Flutti inn hálft kíló af kattahlandskóki 15. desember 2010 06:00 Amfetamín. Efnið er náskylt amfetamíni en hefur lítið sem ekkert sést hér á landi.
Lettneskur karlmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi eftir að hafa reynt að smygla til landsins hálfu kílói af fíkniefni sem nefnist methedrone. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem reynt er að smygla til landsins fíkniefnum sem líkur eru á að séu ekki skráð hér sem ólögleg efni. Maðurinn sem um ræðir var handtekinn við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Leifsstöð í síðustu viku á leið frá Kaupmannahöfn og var í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald í viku. Hann hefur aldrei komið til landsins áður. Nokkrir einstaklingar hafa verið yfirheyrðir vegna málsins en öllum sleppt að því loknu nema umræddum manni. Fíkniefnið methedrone er náskylt amfetamíni. Farið var að framleiða það árið 1929 en neysla þess komst ekki á skrið fyrr en í kringum árið 2003. Árið 2007 kom í ljós að farið var að auglýsa það til sölu á netinu og hefur neysla þess breiðst mjög hratt út. Heilbrigðisyfirvöld víða um heim brugðust skjótt við og skráðu efnið sem ólöglegt fíkniefni. Dauðsföll eru þekkt erlendis af völdum neyslu á methedrone. Umrætt fíkniefni hefur lítið sem ekkert sést hér á landi og var ekki skráð sem ólöglegt fíkniefni hér fyrr en 4. október síðastliðinn. Lögregla telur að það litla sem sést hafi af efninu hér hafi gengið undir heitinu „kattahlandskók“. Sú nafngift er til komin vegna þess að efnið lyktar eins og kattahland. Erlendis er efnið kallað „meow meow“ eða „mjá mjá“ af sömu ástæðu. Methedrone hefur lítið sést hér, eins og áður sagði. Þó kom upp mál í Leifsstöð fyrir nokkru þar sem það fannst. Óvíst er hverjar málalyktir í því tilviki verða, því efnið var ekki komið á skrá yfir ólögleg fíkniefni hér á landi þegar það kom upp. Ekki er langt um liðið síðan tveir menn voru ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir smygl hingað til lands á tæplega fjórum kílóum af 4-flúoróamfetamíni. Efnið er afleiða amfetamíns. Mennirnir voru báðir sýknaðir, meðal annars vegna þess að efnið var á þeim tíma sem það var flutt inn ekki bannað í reglugerð um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Ekki þótti einu sinni unnt að sakfella fyrir tilraun til brots. Efnið er komið á bannlista. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins. jss@frettabladid.is
Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Erlent Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Erlent Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Innlent Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Innlent Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slagsmál Innlent Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Innlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Einn fluttur á bráðamóttöku eftir slagsmál Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki Séra Davíð Þór leiðir Sósíalista í Suðvesturkjördæmi Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Selenskí kemur til Íslands á morgun Brynjar fær þriðja sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður Jón Pétur Zimsen í þriðja sæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík suður Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Allt á floti á Auto í nótt Óheppilegt en ekki óvenjulegt Götulokanir og mikil öryggisgæsla vegna heimsóknar þjóðarleiðtoga Úthugsuð strategía eða alvarlegt reynsluleysi hjá Kristrúnu Bjarni Jónsson til liðs við Græningja Óheppileg birting einkaskilaboða og æsispennandi úrslitaleikur Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Skólakerfið, pólitíkin, Bandaríkin og kílómetragjald Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Neitaði að færa sig frá lögreglubíl Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík Botnar ekkert í hegðun Kristrúnar Skiltið í allt öðrum búningi en lagt var upp með Sjá meira