Hryðjuverkaógn tefur póstsendingar til Bandaríkjanna 15. desember 2010 16:35 Allir pakkar yfir 500 grömmum verða gegnumlýstir.
Bandarísk stjórnvöld hafa hert öryggiskröfur vegna pósts sem sendur er til Bandaríkjanna. Í tilkynningu frá Póstinum segir að ástæðan fyrir þessu sé bréfasprengja sem send var frá Jemen fyrr á árinu. „Þessar auknu kröfur leiða til tafa á bréfum og pökkum þyngri en 500 gr. sem koma frá Evrópu, þar á meðal Íslandi, til Bandaríkjanna." Þá segir að Íslandspóstur vinni nú að því í samstarfi við Icelandair að finna lausn svo að hægt sé að uppfylla þau skilyrði sem fylgja þessari breytingu, sem felst í aukinni gegnumlýsingu á sendingum. „Auk þess er unnið með öðrum Evrópuþjóðum að því að finna varanlega lausn vegna málsins. Því miður má búast við allnokkrum töfum á sendingunum þar til lausn er fundin. Ekki er unnt að segja til um á þessari stundu hversu miklar tafirnar verða. Þetta hefur hinsvegar engin áhrif á flutningstíma bréfa og pakka léttari en 500 gr. til Bandaríkjanna." Íslandspóstur segist harma að þessi breyting komi til með að tefja þær sendingar sem þegar hafa verið póstlagðar og póstlagðar verða í nánustu framtíð. „Það er þó heppilegt að frestur til að senda jólakort og pakka til Bandaríkjanna er liðinn og því ætti þessi breyting ekki að hafa mikil áhrif á jólasendingar frá Íslandi til vina og ættingja í Bandaríkjunum." Að endingu er tekið fram að þessar hertu öryggiskröfur hafa ekki áhrif á sendingar frá Bandaríkjunum heldur einungis til Bandaríkjanna.
Mest lesið Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Erlent Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Innlent Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Innlent Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Innlent „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Innlent Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Innlent Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Erlent Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Innlent Fleiri fréttir Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská „Ef ég væri kóngur myndi ég heita Valtýr sautjándi“ Gömul sár opnuð á ný og stofnar stuðningshóp Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Reykvíkingur ársins leiðir listann ásamt Ragnari Sjá mikil batamerki eftir háþrýstimeðferð Treystir Bjarna betur en öðrum forystumönnum Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Skólarnir eigi að hjálpa nemendum að ná árangri og vera jöfnunartæki Séra Davíð Þór leiðir Sósíalista í Suðvesturkjördæmi Áslaug um fartölvuna: „Það er alltaf reynt að gera stórmál úr svona hlutum“ Selenskí kemur til Íslands á morgun Brynjar fær þriðja sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður Jón Pétur Zimsen í þriðja sæti Sjálfstæðismanna í Reykjavík suður Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Allt á floti á Auto í nótt Óheppilegt en ekki óvenjulegt Götulokanir og mikil öryggisgæsla vegna heimsóknar þjóðarleiðtoga Úthugsuð strategía eða alvarlegt reynsluleysi hjá Kristrúnu Bjarni Jónsson til liðs við Græningja Óheppileg birting einkaskilaboða og æsispennandi úrslitaleikur Ætluðu að hringsóla yfir Eyjar þegar flugvélarnar skullu saman Skólakerfið, pólitíkin, Bandaríkin og kílómetragjald Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Neitaði að færa sig frá lögreglubíl Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík Botnar ekkert í hegðun Kristrúnar Skiltið í allt öðrum búningi en lagt var upp með Ingibjörg kemur í stað Bergþórs Ræddi ekki við aðra flokka og segir skilið við Sjálfstæðisflokk Sjá meira