist ég helst að því að ganga til liðs við AC Milan."



Buffon ákvað hins vegar að sýna félaginu tryggð eftir mörg góð ár. "Félagið hefur hjálpað mér að vinna marga sigra og það er Juve að þakka að ég varð heimsmeistari í sumar. Ég get vel eytt einu ári í Seríu B og ætlum við okkur að vinna þá deild."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×