Íslenski boltinn

Stelpurnar lentar undir á móti Kína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gengur ekki alltof vel hjá stelpunum okkar þessa stundina.
Það gengur ekki alltof vel hjá stelpunum okkar þessa stundina. Mynd/Stefán

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilar þessa stundina við Kína um fimmta sætið á Algarve-bikarnum. Kína er komið 1-0 yfir en markið skoruðu þær kínversku á 21. mínútu.

Leikurinn byrjaði rólega en íslensku stelpurnar áttu fyrsta færið á 9. mínútu. Margrét Lára Viðarsdóttir lék þá á 2 leikmenn og kom boltanum á Hörpu Þorsteinsdóttur sem var í góðu færi en féll við áður en hún náði skoti.

Mark Kínverja kom úr miðjum vítateig á 21. mínútu. Sóknarmaður Kínverja var þar óvölduð og skoraði með óverjandi skoti.

Byrjunarlið íslenska liðsins á móti Kína (4-5-1):

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Hægri bakvörður: Sif Atladóttir

Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir

Varnartengilðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir

Sóknartengiliður: Margrét Lára Viðarsdóttir

Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir

Vinstri kantur: Dóra María Lárusdóttir

Framherji: Harpa Þorsteinsdóttir

Þær María Björg Ágústsdóttir, Katrín Ómarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir eru ekki á leikskýrslu vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×