Fótbolti

Baros til Galatasaray

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Milan Baros í leik með tékkneska landsliðinu.
Milan Baros í leik með tékkneska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images

Milan Baros hefur samið við tyrkneska úrvalsdeildarfélagið Galatasaray til næstu þriggja ára. Þetta staðfesti félagið í dag.

„Það er búið að skrifa undir alla samninga og engin vandkvæði með það," sagði Haldon Ustunel, einn forráðamanna félagisns.

Baros var á mála hjá Lyon í Frakklandi en var í janúar síðastliðnum lánaður til Portsmotuh í ensku úrvalsdeildinni.

Hann skoraði sjö mörk í 30 leikjum fyrir Lyon en hefur ekki fengið mörg tækfæri hjá þjálfara liðsins nú í upphafi tímabilsins. Baros lék áður með Liverpool og Aston Villa í Englandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×